Hoppa yfir valmynd
9. desember 2009 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Velferðarvaktin varar við áformuðum breytingum á fæðingarorlofi

Velferðarvaktin varar við áformum stjórnvalda um að fresta greiðslu foreldra- og fæðingarorlofs að hluta þar sem að með því sé gengið á rétt barna. Sérstaklega er varað við afleiðingum þessa fyrir börn einstæðra mæðra. Þetta kemur fram í ályktun Velferðarvaktarinnar sem samþykkt var á fundi hennar í gær og afhent Árna Páli Árnasyni, félags- og tryggingamálaráðherra.  

Ályktun Velferðarvaktarinnar er svohljóðandi:

Til félags- og tryggingamálaráðherra og félags- og tryggingamálanefndar Alþingis

Velferðarvaktin varar við áformum stjórnvalda um að fresta greiðslu foreldra- og fæðingarorlofs að hluta til, eins og gert er ráð fyrir í frumvarpi til breytinga á lögum um þetta efni. Velferðarvaktin telur að með þessu sé alvarlega gengið á rétt barna til samvista með foreldrum sínum á mikilvægum tíma í mótunarskeiði þeirra. Þessi áform eru sérstaklega alvarleg gagnvart börnum einstæðra mæðra í þeim tilvikum sem feðurnir nýta að engu leyti rétt sinn til fæðingarorlofs þar sem þeim börnum yrðu einungis tryggðir fimm mánuðir með móður á fyrsta æviári í stað sex mánaða.

Fæðingarorlof hér á landi er með því stysta sem gerist hjá Norðurlandaþjóðum, þrátt fyrir miklar réttarbætur í þágu barna með nýrri löggjöf um foreldra- og fæðingarorlof sem samþykkt var á Alþingi árið 2000.

Stýrihópur Velferðarvaktarinnar hefur áður bent á mikilvægi þess að gæta sérstaklega að þörfum barna og ungmenna í öllum aðgerðum vegna efnahagskreppunnar.

Velferðarvaktin,
8. desember 2009

Ályktun Velferðarvaktarinnar

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum