Hoppa yfir valmynd
25. október 2018 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 448/2018 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Þann 25. október 2018 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 448/2018

í stjórnsýslumálum nr. KNU18090032 og KNU18090031

 

Kæra […],

[…]

og barna þeirra

á ákvörðunum

Útlendingastofnunar

 

I.          Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 19. september 2018 kærði einstaklingur er kveðst heita […], vera fædd […] og vera ríkisborgari Íraks (hér eftir K) og einstaklingur er kveðst heita […], vera fæddur […] og vera ríkisborgari Íraks (hér eftir M) ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 27. og 28. ágúst 2018 um að taka ekki til efnismeðferðar umsóknir kærenda og barna þeirra, […], fd. […], ríkisborgara Íraks (hér eftir A), […], fd. 15. nóvember 2012, ríkisborgara Íraks (hér eftir B) og […], fd. […], ríkisborgara Íraks (hér eftir C), um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa þeim frá landinu.

Þess er krafist aðallega að ákvarðanir Útlendingastofnunar verði felldar úr gildi og að stofnuninni verði gert að taka umsóknir kærenda um alþjóðlega vernd til efnislegrar meðferðar með vísan til 2. mgr. 36. gr. og 3. mgr. 36. gr., sbr. 42. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Til vara er gerð krafa um að hinar kærðu ákvarðanir verði felldar úr gildi og Útlendingastofnun verði gert að taka málin til meðferðar að nýju.

Fyrrgreindar ákvarðanir eru kærðar á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og bárust kærurnar fyrir lok kærufrests.

II.         Málsmeðferð

Kærendur lögðu fram umsóknir um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 18. mars 2018. Þar sem kærendur höfðu fengið útgefna vegabréfsáritun til Frakklands, með gildistíma frá 15. mars til 8. apríl 2018, var þann 6. apríl 2018 beiðni um viðtöku kærenda og umsókna þeirra um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda í Frakklandi, sbr. 2. eða 3. mgr. 12. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Þann 9. apríl 2018 barst svar frá frönskum yfirvöldum þess efnis að þau samþykktu viðtöku kærenda á grundvelli 2. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Útlendingastofnun ákvað þann 27. og 28. ágúst 2018 að taka ekki umsóknir kærenda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að vísa þeim frá landinu. Ákvarðanirnar voru birtar fyrir kærendum þann 4. september 2018 og kærðu þau ákvarðanirnar þann 19. september 2018 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kærenda, ásamt fylgigögnum, barst kærunefnd 28. september 2018.

 

III.          Ákvarðanir Útlendingastofnunar

Niðurstaða ákvarðana Útlendingastofnunar var sú að umsóknir kærenda um alþjóðlega vernd yrðu ekki teknar til efnismeðferðar hér á landi og þau skyldu flutt til Frakklands. Flutningur kærenda til Frakklands fæli ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 3. og 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Þá var það niðurstaða stofnunarinnar að kærendur hefðu ekki slík tengsl við Ísland eða að sérstakar ástæður væru fyrir hendi þannig að ástæða væri til að beita ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærendur voru ekki talin í sérstaklega viðkvæmri stöðu sem áhrif hefði á mál þeirra. Var umsókn kærenda um alþjóðlega vernd því synjað um efnismeðferð, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærendur skyldu yfirgefa Ísland og bæri að senda þau til Frakklands.

Í ákvörðunum Útlendingastofnunar í málum A, B og C kom fram að það væri niðurstaða stofnunarinnar, með vísan til niðurstöðu í málum foreldra þeirra, að gættum ákvæðum samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, laga um útlendinga og barnaverndarlaga, að hagsmunum þeirra væri best borgið með því að fylgja foreldrum sínum til Frakklands.

IV.          Málsástæður og rök kærenda

Í sameiginlegri greinargerð kærenda kemur fram að þau vilji ekki fara aftur til Frakklands. Kærendur kveði framtíð þeirra þar í landi vera óljósa og þau hafi aðeins dvalist þar í einn eða tvo daga. Þá hafi verið skotið á heimili kærenda í heimaríki þar sem K og börn þeirra hafi verið sofandi. Kærendur K og M kveði að umrædd árás hafi haft neikvæð áhrif á andlega líðan þeirra. Kærandi K kveði líkamlega heilsu sína í lagi en hún sé m.a. þreytt andlega, hafi áhyggjur, sé hrædd, kvíðin, eigi erfitt með svefn og hafi litla matarlyst. Kærandi M kveði að heilsufar hans sé ekki gott, hann sé m.a. með kviðslit, vandamál í hné, hann finni til svima og eigi stundum erfitt með að anda þegar hann sé áhyggjufullur. Kærandi M kveði að hann hafi ítrekað verið beittur ofbeldi og nefni hann sérstaklega atvik þegar hann hafi verið laminn við að mynda mótmæli en hann hafi unnið sem blaða- og myndatökumaður í heimaríki. Þá kveði M að hann hafi verið í stöðugri hættu við störf sín í heimaríki og ávallt verið í nálægð við dauðann. Sálfræðingur hafi metið andlega heilsu K og M og hafi niðurstaða matsins verið sú að kærendur séu að glíma við mikla vanlíðan og hafi verið vísað áfram til læknis til að meta lyfjagjöf. Þá séu fyrirhuguð áframhaldandi viðtöl hjá sálfræðingi.

Í greinargerð sinni gera kærendur nokkrar athugasemdir við rannsókn mála þeirra hjá Útlendingastofnun. Kærendur geri m.a. athugasemd við að Útlendingastofnun hafi ekki lagt fram þá skimunarlista sem móttökuteymi stofnunarinnar hafi lagt fyrir K og M. Þá komi áðurnefnd framkvæmd hvergi fram í endurritum viðtala við kærendur hjá þjónustuteymi Útlendingastofnunar sem fram hafi farið 19. mars 2018. Þá geri kærendur athugasemd við að í hinni kærðu ákvörðun komi fram að engin læknisfræðileg gögn hafi verið lögð fram í málinu varðandi greiningu á vanda kærenda. Stofnuninni hafi þó yfirsést að kærendum hafi aldrei verið tryggður tími hjá viðeigandi lækni fyrr en eftir að ákvörðun hafi verið tekin í máli þeirra hjá stofnuninni.

Í greinargerð kærenda er ítarleg umfjöllun um aðstæður umsækjenda um alþjóðlega vernd í Frakklandi og vísað til fjölda skýrslna máli þeirra til stuðnings. Í alþjóðlegum skýrslum komi m.a. fram að mikil aukning hafi verið á umsóknum um alþjóðlega vernd þar í landi, að hlutfall neikvæðra niðurstaðna umsókna hafi aukist auk þess sem það taki langan tíma fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd að komast inn í kerfið vegna tafa við skráningu umsókna. Þá fari biðin eftir úrræðum langt yfir veitta fresti. Búsetuúrræði fyrir umsækjendur séu í lamasessi og margir umsækjendur hafist við í hreysum. Sökum álags á kerfinu sé ekki hægt að útvega öllum búsetu sem á þurfi að halda og hafi umsækjendum verið komið fyrir í tímabundnum úrræðum s.s. miðstöðvum fyrir heimilislausa auk þess sem aðrir þurfi að sofa á götunni.

Þá vísa kærendur til skýrslna um ástand mannréttindamála og stefnu franskra stjórnvalda í innflytjendamálum. Kærendur bendi á að opinber aðstoð við umsækjendur um alþjóðlega vernd sé af skornum skammti. Umsækjendur eigi almennt rétt á húsnæði, grunnframfærslu og heilbrigðisþjónustu, en þrátt fyrir það hafi frönsk stjórnvöld ekki getað séð öllum fyrir aðstoðinni. Frönsk stjórnvöld hafi gengið hart fram í því skyni að loka ólöglegum búsetuúrræðum og þekkist þess dæmi að svefnpokar, teppi og aðrar eigur umsækjenda um alþjóðlega vernd séu gerðar upptækar. Kærendur bendi á að umsækjendur um alþjóðlega vernd eigi rétt á heilbrigðisþjónustu en í reynd geti slík þjónusta verið takmörkunum háð auk þess sem kærendur bendi á annmarka á veittri sálfræðiþjónustu. Samkvæmt frönskum lögum eigi öll börn rétt á menntun en vegna tungumálaerfiðleika, staðsetninga móttökumiðstöðva á afskekktum svæðum og kröfu þess efnis að barnið geti sannað heimilisfang, sé aðgengi barna að skólum oft lítið sem ekkert. Kærendur bendi á að færst hafi í aukana að umsækjendur um alþjóðlega vernd séu hnepptir í varðhald, þ. á m. barnafjölskyldur, og aðstæður í varðhaldsmiðstöðvum hafi verið gagnrýndar. Þó séu sérstakar vistarverur innan varðhaldsmiðstöðvanna fyrir fjölskyldur og börn séu sett í varðhald með foreldrum sínum. Þá glími innflytjendur við mismunun í Frakklandi sökum uppruna síns og ofbeldi gegn innflytjendum, sérstaklega múslimum, hafi aukist mikið í kjölfar nýlegra hryðjuverkaárása í Frakklandi.

Til stuðnings kröfu kærenda um efnislega meðferð umsókna þeirra er vísað m.a. til sérstakra ástæðna, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Á stjórnvöldum hvíli rík skylda til að leggja heildstætt mat á einstaklingsbundnar aðstæður kæranda og þær líkamlegu og andlegu afleiðingar sem endursending gæti haft í för með sér fyrir hann, sbr. ummæli í úrskurði kærunefndar útlendingamála frá 9. maí 2017 í máli nr. 266/2017. Kærendur bendi á að þau séu hjón með þrjú börn og við mat á viðkvæmri stöðu þeirra sé mikilvægt að taka mið af frásögnum þeirra af ofbeldi og ofsóknum í heimaríki og þeim afleiðingum sem það hafi haft á heilsufar þeirra. Af framburði kærenda að dæma sé margt sem bendi til þess að þau falli í hóp einstaklinga í sérstaklega viðkvæmri stöðu. Þá hafi aðstæður umsækjenda um alþjóðlega vernd í Frakklandi áður verið lýst en víða megi finna bresti í franska hæliskerfinu og kærendur verði jafnvel hnepptir í varðhald. Verði því að telja að uppi séu sérstakar ástæður í máli kærenda í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga sem skyldi íslensk stjórnvöld til að taka mál þeirra til efnislegrar meðferðar.

Þá gera kærendur jafnframt athugasemd við að í hinni kærðu ákvörðun sé vísað til 32. gr. a reglugerðar nr. 276/2018 um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 í tengslum við 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Skilyrði reglugerðarinnar varðandi sérstakar ástæður séu mun þrengri en kveðið sé á um í athugasemdum með frumvarpi því sem varð að lögum nr. 80/2016 um útlendinga. Lögin geri það ekki að skilyrði að umsækjendur um alþjóðlega vernd séu haldnir skyndilegum, lífshættulegum sjúkdómi til þess að teljast til sérstaklega viðkvæmra einstaklinga. Það sé því hvergi að finna kröfur um hátt alvarleikastig erfiðleika, alvarlega mismunun, verulegar og óafturkræfar neikvæðar afleiðingar á andlega eða líkamlega heilsu eða að meðferð sjúkdóms sé aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki. Þessar kröfur í hinum kærðu ákvörðunum Útlendingastofnunar hafi því enga stoð í lögum og gangi gegn lögmætisreglunni.

Í greinargerð kærenda er að finna ítarlega umfjöllun um réttarstöðu barna þeirra sem barna á flótta. Í því sambandi vísa kærendur m.a. til upplýsinga frá Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni (e. World Health Organization), 2. mgr. 1. gr. barnalaga nr. 76/2003 og 1. mgr. 3. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013. Þá vísa kærendur til almennra athugasemda barnaréttarnefndar Sameinuðu þjóðanna nr. 14, ákvæða laga um útlendinga er varða börn, ákvæða tilskipana Evrópuþingsins og ráðsins og ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar þar að lútandi.

Kærendur gera jafnframt athugasemdir við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun, einkum að rannsókn málsins hafi ekki verið í samræmi við 10. gr. stjórnsýslulaga, 2. mgr. 23. gr. og 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga.

V.           Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í 1. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef heimilt sé að krefja annað ríki sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar um að taka við umsækjanda.

Fyrir liggur í máli þessu að frönsk stjórnvöld hafa samþykkt viðtöku á kærendum á grundvelli 2. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar, en Ísland skuldbatt sig til að fylgja reglugerðinni með samningi Íslands, Noregs og Evrópusambandsins frá 19. janúar 2001, um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram í aðildarríki eða á Íslandi eða í Noregi. Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Samþykki Frakklands er byggt á því að kærendur hafi verið með gilda vegabréfsáritun til Frakklands. Eru skilyrði c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga uppfyllt.

Í 2. mgr. 36. gr. kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Í 32. gr. a-b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í 32. gr. a kemur m.a. fram að með sérstökum ástæðum sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan, aðrar en þær sem myndu að jafnaði rúmast innan 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þá er m.a. nefnt í dæmaskyni ef umsækjandi mun eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, ef umsækjandi af sömu ástæðu getur vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki og ef umsækjandi glímir við mikil og alvarleg veikindi sem meðferð við er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki.

Þá er í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga tekið fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því landi sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Við mat á því hvort senda eigi umsækjanda um alþjóðlega vernd til ríkis, sem hefur samþykkt að taka við honum á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar, ber stjórnvöldum að leggja sjálfstætt mat á hvort aðstæður þar brjóti gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem kveður á um að enginn maður skuli sæta pyndingum eða ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið lagt til grundvallar að sú meðferð, sem einstaklingur eigi von á, verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til þess að falla undir 3. gr. sáttmálans. Við það mat verði að horfa til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar og í einhverjum tilvikum kyns, aldurs og heilsufars viðkomandi. Þá ber stjórnvöldum að leggja mat á hvort málsmeðferð vegna umsókna um alþjóðlega vernd tryggi umsækjendum raunhæfa leið til að ná fram rétti sínum, sbr. 13. gr. sáttmálans. Í samræmi við framkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu skal mat á meðferð umsókna um alþjóðlega vernd og móttöku og aðbúnaði umsækjenda í viðtökuríki taka mið af einstaklingsbundnum aðstæðum í hverju máli.

Réttarstaða barna

Staða barna á flótta ræðst af viðeigandi reglum í þjóðarétti og landsrétti. Í 22. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, segir í fyrsta lagi að aðildarríki skuli gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að barn sem leiti eftir réttarstöðu sem flóttamaður, eða sem talið sé flóttamaður samkvæmt viðeigandi reglum eða starfsháttum þjóðaréttar eða landslaga fái, hvort sem það sé í fylgd foreldra eða annarra eða ekki, viðeigandi vernd og mannúðlega aðstoð við að nýta sér þau réttindi sem við eigi og kveðið sé á um í samningnum.

Í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 segir að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með það sem því sé fyrir bestu að leiðarljósi, því tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í málum sem það varði og að tekið sé tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við ákvörðun sem sé háð mati stjórnvalds skuli huga að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska og möguleika þess til að sameinast fjölskyldu sinni. Í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra skal það almennt viðurkennt að hagsmunum barns sé best borgið með því að tryggja fjölskylduna sem heild og rétt hennar til að vera saman.

Almennt er viðurkennt að eðlilegur þroski barns sé best tryggður með því að vernda fjölskylduna. Í gögnum málsins, þ. á m. viðtölum við K og M hjá Útlendingastofnun, kemur m.a. fram að almennt séu A, B og C við góða heilsu og að fjölskyldutengsl þeirra við foreldra sína séu góð. Það er því mat nefndarinnar að allt bendi til þess að hagsmunum A, B og C sé best borgið með því að tryggja rétt fjölskyldunnar til að vera saman og að réttarstaða A, B og C verði ákvörðuð í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar. Ljóst er að A, B og C eru í fylgd foreldra sinna og haldast úrskurðir þeirra því í hendur.

Greining á hvort kærendur séu í sérstaklega viðkvæmri stöðu

Kærendur eru hjón með þrjú börn, […], […] og […] ára. Samkvæmt gögnum málsins hefur kærandi K m.a. greint frá andlegum vandamálum. Þá upplifi K alvarleg einkenni þunglyndis, kvíða og streitu. Þá hefur kærandi M greint frá andlegum og líkamlegum vandamálum. Hann sé m.a. með kviðslit og vandamál í hné. Þá upplifi M einnig alvarleg einkenni þunglyndis, kvíða og streitu en hafi fengið ávísað lyfjum vegna þessa. Af gögnum málsins, þ. á m. viðtölum M og K hjá Útlendingastofnun eru A, B og C við góða líkamlega og andlega heilsu.

Þrátt fyrir að gögn málsins beri með sér að hluti kærenda glími við ýmis andleg og líkamleg veikindi er það mat kærunefndar að gögn málsins beri ekki með sér að heilsufar kærenda sé svo alvarlegt að þau teljist í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður og málsmeðferð í Frakklandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð í Frakklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • 2017 Country Reports on Human Rights Practices – France (United States Department of State, 20. apríl 2018),

  • 4th quarterly activity report 2016 by Nils Muižnieks, Council of Europe Commissioner for Human Rights (1 October to 31 December 2016) (Council of Europe, 22. febrúar 2017),
  • Amnesty International Report 2017/18 – France (22. febrúar 2018),
  • Annual Report 2017 – Paris (International Committee of the Red Cross (ICRC), 13. júní 2018),

  • Asylum Information Database, Country Report – France (European Council on Refugees and Exiles, 13. febrúar 2018),
  • Dublin II Regulation & Asylum in France – Guide for Asylum Seekers – 2012 (Forum réfugiés, European Refugee Fund, 2012),
  • First Steps for Demanding Asylum (Dom‘Asile, nóvember 2015),
  • Freedom in the World 2018 – France (Freedom House, 28. maí 2018),

  • Guide for Asylum Seekers in France (Ministry of the Interior, General Directorate for Foreign Nationals in France, 1. nóvember 2015),
  • Stjórnarskrá Frakklands (aðgengileg á ensku á vefsíðu stjórnlagaráðs Frakklands, http://www.conseil-constitutionnel.fr/),
  • Universal Periodic Review. National report submitted in accordance with paragraph 5 of the annex to Human Rights Council resolution 16/21 – France (United Nations Human Rights Council, 13. nóvember 2017),

  • Vefsíða innanríkisráðuneytis Frakklands (https://www.police-nationale.interieur.gouv.fr) og
  • World Report 2018 – European Union (Human Rights Watch, 18. janúar 2018).

Í framangreindum gögnum kemur fram að þegar umsækjendur um alþjóðlega vernd eru sendir til Frakklands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar fær umsókn þeirra hefðbundna meðferð í hæliskerfi landsins. Umsækjendur geta sótt um alþjóðlega vernd hjá stjórnsýslustofnun (f. Préfecture) eða þar til bærum undirstofnunum. Umsækjendur um alþjóðlega vernd eiga rétt á viðtali hjá sérstakri stofnun (f. Office français de l’immigration et de l’intégration (OFII)) þar sem fram fer greining á því hvort umsækjandi sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu eða hafi sérstakar þarfir. Önnur stjórnsýslustofnun, OFPRA (f. Office français de protection des réfugiés et des apatrides), tekur svo efnisákvörðun í málinu. Umsækjendur sem greindir hafa verið í sérstaklega viðkvæmri stöðu af OFII eiga rétt á sérstökum ráðstöfunum varðandi málsmeðferð sína og móttökuaðstæður. Til að mynda eiga þolendur pyndinga eða ofbeldis rétt á sérstökum ráðstöfunum varðandi viðtalið sitt og starfsmenn OFPRA eru sérstaklega þjálfaðir til að vinna með umsækjendum í sérstaklega viðkvæmri stöðu. Jafnframt getur OFPRA forgangsraðað málsmeðferð umsókna frá viðkvæmum einstaklingum. Þá eru læknisfræðileg gögn notuð til stuðnings málsástæðum umsækjenda og gögnin notuð til að sannreyna frásögn umsækjanda.

Umsækjendur sem hafa fengið synjun á umsókn sinni hjá OFPRA geta kært niðurstöðuna til sérstaks stjórnsýsludómstóls (f. Cour nationale du droit d’asile (CNDA)). Kæra til dómstólsins frestar almennt réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar, en dómstóllinn endurskoðar bæði málsástæður og lagarök í hverju máli. Niðurstöðu CNDA er hægt að áfrýja til héraðsdómstóls (f. Conseil d’Etat) þar sem fram fer formleg endurskoðun. Þeim umsækjendum sem synjað hefur verið um alþjóðlega vernd eiga möguleika á því að leggja fram viðbótarumsókn um alþjóðlega vernd. Ef nýjar upplýsingar eða gögn liggja fyrir í máli kæranda geta skilyrði viðbótarumsóknar verið uppfyllt. Þá eiga umsækjendur þess kost að leggja fram beiðni fyrir Mannréttindadómstól Evrópu um bráðabirgðaráðstöfun skv. 39. gr. málsmeðferðarreglna dómstólsins, telji þeir endanlega niðurstöðu um synjun á umsókn um alþjóðlega vernd hafa í för með sér hættu á ofsóknum eða meðferð sem brýtur í bága við ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu.

Umsækjendur um alþjóðlega vernd í Frakklandi eiga almennt ekki rétt á lögfræðiaðstoð við að leggja fram umsókn um alþjóðlega vernd. Þegar umsókn hefur verið lögð fram eiga umsækjendur rétt á gistiplássi í móttökumiðstöð en í framangreindum skýrslum kemur fram að umsækjendur um alþjóðlega vernd í Frakklandi eiga möguleika á því að fá annaðhvort húsaskjól í hefðbundnum móttökumiðstöðvum eða í tímabundnum gistiskýlum á vegum stjórnvalda á meðan þeir eru á biðlista eftir plássi í móttökumiðstöð. Þeir sem endursendir eru til Frakklands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar geta leitað til CAO (f. Centre d’accueil et d’orientation) eða PRAHDA (f. d’accueil et d’hébergement des demandeurs d’asile) móttökumiðstöðvanna. Auk þess standa þeim til boða önnur tímabundin neyðarúrræði á meðan beðið er eftir plássi í móttökumiðstöðvum. Í CAO móttökumiðstöðvunum fá umsækjendur aðstoð félagsráðgjafa í tengslum við umsókn sína um alþjóðlega vernd. Fái þeir ekki pláss í slíkum miðstöðvum geta umsækjendur leitað til frjálsra félagasamtaka sem bjóða meðal annars upp á lögfræðiaðstoð í tengslum við umsóknir um alþjóðlega vernd. Þá mega umsækjendur hafa lögfræðing eða annan fulltrúa frá frjálsum félagasamtökum með sér í viðtölum hjá OFII og OFPRA. Þegar umsækjendur kæra neikvæða niðurstöðu til CNDA stjórnsýsludómstólsins eigi þeir rétt á lögfræðiaðstoð sem í mörgum tilvikum er gjaldfrjáls. Í framangreindum gögnum segir að umsækjendur um alþjóðlega vernd eigi rétt á því að hafa túlk viðstaddan við málsmeðferð þrátt fyrir að það geti verið vandkvæðum bundið að fá túlkaþjónustu þegar um sjaldgæf tungumál er að ræða.

Í ársskýrslu Asylum Information Database kemur m.a. fram að fjölskyldur og einstæðir foreldrar með börn njóta forgangs þegar kemur að úthlutun á húsnæði og margar móttökumiðstöðvar eru sérstaklega skipulagðar til að taka á móti fjölskyldum. Að öllu jöfnu eru fjölskyldur vistaðar saman í húsnæði á meðan umsókn um alþjóðlega vernd er til meðferðar. Sé nauðsynlegt að vista fjölskyldur í neyðarskýli eru herbergi kynjanna stundum aðskilin í slíkum skýlum. Þá eigi börn umsækjenda um alþjóðlega vernd sama rétt og frönsk börn til endurgjaldslausrar menntunar fram til 16 ára aldurs. Þrátt fyrir þetta eru hindranir í framkvæmd, svo sem skortur á frönskukunnáttu barnanna, auk þess sem erfitt getur reynst að koma börnum í skóla sem e.t.v. hafa ekki sótt skóla áður vegna aðstæðna. Þá kemur fram í framangreindum gögnum að börn, sem ekki eru frönskumælandi, taki próf sem metur þörf þeirra fyrir sérhæfðari kennslu sem undirbýr þau til þess að geta hlotið menntun við hæfi.

Í fyrrgreindum skýrslum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður og aðbúnað umsækjenda í Frakklandi kemur fram að umsækjendum um alþjóðlega vernd þar í landi er tryggður aðgangur að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu í frönskum lögum. Umsækjendur sem sæta hefðbundinni málsmeðferð hafa aðgang að heilbrigðisþjónustu á grundvelli sjúkratryggingakerfisins þar í landi (f. Protection Universelle Maladie (PUMA)) en þeir þurfa þó að sækja um aðgang að kerfinu. Jafnvel þótt umsækjendur séu ekki komnir með aðgang að sjúkratryggingakerfinu geti þeir engu að síður leitað til opinberra heilsugæslustöðva (f. Permanence d’accès aux soins de santé (PASS)) sem séu til staðar á öllum opinberum spítölum og fengið þar aðgang að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu. Þá eiga umsækjendur rétt á því að fá þjónustu sálfræðinga og geðlækna greidda af yfirvöldum og einnig veita frjáls félagasamtök í nokkrum borgum í Frakklandi einstaklingum í viðkvæmri stöðu geðheilbrigðisþjónustu. Jafnframt fer í öllum tilvikum fram mat á því hvort umsækjandi teljist vera einstaklingur í viðkvæmri stöðu, sérstaklega þegar um börn er að ræða og fjölskyldur.

Að mati kærunefndar bera gögn málsins með sér að í Frakklandi sé almennt veitt fullnægjandi vernd gegn brottvísun umsækjenda um alþjóðlega vernd til landa þar sem einstaklingar eiga á hættu að verða fyrir ofsóknum og lífi þeirra og frelsi ógnað (non-refoulement). Er þá sérstaklega litið til þess að þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda eindregið til þess að málsmeðferð franskra yfirvalda sé fullnægjandi og veiti umsækjendum um alþjóðlega vernd viðunandi úrræði til að tryggja að réttur sé ekki á þeim brotinn og að einstaklingsbundið mat sé lagt á aðstæður þeirra.

Athugun kærunefndar á aðstæðum umsækjenda um alþjóðlega vernd í Frakklandi hefur ekki leitt í ljós gögn sem gefa tilefni til að líta svo á að aðstæður eða móttökuskilyrði þeirra þar í landi séu þess eðlis að hætta sé á að endursending kærenda þangað brjóti í bága við 1. eða 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga eða 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þá benda öll gögn til þess að kærendum séu tryggð úrræði til að leita réttar síns í Frakklandi bæði fyrir landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Enn fremur er haft til hliðsjónar að Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur ekki lagst gegn endursendingu umsækjenda um alþjóðlega vernd til Frakklands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar.

Einstaklingsbundnar aðstæður kærenda

Samkvæmt gögnum málsins glíma kærendur við ýmsa heilsufarskvilla. Það er þó mat kærunefndar, á grundvelli gagna málsins, að aðstæður kærenda séu ekki slíkar að þau teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi sem meðferð sé aðgengileg við hér á landi en ekki í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá er það mat nefndarinnar að ekki sé fyrir hendi ástæða í máli kærenda er varðar heilsufar þeirra sem sé svo einstaklingsbundin og sérstök að ekki verði framhjá henni litið, sbr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Af þeim gögnum sem nefndin hefur kynnt sér um aðstæður og aðbúnað umsækjenda um alþjóðlega vernd í Frakklandi má ráða að umsækjendur hafa aðgang að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu og er það mat kærunefndar að kærendur komi til með að hafa aðgang að fullnægjandi heilbrigðisþjónustu þar í landi. Að mati kærunefndar bera gögn málsins ekki með sér að kærendur muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að kærendur geti af sömu ástæðu vænst þess að staða þeirra verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga.

Mál barna kærenda hafa verið skoðuð í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar. Með vísan til þess sem áður hefur verið rakið um aðstæður barnafjölskyldna í leit að alþjóðlegri vernd í Frakklandi telur kærunefnd ljóst að flutningur kærenda til Frakklands hafi ekki í för með sér hættu á að fjölskyldan aðskiljist, sbr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Með vísan til niðurstöðu í máli kærenda og umfjöllunar um aðstæður barna sem sækja um alþjóðlega vernd í Frakklandi er það mat kærunefndar að flutningur fjölskyldunnar til Frakklands sé í samræmi við öryggi, velferð og félagslegan þroska barna kærenda, sbr. 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga.

Í ljósi alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsóknir barna kærenda um alþjóðlega vernd hér á landi og senda þau til Frakklands með vísan til c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga enda er það niðurstaða nefndarinnar að það sé ekki andstætt réttindum barna kærenda að umsóknir verði ekki teknar til efnismeðferðar hér á landi.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kærenda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál þeirra verði tekin til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærendur kváðust í viðtölum hjá Útlendingastofnun þann 30. apríl og 3. maí 2018 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að þau hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kærenda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að þau sóttu um alþjóðlega vernd hér á landi, en þau lögðu fram umsókn sína þann 18. mars 2018.

Gildistaka breytinga á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017

Með reglugerð nr. 276/2018, sem tók gildi 14. mars 2018, voru gerðar breytingar á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017. Sem fyrr segir telja kærendur m.a. breytingarreglugerðina skorta lagastoð.

Tilvitnuð ákvæði reglugerðar nr. 276/2018 eru sett með stoð í 4. mgr. 36. gr. laga um útlendinga þar sem segir að ráðherra hafi heimild til að setja reglugerð um framkvæmd 36. gr. laganna. Löggjafinn hefur framselt ráðherra vald til að útfæra framangreind ákvæði nánar og ljóst að reglugerðina skortir ekki lagastoð. Eins og að framan greinir hefur kærunefnd lagt einstaklingsbundið mat á umsóknir kærenda og komist að niðurstöðu um að synja þeim um efnismeðferð með vísan til ákvæða laga um útlendinga eins og þau hafa verið útfærð í reglugerð um útlendinga. Er niðurstaða í málinu byggð á túlkun kærunefndar á framangreindum ákvæðum og sjónarmiðum sem nefndin telur málefnaleg eins og að framan hefur verið lýst. Að mati kærunefndar er því ekki tilefni til frekari umfjöllunar um þessar athugasemdir kærenda.

Reglur stjórnsýsluréttar

Í greinargerð kærenda er gerð athugasemd við rannsókn Útlendingastofnunar með vísan til rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, 2. mgr. 23. gr. og 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga. Kærunefnd hefur farið yfir hinar kærðu ákvarðanir og málsmeðferð stofnunarinnar og telur ekki tilefni til þess að gera athugasemdir við hana. Kærunefnd hefur endurskoðað alla þætti málsins og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun.

Frávísun

Kærendur komu hingað til lands þann 18. mars 2018 og sóttu um alþjóðlega vernd þann sama dag. Eins og að framan greinir hefur umsókn þeirra um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hafa þau því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn þeirra um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga. Verður kærendum því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda höfðu þau verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsókna þeirra hófst hjá Útlendingastofnun.

Kærendur skulu flutt til Frakklands eigi síðar en 6 mánuðum eftir birtingu þessa úrskurðar, sbr. til hliðsjónar 29. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar, nema ákveðið verði að fresta réttaráhrifum úrskurðar þessa að kröfu kærenda, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga.

Samantekt

Í málum þessum hafa frönsk stjórnvöld fallist á að taka við kærendum og umsóknum þeirra um alþjóðlega vernd á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsóknir kærenda um alþjóðlega vernd hér á landi og senda kærendur til Frakklands með vísan til c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru því staðfestar.

Athygli kærenda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

 

 

Úrskurðarorð

 

Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru staðfestar.

 

The decision‘s of the Directorate of Immigration are affirmed.

 

 

 

Hjörtur Bragi Sverrisson

 

 

Þorbjörg Inga Jónsdóttir                                                                                             Árni Helgason

                                                                                             

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum