Hoppa yfir valmynd
12. júní 2008 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Nýtt hjúkrunarheimili í Kópavogi

Bygging 44 rýma hjúkrunarheimilis sem reist verður við Boðaþing í Kópavogi hefur verið boðin út. Tilboð verða opnuð 22. júlí næstkomandi. Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 1. desember 2009.

Heimilið verður tæpir þrjú þúsund fermetrar að stærð í tveimur tveggja hæða álmum sem verða tengdar þjónustumiðstöð sem þegar er í byggingu á vegum Kópavogsbæjar. Í hvorri álmu verða 22 hjúkrunarrými ásamt tilheyrandi stoðrýmum og starfsmannarýmum. Áætlaður heildarkostnaður við framkvæmdirnar er tæpar 940 milljónir króna. Hlutur ríkisins af kostnaði er 85%, þar af 40% sem greiðast úr Framkvæmdasjóði aldraðra en Kópavogsbær greiðir 15%.

Framkvæmdasýsla ríkisins hefur auglýst eftir tilboðum í framkvæmdirnar fyrir hönd félags- og tryggingamálaráðuneytisins og Kópavogsbæjar og var verkið boðið út á Evrópska efnahagssvæðinu.

Útboðsgögn eru til sýnis og sölu hjá Ríkiskaupum í Borgartúni 7c í Reykjavík og vettvangsskoðun verður haldin 24. júní klukkan 13–14. Tilboð verða opnuð 22. júlí næstkomandi.

Nánari upplýsingar um útboðið eru á heimasíðu Framkvæmdasýslu ríkisins.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum