Hoppa yfir valmynd
20. september 2017 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Mál nr. 238/2017

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 238/2017

Miðvikudaginn 20. september 2017

A

gegn

Tryggingastofnun ríkisins

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur og Jón Baldursson læknir.

Með kæru, dags. 26. júní 2017, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála afgreiðslu Tryggingastofnunar ríkisins frá 21. júní 2017 á umsókn um uppbót/styrk til kaupa á bifreið.

I. Málsatvik og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 26. maí 2017, sótti kærandi um uppbót/styrk til kaupa á bifreið. Með bréfi Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 21. júní 2017, var samþykkt að veita kæranda uppbót að fjárhæð 360.000 kr. vegna kaupa á bifreið.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 26. júní 2017. Með bréfi, dagsettu sama dag, óskaði úrskurðarnefnd eftir greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins ásamt gögnum málsins. Með bréfi, dags. 11. ágúst 2017, barst greinargerð stofnunarinnar og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 14. ágúst 2017. Athugasemdir bárust ekki.

II. Sjónarmið kæranda

Kærandi gerir kröfu um að honum verði veittur styrkur til bifreiðakaupa.

Í kæru segir að kærandi hafi sóst eftir að fá styrk til bifreiðakaupa þar sem hann sé það mikið fatlaður í baki en hafi einungis fengið vilyrði fyrir uppbót. Hann eigi gamlan [...] sem hann þurfi að endurnýja en hann þurfi að hafa [...] til umráða sem sé töluvert dýrari bíll. Rökstuðningur fyrir þörf hans sé í greinargerð frá lækni og sjúkraþjálfara. Kærandi eigi X börn og hann sjái fyrir X manna fjölskyldu og þurfi slíka bifreið til að afla aðfanga og þess sem tilheyri því að reka fjölskyldu. Þá sé kærandi reiðubúinn að koma í skoðun sé eftir því óskað til staðfestingar á alvarleika fötlunar hans.

III. Sjónarmið Tryggingastofnunar ríkisins

Í greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins kemur fram að kærð sé synjun á umsókn um styrk samkvæmt 4. gr. reglugerðar nr. 170/2009 um styrki og uppbætur hreyfihamlaðra einstaklinga vegna bifreiða.

Kærandi hafi þann 26. maí 2017 sótt um endurnýjun á uppbót eða styrk samkvæmt 3. og 4. gr. reglugerðar nr. 170/2009 vegna kaupa og endurnýjunar á bifreið. Umsókninni um styrk samkvæmt 4. gr. hafi verið synjað en umsókn um uppbót samkvæmt 3. gr. reglugerðarinnar hafi verið samþykkt. Kærandi hafi verið með varanlega uppbót vegna bifreiðakaupa frá X.

Þrátt fyrir að í málinu reyni aðallega á 3. mgr. 10. gr. laga nr. 99/2007 um félagslega aðstoð ásamt 3. og 4. gr. reglugerðar nr. 170/2009, þá sé nauðsynlegt að rekja einnig á stuttan hátt hvaða kröfur séu gerðar vegna 1. mgr. 10. gr. laganna og 1. og 2. gr. reglugerðarinnar.

Samkvæmt 1. mgr. 10. gr. laga nr. 99/2007 sé heimilt að greiða til elli- og örorkulífeyrisþega, örorkustyrkþega og umönnunargreiðsluþega uppbót vegna kaupa á bifreið sem bótaþega sé nauðsyn að hafa vegna hreyfihömlunar sé sýnt að bótaþegi geti ekki komist af án uppbótarinnar. Sama gildi um rekstur bifreiðar eigi í hlut elli- eða örorkustyrkþegar, sbr. 2. mgr. sömu lagagreinar.

Í 3. mgr. 10. gr. laga um félagslega aðstoð komi fram að Tryggingastofnun sé heimilt að veita styrk til að afla bifreiðar sem nauðsynleg sé vegna þess að líkamsstarfsemi sé hömluð eða líkamshluta vanti.

Samkvæmt 1. gr. reglugerðarinnar um styrki og uppbætur til hreyfihamlaðra einstaklinga vegna bifreiða sé með líkamlegri hreyfihömlun átt við sjúkdóm eða fötlun sem skerði verulega færni til að komast ferða sinna þannig að göngugeta sé að jafnaði minni en 400 metrar á jafnsléttu. Þar sé fyrst og fremst um að ræða:

„a. lömun eða skertan hreyfileika í ganglimum af völdum sjúkdóms eða fötlunar,

b. mæði vegna hjarta- eða lungnasjúkdóma,

c. annað sambærilegt.“

Þá eigi blindir einnig rétt.

Í 2.–3. mgr. 3. gr. reglugerðar nr. 170/2009 komi fram að heimilt sé að greiða elli- og örorkulífeyrisþega og örorkustyrkþega uppbót vegna kaupa á bifreið sem bótaþega sé nauðsyn að hafa vegna hreyfihömlunar sé sýnt að bótaþegi geti ekki komist af án uppbótarinnar. 2. og 3. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar hljóði svo:

„Uppbót er eingöngu heimilt að veita þegar eftirfarandi skilyrði eru uppfyllt:

1. Hinn hreyfihamlaði hefur sjálfur ökuréttindi eða annar heimilismaður.

2. Nauðsyn á bifreið vegna hreyfihömlunar er ótvíræð og mat á hreyfihömlun liggi fyrir.

Við mat á umsóknum skal fyrst og fremst líta á bifreiðina sem hjálpartæki hreyfihamlaðra og hvort umsækjandi þurfi bifreið til að komast ferða sinna, s.s. til vinnu, í skóla, sækja reglubundna endurhæfingu eða læknismeðferð.“

Strangari kröfur séu gerðar til þeirra sem hljóta styrk samkvæmt 4. gr. reglugerðarinnar, sbr. 3. mgr. 10. gr. laga um félagslega aðstoð. Í þeim tilvikum sé skilyrði að umsækjandi sé verulega hreyfihamlaður og noti til dæmis tvær hækjur og/eða sé bundinn hjólastól að staðaldri. Markmiðið sé að koma til móts við þá sem séu verr settir en þeir sem fái uppbót og þurfi meira rými vegna fötlunar sinnar. Til þess að fá hann þurfi því að sýna fram á að vegna hreyfihömlunarinnar sé aukin þörf fyrir bíl sem sé dýrari en almennt gerist. Skilyrði 2. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar hljóði svo:

„Styrkur skal vera kr. 1.200.000 og skal eingöngu veittur þegar eftirfarandi skilyrði eru uppfyllt:

1. Hinn hreyfihamlaði hefur sjálfur ökuréttindi eða annar heimilismaður.

2. Nauðsyn á bifreið vegna hreyfihömlunar er ótvíræð og mat á hreyfihömlun liggur fyrir.

3. Einstaklingur er verulega hreyfihamlaður og er t.d. bundinn hjólastól og/eða notar tvær hækjur að staðaldri.

4. Mat á ökuhæfni liggur fyrir.

5. Hinn hreyfihamlaði er sjúkratryggður hér á landi, sbr. 10. gr. laga nr. 112/2008 um sjúkratryggingar.“

Við mat á hreyfihömlun þann 30. maí 2017 hafi legið fyrir læknisvottorð B, dags. 19. maí 2017, og skýrsla C sjúkraþjálfara, dags. 18. maí 2017.

Fram komi að kærandi sé bæklaður frá X vegna […] á hrygg og af þeim orsökum séu sífelldir verkir í hrygg frá hálsi og í mjóbak. Einnig komi fram að kærandi sé nær stöðugt í meðferð sjúkraþjálfara og skýrsla sjúkraþjálfarans staðfesti það. Jafnframt segi í gögnunum að kærandi sé nær ófær um að reyna neitt á sig vegna aflleysis og verkja. Jafnframt glími kærandi við lungnavandamál og mæði þannig að göngugeta kæranda sé undir 400 metrum á jafnsléttu.

Ekki sé deilt um að kærandi sé hreyfihamlaður og á þeim forsendum hafi kærandi áfram verið talinn uppfylla skilyrði til þess að fá uppbót samkvæmt 3. gr. reglugerðar nr. 170/2009 en kærandi hafi verið með þá uppbót varanlega síðan 1. janúar 2002. Erfitt sé að ráða annað af kæru en að það séu aðallega fjölskylduaðstæður kæranda sem valdi því að kærandi óski eftir hærri styrk til bifreiðakaupa núna, þ.e. að hann sé með X manna fjölskyldu og þurfi því stærri bifreið, svo sem [...] til að afla aðfanga og annars sem tilheyri því að reka fjölskyldu.

Í 4. gr. reglugerðar nr. 170/2009 sé miðað við að kærandi sé verulega hreyfihamlaður og noti hjálpartæki sem séu sambærileg við til dæmis hjólastól og/eða tvær hækjur. Ljóst sé að samkvæmt nýju læknisvottorði sem liggi fyrir í þessu máli komi fram að kærandi noti ekki nein slík hjálpartæki.

Tryggingastofnun hafi skoðað gögnin að nýju í máli kæranda, þar á meðal skýrslu sjúkraþjálfara og læknisvottorð, sérstaklega með tilliti til þess hvort rétt sé að telja að kærandi sé verulega hreyfihamlaður í skilningi laga nr. 99/2009 um félagslega aðstoð og reglugerðar nr. 170/2009. Það sé mat stofnunarinnar að svo sé ekki miðað við fyrirliggjandi gögn í málinu.

Tryggingastofnun hafi farið ítarlega yfir mál kæranda. Stofnunin telji að miðað við fyrirliggjandi gögn sé ljóst að afgreiðsla málsins hafi að fullu og öllu verið í samræmi við lög um félagslega aðstoð, reglugerð nr. 170/2009 og við fyrri úrskurði úrskurðarnefndar vegna núgildandi reglugerðar og sambærileg ákvæði fyrri reglugerðar nr. 752/2002.

IV. Niðurstaða

Mál þetta varðar afgreiðslu Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 21. júní 2017, á umsókn kæranda um uppbót/styrk til kaupa á bifreið.

Lagaheimild fyrir veitingu uppbótar/styrkja til kaupa á bifreið er að finna í 10. gr. laga nr. 99/2007 um félagslega aðstoð. Í nefndri 10. gr. segir meðal annars svo:

„Heimilt er að greiða til elli- og örorkulífeyrisþega, örorkustyrkþega og umönnunargreiðsluþega uppbót vegna kaupa á bifreið sem bótaþega er nauðsyn að hafa vegna hreyfihömlunar ef sýnt er að bótaþegi geti ekki komist af án uppbótarinnar. Heimilt er að veita uppbót á fimm ára fresti vegna sama einstaklings. [...]

Heimilt er að greiða styrk til að afla bifreiðar sem nauðsynleg er vegna þess að líkamsstarfsemi er hömluð eða vantar líkamshluta. Heimilt er að veita styrk á fimm ára fresti vegna sama einstaklings. Ráðherra setur reglugerð um greiðslur samkvæmt ákvæði þessu, m.a. um sex mánaða búsetuskilyrði.“

Með stoð í 3. málsl. 3. mgr. nefndrar 10. gr. hefur ráðherra sett reglugerð nr. 170/2009 um styrki og uppbætur til hreyfihamlaðra einstaklinga vegna bifreiða.

Í 3. mgr. 1. gr. reglugerðar nr. 170/2009 segir að með líkamlegri hreyfihömlun sé átt við sjúkdóm eða fötlun sem skerðir verulega færni til að komast ferða sinna þannig að göngugeta sé að jafnaði minni en 400 metrar á jafnsléttu. Þar sé fyrst og fremst um að ræða:

„1. lömun eða skertan hreyfanleika í ganglimum af völdum sjúkdóms eða fötlunar,

2. mæði vegna hjarta- eða lungasjúkdóma,

3. annað sambærilegt.“

Samkvæmt 2. tölul. 2. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar er það skilyrði fyrir veitingu uppbótar til bifreiðakaupa að nauðsyn á bifreið vegna hreyfihömlunar sé ótvíræð og að mat á hreyfihömlun liggi fyrir. Þá er í 4. gr. reglugerðarinnar að finna skilyrði sem uppfylla þarf til að Tryggingastofnun ríkisins sé heimilt að greiða styrk til kaupa á bifreið. Í 2. mgr. þeirrar greinar koma eftirtalin skilyrði fram:

„1. Hinn hreyfihamlaði hefur sjálfur ökuréttindi eða annar heimilismaður. […]

2. Nauðsyn á bifreið vegna hreyfihömlunar er ótvíræð og mat á hreyfihömlun liggur fyrir.

3. Einstaklingur er verulega hreyfihamlaður og er til dæmis bundinn hjólastól og/eða notar tvær hækjur að staðaldri.

4. Mat á ökuhæfni liggur fyrir.

5. Hinn hreyfihamlaði er sjúkratryggður hér á landi, sbr. 10. gr. laga nr. 112/2008 um sjúkratryggingar.“

Í máli þessu liggur fyrir að Tryggingastofnun ríkisins hefur samþykkt að veita kæranda uppbót til bifreiðakaupa samkvæmt 3. gr. reglugerðar nr. 170/2009. Kærandi krefst þess aftur á móti að fá samþykktan styrk til bifreiðakaupa samkvæmt 4. gr. reglugerðarinnar. Ágreiningsefni þessa máls snýst um hvort skilyrði 3. tölul. 2. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar sé uppfyllt í tilviki kæranda.

Í greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins kemur fram að það liggi fyrir að kærandi noti ekki hjálpartæki sem þurfi til að skilyrði reglugerðarákvæðisins sé uppfyllt. Við túlkun á umræddu reglugerðarákvæði lítur úrskurðarnefnd velferðarmála aftur á móti til þess að í 3. mgr. 10. gr. laga um félagslega aðstoð er ekki kveðið á um að það sé skilyrði fyrir veitingu styrks til bifreiðakaupa að viðkomandi sé bundinn hjálpartæki. Þá telur úrskurðarnefndin að orðasambandið „til dæmis“ sem kemur fram í reglugerðarákvæðinu vísi til þess að þörfin fyrir hjálpartækin, sem nefnd eru í ákvæðinu, séu tekin sem dæmi til að skýra hvað við sé átt með verulegri hreyfihömlun. Því telur nefndin að það sé ekki fortakslaust skilyrði fyrir veitingu styrks til kaupa á bifreið að viðkomandi sé bundinn hjálpartæki.

Við mat á því hvort skilyrði um verulega hreyfihömlun sé uppfyllt í skilningi 4. gr. reglugerðar nr. 170/2009 þarf að fara fram einstaklingsbundið mat í hverju tilviki fyrir sig. Í vottorði B læknis, dags. 19. maí 2017, segir að kærandi sé bæklaður frá X vegna […] á hrygg og þá sé lungnastarfsemi skert. Fram kemur í vottorðinu að göngugeta kæranda sé að jafnaði minni en 400 metrar á jafnsléttu.

Í rökstuðningi fyrir notkun hjálpartækis segir:

„Miklir verkir í bakinu og þeir leiða niður í mjóhrygginn og niður í ganglimina.

Þrekleysi og göngugeta mjög takmörkuð.

Er mjög háður bíl og á orðið erfitt með að setjast í og fara úr mjög lágum bílum.“

Einnig liggur fyrir skýrsla C sjúkraþjálfara, dags. 18. maí 2017, þar sem segir meðal annars svo:

„Hann er mjög stífur í baki og með mikla skoliosu, er með verki sem koma vegna þessara vandamáls. Talsvert skert hreyfing í baki. Verkir í mjóbaki sem stafa líklega vegna mikillar skerðigar á hreyfigetu í thorax og þar að leiðandi mikið álag á lumbalsvæði.“

Úrskurðarnefnd velferðarmála, sem meðal annars er skipuð lækni, hefur yfirfarið gögn málsins og fær af þeim ráðið að kærandi búi við skerta göngugetu og nokkurt þrekleysi þótt hann noti ekki hjálpartæki. Þrátt fyrir það telur úrskurðarnefndin að kærandi verði ekki talinn hreyfihamlaður til jafns við þá sem bundnir eru hjólastól eða háðir því að nota tvær hækjur að staðaldri. Með hliðsjón af því er það mat nefndarinnar að kærandi uppfylli ekki skilyrði 4. gr. reglugerðar nr. 170/2009 um verulega hreyfihömlun. Afgreiðsla Tryggingastofnunar ríkisins á umsókn kæranda um uppbót/styrk til kaupa á bifreið er því staðfest.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Afgreiðsla Tryggingastofnunar ríkisins á umsókn A, um uppbót/styrk til kaupa á bifreið, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Rakel Þorsteinsdóttir

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum