Hoppa yfir valmynd
10. maí 2023 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 279/2023 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 10. maí 2023 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 279/2023

í stjórnsýslumáli nr. KNU23010012

Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 6. janúar 2023 kærði […], fd. […], ríkisborgari Indlands (hér eftir nefnd kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 5. janúar 2023, um að synja henni um vegabréfsáritun til Íslands.

Ráða má af kæru að kærandi krefjist þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að henni verði veitt vegabréfsáritun til Íslands.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og barst kæran fyrir lok kærufrests.

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016 ásamt síðari breytingum, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022 með síðari breytingum, auk annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

II.        Málsatvik og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 22. desember 2022, óskaði kærandi eftir vegabréfsáritun til Íslands í 10 daga. Umsókn kæranda var synjað með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 5. janúar 2023. Hinn 6. janúar 2023 barst kærunefnd kæra frá kæranda, ásamt fylgiskjölum.

III.    Málsástæður og rök kæranda

Í athugasemdum kæranda með kæru sinni kemur m.a. fram að ástæðurnar fyrir synjun á umsókn hennar hafi valdið henni miklum vonbrigðum. Fyrirhuguð ferð kæranda hafi átt að vera skemmtiferð og hún hafi ætlað að ferðast með ferðaþjónustufyrirtæki ásamt sex til átta manna hópi. Hótelbókunin sem kærandi hafi lagt fram hafi verið gerð af fyrirtækinu og hafi nafn hennar komið þar fram. Öll önnur fylgiskjöl sem kærandi hafi lagt fram séu ósvikin, þ. á m. bréf frá starfsmannastjóra hennar, launaseðlar, bankayfirlit, flugmiðar og ferðatrygging. Kærandi geti lagt fram fleiri sannanir ef þörf sé á. Vísaði kærandi á heimasíðu ferðaþjónustufyrirtækisins og kvað dvölina hafa verið frá 26. janúar 2023 til 1. febrúar 2023.

IV.    Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Um kæru þessa gilda lög um útlendinga nr. 80/2016 ásamt reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022 með síðari breytingum, Schengen-samningurinn og verklagsreglur þess samnings.

Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um útlendinga þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun til að koma hingað til lands, nema annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra setur. Ríkisborgarar Indlands þurfa vegabréfsáritun til Íslands. Í 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga koma fram skilyrði til útgáfu vegabréfsáritunar og í 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er tilgreint hvenær synja skuli um vegabréfsáritun. Heimilt er samkvæmt fyrrgreindri 6. mgr. 20. gr. að veita útlendingi vegabréfsáritun sem gildir á öllu Schengen-svæðinu ef grunnskilyrðum a - h liða sömu greinar er fullnægt.

Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt.

Með aðild að Schengen-samstarfinu og undirritun Brussel-samningsins hinn 18. maí 1999 tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen-samningsins, en með aðild Íslands að Schengen-samstarfinu fylgir skuldbinding til þess að fylgja sameiginlegri stefnu að því er lýtur ferðum fólks, sbr. reglugerð Evrópuþingsins og Ráðsins (EB) nr. 810/2009 um vegabréfsáritanir.

Við veitingu vegabréfsáritana ber íslenskum stjórnvöldum sem einu af Schengen-ríkjunum ekki aðeins að ganga úr skugga um að öllum formskilyrðum sé fullnægt heldur einnig að meta hvort hætta sé talin á að viðkomandi útlendingur muni dvelja lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt og/eða snúi ekki aftur til heimalands. Þessi skylda íslenskra stjórnvalda er lögfest í 8. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þannig er reynt af fremsta megni að stemma stigu við því að gildandi reglur um dvalarleyfi séu sniðgengnar með því að útlendingur sæki um vegabréfsáritun í staðinn. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að rétt sé að lögfesta ákveðin sjónarmið sem beri að miða við í mati á umsókn um vegabréfsáritun. Séu þessi sjónarmið í samræmi við markmið laganna og hafi mótast í framkvæmd Schengen-ríkjanna. Enn fremur segir í athugasemdum með frumvarpinu að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu.

Samkvæmt 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. reglugerðarinnar synjað um vegabréfsáritun í nokkrum tilvikum. Meðal þeirra tilvika sem nefnd eru ef umsækjandi getur ekki fært rök fyrir tilgangi eða skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar sinnar, sbr. ii.-lið a-liðar ákvæðisins, eða ef rökstudd ástæða sé til að draga í efa að fylgiskjöl, sem umsækjandi leggur fram, séu ósvikin eða að innihald þeirra sé rétt, eða áreiðanleika framburðar umsækjanda eða ásetning hans til að yfirgefa yfirráðasvæði aðildarríkjanna áður en vegabréfsáritunin sem sótt er um rennur út, sbr. b-lið ákvæðisins.

Synjunarform Útlendingastofnunar er í samræmi við reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022 og reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins um vegabréfsáritanir (2009/810/EB), en nánari tilvísun er að finna í ákvörðun stofnunarinnar í máli kæranda. Í ákvörðun Útlendingastofnunar er notað staðlað form þar sem hægt er að merkja í reiti á bilinu 1-17, þ.e. ástæður þess að umsókn sé synjað. Í ákvörðun kæranda er merkt í reiti 10 og 12 vegna synjunar á umsókn kæranda, þ.e. að upplýsingar sem veittar hefðu verið um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar hefðu ekki verið áreiðanlegar og að rökstudd ástæða hefði verið til að draga í efa áreiðanleika fylgiskjala sem lögð hefðu verið fram, þ.e. hvort þau væru ósvikin, eða sannleiksgildi efnis þeirra. Uppfyllti kærandi þar með ekki skilyrði 20. gr. laga um útlendinga sem og 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.

Með vísan til 21. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 var kæranda jafnframt leiðbeint um að hún gæti óskað eftir skriflegum rökstuðningi innan 14 daga frá tilkynningu ákvörðunar. Samkvæmt upplýsingum frá Útlendingastofnun óskaði kærandi ekki eftir slíkum rökstuðningi hjá Útlendingastofnun og því liggur ekki fyrir í máli kæranda frekari rökstuðningur Útlendingastofnunar vegna synjunar á umsókn hennar.

Í 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga kemur fram að Útlendingastofnun taki ákvörðun um umsókn um útgáfu vegabréfsáritunar og þá sé heimilt að fela utanríkisþjónustunni að taka ákvörðun um slíkar umsóknir. Enn fremur sé heimilt að fela utanríkisþjónustu annars ríkis sem taki þátt í Schengen-samstarfinu að verða við umsókn um vegabréfsáritun. Í athugasemdum með ákvæðinu í frumvarpi að lögum um útlendinga nr. 80/2016 kemur fram að miðað sé við að umsóknir um vegabréfsáritun verði lagðar fram í skrifstofum sendiráða og ræðisskrifstofa erlendis og þær sendar Útlendingastofnun til ákvörðunar. Viðkomandi sendiráð eða ræðisskrifstofa muni síðan gefa áritunina út að fenginni heimild Útlendingastofnunar. Þá kemur fram að gert sé ráð fyrir að ráðherra geti heimilað utanríkisþjónustunni að taka ákvörðun um umsóknir um vegabréfsáritun. Fyrirtækið Visa Facilitation Services Global (VFS) tekur á móti umsóknum um vegabréfsáritanir til Íslands sem lagðar eru fram í Bandaríkjunum fyrir hönd sendiráðs Íslands þar í landi. Umsóknir eru í framhaldinu afhentar sendiráði Íslands sem fer yfir þær í samræmi við framangreinda reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins nr. 810/2009. Þyki skilyrði ekki fyrir hendi til útgáfu áritunar er mál lagt fyrir Útlendingastofnun til ákvörðunar. Komist Útlendingastofnun að þeirri niðurstöðu að umsókn uppfylli ekki skilyrði fyrir veitingu vegabréfsáritunar sem sett eru fram í lögum um útlendinga, reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022 og reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins nr. 810/2009, er umsókninni synjað.

Í gögnum málsins liggur m.a. fyrir afrit úr málaskrá Útlendingastofnunar, Erlendi, þar sem málsmeðferð umsóknar hennar hjá sendiráðinu er rakin. Kemur þar m.a. fram að framlögð gögn um hótelbókanir kæranda hafi verið fölsuð. Þegar kærandi hafi verið spurð í símaviðtali hvort skjölin væru ósvikin hafi kærandi svarað því að öll framlögð skjöl hennar væru ósvikin. Fram kemur að þegar staðfestingarnúmeri fyrstu hótelbókunar kæranda hafi verið flett upp hafi þær upplýsingar birst að bókunin væri frágengin fyrir miðvikudaginn 29. júní til fimmtudagsins 30. júní. Að mati fulltrúa sendiráðsins hafi verið augljóst að búið væri að eiga við skjölin þar sem leturgerðirnar væru ekki þær sömu og upplýsingarnar á skjalinu hefðu ekki komið heim og saman við upplýsingarnar á vefsíðu bókunarsíðunnar Booking. Hinar tvær hótelbókanir kæranda hafi jafnframt verið falsaðar en staðfestingarnúmer þeirra hafi verið rangt og hafi það því ekki verið tengt neinum bókunum. Dagsetningum á skjölunum hafi verið breytt þar sem leturgerðin hafi ekki verið sú sama og á restinni á skjalinu, auk þess sem uppgefin upphæð á skjalinu hafi litið út fyrir að vera fölsuð. Í símaviðtali hafi kærandi verið spurð með hverjum hún hygðist ferðast og hafi hún greint frá því að ætla að ferðast á vegum ferðaþjónustufyrirtækis ásamt sex til átta einstaklingum. Aðspurð hafi kærandi greint frá því að ferðaáform hennar væru að fara í íshella og sjá norðurljósin. Það var mat fulltrúa sendiráðsins, í ljósi framangreinds, að umsókn kæranda skyldi synjað í samræmi við ii-lið a-liðar 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Var umsókn hans synjað af Útlendingastofnun í kjölfarið líkt og áður greinir.

Að mati kærunefndar eru framlögð gögn og þær málsástæður sem kærandi byggir á ekki þess eðlis að ástæða sé til að hnekkja mati Útlendingastofnunar á umsókn hennar um vegabréfsáritun. Við mat á því hefur kærunefnd m.a. litið til þess að þau skjöl sem kærandi kvað vera staðfestingar á hótelbókunum eru ekki í samræmi við ósviknar hótelbókanir sem finna má á vefsíðu bókunarsíðunnar Booking sem kærandi kveðst hafa notað. Er ljóst af bæði leturgerð og framsetningu skjalanna sem kærandi lagði fram að átt hafi verið við þau. Þegar staðfestingarnúmeri fyrsta skjalsins er flett upp á bókunarsíðunni birtast þær upplýsingar að hótelbókunin sé frágengin fyrir miðvikudaginn 29. júní til fimmtudagsins 30. júní sem stemmir við almanaksárið 2022. Staðfestingarnúmer hinna hótelbókananna eru ekki til.

Að öllu framangreindu virtu er það mat kærunefndar að rökstudd ástæða sé til að draga í efa að fylgiskjöl þau sem kærandi lagði fram séu ósvikin eða að innihald þeirra sé rétt sem og áreiðanleika framburðar hennar eða ásetning að fara frá yfirráðasvæði aðildarríkjanna áður en vegabréfsáritunin rennur út, sbr. b-lið 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Hafi þannig verið hætta á að kærandi myndi dveljast lengur á Schengen-svæðinu en henni hafi verið heimilt, sbr. 8. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Verður hin kærða ákvörðun um að synja kæranda um vegabréfsáritun til landsins því staðfest.

 

Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

 

Þorsteinn Gunnarsson, formaður

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum