Hoppa yfir valmynd
7. janúar 2022 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Efling rannsókna á sviði verslunar og þjónustu

Lilja Dögg Alfreðsdóttir, ferðamála-, viðskipta- og menningarmálaráðherra og Sigrún Ösp Sigurjónsdóttir, forstöðumaður Rannsóknaseturs verslunarinnar (RSV) - mynd

Lilja Dögg Alfreðsdóttir, ferðamála-, viðskipta- og menningarmálaráðherra og Sigrún Ösp Sigurjónsdóttir, forstöðumaður Rannsóknaseturs verslunarinnar (RSV), hafa undirritað þjónustusamning til tveggja ára um framlag ráðuneytisins til rannsókna á sviði verslunar og þjónustu.

Með þjónustusamningum er lögð áhersla á að auka rannsóknir og úrvinnslu tölfræðiupplýsinga á sviði verslunar og þjónustugreina og að þær upplýsingar séu birtar stjórnvöldum, almenningi og fyrirtækjum á aðgengilegan hátt. RSV mun annast rannsóknir og tölfræðiúrvinnslu fyrir verslunar- og þjónustugreinar á Íslandi í þeim tilgangi að auka samkeppnishæfni verslunar- og þjónustufyrirtækja. Sérstök áhersla verður lögð á gagnavinnslu sem tengist neyslu ferðamanna hér á landi og mun RSV m.a. greina mánaðarlega tölur um greiðslukortaveltu ferðamanna, sundurliðað eftir útgjaldaliðum.

„Ráðuneyti viðskiptamála hefur verið öflugasti bakhjarl RSV frá upphafi, í þeirri viðleitni að tryggja megi að rannsóknir á sviði verslunar og þjónustu fari fram hérlendis. Til næstu tveggja ára verður aukið við framlag stjórnvalda til RSV m.a. í ljósi örra breytinga á sviði verslunar og þjónustu með tilkomu aukinnar netverslunar og tækninýjunga. Bættar tölfræðiupplýsingar og úrvinnsla þeirra skapa ýmis tækifæri sem leitt geta til þess að efla samkeppnishæfni verslunar og þjónustu á Íslandi,“ segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir, ferðamála-, viðskipta- og menningarmálaráðherra.

 

 

Um rannsóknarsetur verslunarinnar

Rannsóknasetur verslunarinnar (RSV) var stofnað árið 2004. Að því standa Háskólinn á Bifröst, atvinnuvega og nýsköpunarráðuneytið, Samtök verslunar og þjónustu, VR og Bílgreinasambandið. Við stofnun sjálfseignarfélags í ársbyrjun 2014 varð RSV sjálfstæð stofnun með aðskilnaði frá Háskólanum á Bifröst en sömu aðilar komu áfram að þeim stofnsamningi. Starfsemi þess felst í að fylgjast með þróun og breytingum sem varða verslun og neysluhegðun og koma á framfæri upplýsingum um þau til stjórnvalda, fyrirtækja og almennings.

 

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum