Hoppa yfir valmynd
3. febrúar 2010 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mikill áhugi sveitarfélaga á styrkjum til að efla þjónustu við langveik og ofvirk börn

Um þrjátíu sveitarfélög og samtök þeirra sóttu um styrki til tæplega áttatíu verkefna í tengslum við átak sem ætlað er að efla stuðnings- og nærþjónustu í heimabyggð fyrir langveik börn og börn með ofvirkni og athyglisbrest. Að átakinu standa félags- og tryggingamálaráðuneyti, heilbrigðisráðuneyti, mennta- og menningarmálaráðuneyti og sveitarfélögin í landinu. Verkefnisstjórn skipuð fulltrúum þessara aðila auglýsti eftir styrkumsóknum í desember síðastliðnum og rann umsóknarfrestur út 27. janúar. Áhersla var lögð á að sveitarfélögin gætu sótt um styrki í samvinnu við félagasamtök og einstaklinga og eru margar umsóknanna byggðar á slíkri samvinnu. 

Markmið með átakinu er að tryggja þjónustu í samræmi við þarfir barnanna og fjölskyldna þeirra, óháð því hvar þjónustan er flokkuð í stjórnkerfinu. Áherslan er lögð á börnin sem þurfa þjónustunnar með, en ekki á hlutverk hvers ráðuneytis um sig. Ráðuneytin þrjú leggja öll fé til þessa verkefnis í sameiginlegan sjóð og eru 80 milljónir króna til úthlutunar.

Verkefnisstjórnin mun fara yfir styrkumsóknir sveitarfélaganna á næstunni og verða ákvarðanir um úthlutanir kynntar strax og þær liggja fyrir.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum