Hoppa yfir valmynd
31. mars 2016 Forsætisráðuneytið

Tilnefninga til jafnréttisviðurkenningar óskað

Jafnréttisráð óskar eftir tilnefningum til jafnréttisviðurkenningar Jafnréttisráðs fyrir árið 2016. Viðurkenningu geta hlotið einstaklingar, fyrirtæki, stofnanir, sveitarfélög, hópar eða félagasamtök, sem á einn eða annan hátt hafa skarað fram úr eða markað spor á sviði jafnréttismála. Í ár stendur til að veita tvær viðurkenningar. Eina til fyrirtækis, sveitarfélags eða stofnunnar og aðra til einstaklings, hóps eða félagasamtaka.

Rökstuðningur vegna tilnefningar skal fylgja með. Einstaklingar, fyrirtæki, stofnanir, sveitarfélög, hópar eða félagasamtök geta hvort heldur tilnefnt sig sjálf eða verið tilnefnd af öðrum. Til að koma til álita við veitingu Jafnréttisviðurkenningarinnar þarf viðkomandi aðili að vera tilbúinn að taka á móti fulltrúum Jafnréttisráðs og svara spurningum þess.

Tilnefningum skal skila rafrænt eigi síðar en 19. apríl 2016 til Jafnréttisráðs á netfangið: [email protected]

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum