Hoppa yfir valmynd
14. apríl 2023 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 112/2023-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 112/2023

Föstudaginn 14. apríl 2023

A

gegn

Vinnumálastofnun – Fæðingarorlofssjóði

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur og Þórhildur Líndal lögfræðingur.

Með kæru, dags. 23. febrúar 2023, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála greiðsluáætlun Fæðingarorlofssjóðs, dags. 5. desember 2022.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 20. apríl 2022, sótti kærandi um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði vegna fæðingar barns X. júní 2022. Umsókn kæranda var samþykkt og henni kynnt greiðsluáætlun með ákvörðun, dags. 5. desember 2022, þar sem fram kom að mánaðarleg greiðsla til hennar yrði 199.522 kr. á mánuði miðað við 100% fæðingarorlof.

Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála þann 23. febrúar 2023. Með bréfi, dags. 2. mars 2023, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Fæðingarorlofssjóðs ásamt gögnum málsins. Greinargerð sjóðsins barst með bréfi, dags. 23. mars 2023, og var hún send kæranda til kynningar með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 28. mars 2023. Athugasemdir bárust ekki.

II. Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að Fæðingarorlofssjóður hafi ákveðið að greiða henni lágmarksgreiðslur í þá 9,5 mánuði sem hún verði í fæðingarorlofi. Tekið hafi verið mið af 0 kr. í mánaðartekjur á viðmiðunartímabili. Kærandi geti þess að hún hafi verið á dönskum vinnumarkaði á þeim tíma (með danskar tekjur), en Fæðingarorlofssjóður hafi ekki tekið það með í reikninginn.

Kærandi telur að viðmiðunartekjur séu ekki réttar og að útreikningur Fæðingarorlofssjóðs sé þar með byggður á röngum forsendum.

III. Sjónarmið Fæðingarorlofssjóðs

Í greinargerð Fæðingarorlofssjóðs kemur fram að í 1. mgr. 21. gr. laga nr. 144/2020 um fæðingar- og foreldraorlof (ffl.) sé kveðið á um að foreldri öðlist rétt til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði eftir að hafa verið í samfelldu starfi á innlendum vinnumarkaði í sex mánuði fyrir fæðingardag barns eða fyrir þann tíma þegar barn komi inn á heimili við frumættleiðingu eða töku í varanlegt fóstur.

Í 2. mgr. 21 gr. komi síðan fram að þegar foreldri hefur starfað á innlendum vinnumarkaði að minnsta kosti síðasta mánuðinn á ávinnslutímabili samkvæmt 1. mgr. skuli Vinnumálastofnun, að því marki sem nauðsynlegt sé, taka tillit til starfstímabila foreldris sem starfsmanns eða sjálfstætt starfandi einstaklings í öðru aðildarríki að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið, Norðurlandasamningnum um almannatryggingar, stofnanasamningi Fríverslunarsamtaka Evrópu eða samningi á milli ríkisstjórnar Íslands annars vegar og ríkisstjórnar Danmerkur og heimastjórnar Færeyja hins vegar á ávinnslutímabilinu, enda hafi störf foreldris veitt foreldrinu rétt samkvæmt lögum þess ríkis um fæðingarorlof. Það sama gildi hafi foreldri starfað skemur en síðasta mánuðinn á innlendum vinnumarkaði. Skilyrði sé að foreldri hafi hafið störf á innlendum vinnumarkaði innan tíu virkra daga frá því að það hætti störfum á vinnumarkaði í öðru ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins, í öðru Norðurlandaríki, í öðru EFTA-ríki eða í Færeyjum. Foreldri skuli láta tilskilin vottorð um áunnin starfstímabil og tryggingatímabil í öðru ríki í samræmi við ákvæði samninganna fylgja með umsókn um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði samkvæmt 20. gr.

Óumdeilt sé að kærandi uppfylli skilyrði um að hafa verið samfellt í sex mánuði á innlendum vinnumarkaði fyrir fæðingardag barns samkvæmt 1. og 2. mgr. 21. gr. ffl. og eigi þar með tilkall til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði.

Ágreiningur málsins lúti hins vegar að því hvort Fæðingarorlofssjóði beri að líta til tekna sem kærandi hafi aflað í störfum sínum í Danmörku við útreikning á meðaltali heildarlauna hennar samkvæmt lögum nr. 144/2020 um fæðingar- og foreldraorlof.

Í 1. mgr. 23. gr. ffl. komi fram að mánaðarleg greiðsla úr Fæðingarorlofssjóði til starfsmanns, sbr. 4. tölul. 4. gr., í fæðingarorlofi skuli nema 80% af meðaltali heildarlauna samkvæmt 4. og 5. mgr. og skuli miða við tólf mánaða samfellt tímabil sem ljúki sex almanaksmánuðum fyrir fæðingarmánuð barns eða þann almanaksmánuð sem barn komi inn á heimili við frumættleiðingu eða töku í varanlegt fóstur. Einungis skuli miða við meðaltal heildarlauna fyrir þá almanaksmánuði á viðmiðunartímabili sem foreldri hafi verið á innlendum vinnumarkaði, sbr. einnig 2. mgr. 22. gr., án tillits til þess hvort laun samkvæmt því ákvæði eða reiknað endurgjald samkvæmt 2. mgr. hafi komið til. Aldrei skuli þó miða við færri almanaksmánuði en fjóra við útreikning á meðaltali heildarlauna.

Í 4. mgr. 23. gr. ffl. komi fram að til launa á innlendum vinnumarkaði samkvæmt 1.-3. mgr. teljist hvers konar laun og aðrar þóknanir samkvæmt lögum um tryggingagjald. Jafnframt skuli telja til launa þau tilvik sem teljist til þátttöku á innlendum vinnumarkaði skv. a-[f] lið[um] 2. mgr. 22. gr. Auk þess skuli telja til launa greiðslur samkvæmt a- og b-liðum 5. gr. laga nr. 88/2003 um Ábyrgðasjóð launa.

Þá komi fram í 5. mgr. 23. gr. ffl. að útreikningur á greiðslum til foreldris í fæðingarorlofi skuli byggjast á upplýsingum sem Vinnumálastofnun afli um tekjur foreldra úr skattframtölum, staðgreiðsluskrá og tryggingagjaldskrá skattyfirvalda. Vinnumálastofnun skuli leita staðfestingar hjá skattyfirvöldum á því að upplýsingar úr staðgreiðsluskrá og tryggingagjaldskrá hafi verið í samræmi við álagningu skattyfirvalda vegna viðmiðunartímabila samkvæmt 1.-3. mgr.

Í athugasemdum við 23. gr. frumvarps þess er hafi orðið að lögum nr. 144/2020 segi að „lagt er til að 13. og 15. gr. þágildandi laga nr. 95/2000 verði skipt upp í fleiri ákvæði til að gera efnisatriði aðgengilegri. Í 23. gr. verði þannig kveðið á um viðmiðunartímabil og útreikning á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Breytingarnar eiga ekki að leiða til breytinga á framkvæmd laganna.“ Í athugasemdum við 1. mgr. 23. gr. segi að „þá skuli ekki tekið tillit til tekna sem foreldri hefur unnið til utan innlends vinnumarkaðar heldur einvörðungu á innlendum vinnumarkaði. Í þeim tilvikum þegar foreldri á rétt til fæðingarorlofs skv. 1. mgr. 21. gr. en hefur ekki starfað á innlendum vinnumarkaði á viðmiðunartímabilinu skal það öðlast rétt til lágmarksgreiðslna, í samræmi við 2. og 3. mgr. 24. gr.“ Loks kemur fram í athugasemdum við 4. mgr. 23. gr. að „þá er áfram lögð áhersla á að ekki skuli taka tillit til tekna sem foreldri hefur unnið til utan innlends vinnumarkaðar.“  

Fæðingardagur barns kæranda hafi verið X. júní 2022 og skuli því, samkvæmt framangreindum lagaákvæðum, mánaðarleg greiðsla Fæðingarorlofssjóðs til kæranda reiknast sem 80% af meðaltali heildarlauna hennar þá mánuði sem kærandi hafi verið á innlendum vinnumarkaði tímabilið desember 2020 – nóvember 2021.

Samkvæmt upplýsingum frá Ríkisskattstjóra hafi kærandi talið tekjur sínar fram í samræmi við það sem fram kemur í staðgreiðsluskrá Ríkisskattstjóra um tekjur hennar á framangreindu viðmiðunartímabili og telur Fæðingarorlofssjóður að þar með liggi fyrir staðfesting á því að upplýsingar úr staðgreiðsluskrá hafi verið í samræmi við álagningu skattyfirvalda. Á tímabilinu hafi engar tekjur verið skráðar á kæranda né hafi verið greitt tryggingagjald.

Ágreiningslaust sé að á framangreindu tímabili hafi kærandi einungis starfað í Danmörku, auk þess að hafa fengið greitt vegna fæðingarorlofs í Danmörku hluta tímabilsins. Tekjur þær sem kærandi hafi aflað á þeim tíma teljist hins vegar hvorki til þeirra launa og annarra þóknana samkvæmt lögum nr. 113/1990 um tryggingagjald sem skylt sé að taka mið af við útreikning á meðaltali heildarlauna samkvæmt lögum um fæðingar- og foreldraorlof né til annarra þeirra tilvika sem þar séu tilgreind.

Þegar foreldri eigi rétt til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði samkvæmt 1. mgr. 21. gr. en hafi ekki starfað á innlendum vinnumarkaði á viðmiðunartímabili samkvæmt 1.-3. mgr. 23. gr., líkt og hátti til í máli kæranda, skuli foreldrið öðlast rétt til lágmarksgreiðslna samkvæmt 3. mgr. í samræmi við starfshlutfall þess, sbr. 2. mgr. 24. gr. ffl.

Í athugasemdum við 2. mgr. 24. gr. frumvarpsins er hafi orðið að lögum nr. 144/2020 kemur fram að „þegar foreldri á rétt á greiðslum skv. 21. gr. en hefur ekki starfað á innlendum vinnumarkaði á viðmiðunartímabili skv. 1.-3. mgr. 23. gr. skuli það öðlast rétt til lágmarksgreiðslna skv. 3. mgr. í samræmi við starfshlutfall þess. Á þetta t.d. við um foreldra sem hafa starfað erlendis á viðmiðunartímabili 1.-3. mgr. 23. gr. en hafa síðan hafið störf á innlendum vinnumarkaði fyrir fæðingardag barns og öðlast rétt til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði skv. 1. mgr. 21. gr., sbr. einnig 2. mgr. sömu greinar.“

Þá leiði af 3. mgr. 24. gr. ffl., sbr. reglugerð nr. 1510/2022, að greiðsla í fæðingarorlofi til foreldris í 25–49% starfi í hverjum mánuði skuli þó aldrei vera lægri en sem nemur 143.963 kr. á mánuði og greiðsla til foreldris í 50–100% starfi í hverjum mánuði skuli aldrei vera lægri en sem nemur 199.522 kr. á mánuði vegna barna sem fæðast, eru ættleidd eða tekin í varanlegt fóstur frá og með 1. janúar 2022 til og með 31. desember 2022. Eins og áður segi hafi kærandi verið afgreidd með 199.552 kr. á mánuði miðað við 100% fæðingarorlof, sbr. greiðsluáætlun til hennar, dags. 5. desember 2022.

Ákvæði laga nr. 144/2020 um að einungis skuli miða meðaltal heildarlauna við tímabil sem foreldri hefur verið á innlendum vinnumarkaði séu afdráttarlaus og komi það bæði fram í lögunum sjálfum og í lögskýringargögnum með þeim eins og að framan hefur verið rakið. Við þessar aðstæður beri Fæðingarorlofssjóði og úrskurðarnefnd velferðarmála að virða reglur almenna löggjafans um rétt foreldra til greiðslna úr sjóðnum, enda hafi þær verið settar með stjórnskipulega gildum hætti, sbr. dóm Héraðsdóms Reykjavíkur frá 10. mars 2023 í máli nr. E-582/2021, þar sem fjallað hafi verið um sama úrlausnarefni og eigi við í þessu máli en í tíð eldri laga nr. 95/2000 um fæðingar- og foreldraorlof.

Með vísan til framangreinds telji Vinnumálastofnun - Fæðingarorlofssjóður að greiðsluáætlun til kæranda, dags. 5. desember 2020, beri með sér réttan útreikning á greiðslum til kæranda.

IV. Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs sem tilkynnt var með bréfi, dags. 5. desember 2022, um að mánaðarleg greiðsla til kæranda yrði 199.522 kr. á mánuði miðað við 100% fæðingarorlof. Óumdeilt er í málinu að kærandi hefur áunnið sér rétt til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði á grundvelli 1. mgr. 21. gr. laga nr. 144/2020 um fæðingar- og foreldraorlof. Ágreiningur málsins lýtur á hinn bóginn að því hvort líta eigi til tekna sem kærandi aflaði við störf í Danmörku við útreikning á greiðslum til hennar úr sjóðnum.

Í 1. gr. ffl. er kveðið á um gildissvið laganna, en þar segir að lögin taki til réttinda foreldra á innlendum vinnumarkaði til fæðingar- og foreldraorlofs. Í athugasemdum við 1. gr. frumvarps til laganna kemur fram að lögunum sé ætlað að taka til réttinda foreldra á innlendum vinnumarkaði til fæðingar- og foreldraorlofs. Skilyrðið um þátttöku á innlendum vinnumarkaði kom fyrst inn með fæðingarorlofslögum nr. 57/1987 og er óbreytt í gildandi lögum. Í 2. gr. laga nr. 57/1987 kom fram að: „[f]oreldrar, sem gegna launuðum störfum og eiga lögheimili á Íslandi, eiga rétt á fæðingarorlofi í allt að sex mánuði…“ Ákveðið var að falla frá búsetuskilyrðum þegar eldri lög nr. 95/2000 um fæðingar- og foreldraorlof tóku gildi og í staðinn gert nægjanlegt að foreldri starfi á íslenskum vinnumarkaði. Var það einkum gert með tilliti til aðildar Íslands að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið.

Samkvæmt 1. mgr. 21. gr. ffl. öðlast foreldri rétt til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði eftir að hafa verið samfellt í sex mánuði á innlendum vinnumarkaði fyrir fæðingardag barns. Líkt og fyrr greinir liggur fyrir í málinu að kærandi uppfyllir það skilyrði laganna. Samkvæmt 1. mgr. 22. gr. ffl. felur þátttaka á innlendum vinnumarkaði meðal annars í sér að starfa sem starfsmaður, þ.e. að vinna launuð störf í annarra þjónustu í að minnsta kosti 25% starfshlutfalli í hverjum mánuði.

Í 1. mgr. 23. gr. ffl. segir að mánaðarleg greiðsla Fæðingarorlofssjóðs til starfsmanns í fæðingarorlofi skuli nema 80% af meðaltali heildarlauna. Miða skuli við tólf mánaða samfellt tímabil sem ljúki sex mánuðum fyrir fæðingarmánuð barns eða þann dag sem barn komi inn á heimili við frumættleiðingu eða töku í varanlegt fóstur. Auk þess segir að einungis skuli miða við meðaltal heildarlauna fyrir þá mánuði á viðmiðunartímabili sem foreldri hafi verið á innlendum vinnumarkaði, sbr. einnig 2. mgr. 22. gr., án tillits til þess hvort laun samkvæmt því ákvæði eða reiknað endurgjald samkvæmt 2. mgr. hafi komið til.

Barn kæranda fæddist þann X. júní 2022. Samkvæmt framangreindum lagaákvæðum skal því mánaðarleg greiðsla Fæðingarorlofssjóðs til kæranda reiknast sem 80% af meðaltali heildarlauna hennar þá mánuði sem kærandi var á innlendum vinnumarkaði tímabilið desember 2020 til nóvember 2021. Óumdeilt er að á því tímabili starfaði kærandi í Danmörku.  

Í 2. mgr. 24. gr. ffl. segir að þegar foreldri á rétt til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði samkvæmt 1. mgr. 21. gr. en hefur ekki starfað á innlendum vinnumarkaði á viðmiðunartímabili samkvæmt 1.–3. mgr. 23. gr. skal foreldrið öðlast rétt til lágmarksgreiðslna samkvæmt 3. mgr. í samræmi við starfshlutfall þess.

Þar sem kærandi var ekki á innlendum vinnumarkaði á viðmiðunartímabilinu verður að líta til framangreindrar 2. mgr. 24. gr. ffl. og fallast á að kærandi hafi eingöngu öðlast rétt til lágmarksgreiðslna, líkt og gert er í hinni kærðu ákvörðun. Hvorki í lögum um fæðingar- og foreldraorlof né reglugerð nr. 1510/2022 er að finna heimild til að taka mið af tekjum kæranda á erlendum vinnumarkaði eins og kærandi óskar eftir. Þá benda lögskýringargögn, svo sem rakið er að framan af hálfu Fæðingarorlofssjóðs, eindregið til að eingöngu skuli miða við tekjur sem aflað er á innlendum vinnumarkaði á áðurnefndu viðmiðunartímabili. Að mati úrskurðarnefndar er því ljóst að útreikningur Fæðingarorlofssjóðs í greiðsluáætlun, dags 5. desember 2022, er í samræmi við ákvæði laga nr. 144/2020. Hin kærða ákvörðun er því staðfest.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs, dags. 5. desember 2022, um mánaðarlegar greiðslur til A, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Kári Gunndórsson

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum