Hoppa yfir valmynd
8. júní 2023 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 356/2023 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 8. júní 2023 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 356/2023

í stjórnsýslumálum nr. KNU23050099 og KNU23050100

 

Beiðni um frestun réttaráhrifa í málum […] og […]

 

Málsatvik

Hinn 4. maí 2023 staðfesti kærunefnd útlendingamála ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 24. febrúar 2023, um að umsóknir einstaklinga er kveðast heita […], vera fædd […] og vera ríkisborgari Afganistan og […], vera fæddur […] og vera ríkisborgari Afganistan, um alþjóðlega vernd hér á landi, yrðu ekki teknar til efnismeðferðar og að þau yrðu endursend til Grikklands. Úrskurður kærunefndar var birtur fyrir aðilum hinn 8. maí 2023 og 15. maí 2023 barst kærunefnd beiðni aðila um frestun réttaráhrifa á úrskurði nefndarinnar. Aðilar lögðu ekki fram greinargerð til stuðnings beiðni þeirra.

Ráða má af beiðni aðila að hann krefjst þess að réttaráhrifum úrskurðar kærunefndar útlendingamála verði frestað á meðan þau fara með mál sitt fyrir dómstóla, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Málsástæður aðila

Aðilar lögðu ekki fram greinargerð til stuðnings beiðni þeirra um frestun réttaráhrifa. Verður því úrskurðað í málunum á grundvelli fyrirliggjandi gagna, þ. á m. úrskurðar í máli aðila nr. 261/2023.

Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Í íslenskum rétti gildir sú meginregla að málskot til dómstóla frestar ekki réttaráhrifum endanlegra ákvarðana stjórnvalda, sjá til hliðsjónar 2. málsl. 60. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944. Reglan er áréttuð í 1. málsl. 6. mgr. 104. laga um útlendinga nr. 80/2016 en þar segir að málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun á stjórnsýslustigi um að útlendingur skuli yfirgefa landið fresti ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess, sbr. 2. málsl. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga. Frestun á réttaráhrifum skal bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að málið hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

Niðurstaða um hvort ástæða sé til að fresta réttaráhrifum úrskurðar kærunefndar ræðst af heildstæðu mati á hagsmunum aðila af því að réttaráhrifum úrskurðarins verði frestað og sjónarmiðum sem mæla gegn slíkri frestun. Meðal þeirra sjónarmiða sem líta ber til við þetta mat er hvort framkvæmd úrskurðarins valdi aðila óafturkræfum skaða, hvort framkvæmdin feli í sér verulegar hindranir á aðgengi aðila að dómstólum, hvort aðstæður sem þýðingu geta haft fyrir málið hafi breyst verulega eða hvort þörf sé á sérstakri varúð, m.a. með tilliti til hagsmuna barna. Þá lítur kærunefnd til þess hlutverks stjórnvalda að tryggja skilvirka framkvæmd laga um útlendinga. Kærunefnd hefur jafnframt litið til þess að heimild til frestunar réttaráhrifa á úrskurði nefndarinnar er undantekning frá meginreglu sem aðeins sé ætlað að ná til tilvika þar sem ástæða er til þess að fresta framkvæmd. Réttaráhrifum úrskurðar verði því ekki frestað af þeirri ástæðu einni að úrskurðurinn verði borinn undir dómstóla heldur þurfi að liggja fyrir tilteknar ástæður í fyrirliggjandi máli svo kærunefnd fallist á slíka beiðni.

Ljóst er að vera aðila á landinu er ekki forsenda fyrir því að mál sem þau höfða til ógildingar á úrskurði kærunefndar sé tækt til meðferðar hjá dómstólum. Þá hafa aðilar möguleika á að gefa skýrslu fyrir dómi þótt þau séu ekki hér á landi, sbr. 2. mgr. 49. gr. og 3. og 4. mgr. 51. gr. laga um meðferð einkamála nr. 91/1991. Ennfremur benda gögn málsins ekki til annars en að aðilar geti nýtt rétt sinn til komu og tímabundinnar dvalar hér á landi á grundvelli 20. gr. laga um útlendinga til að vera við réttarhöld sín og gefa skýrslu fyrir dómi. Í því ljósi og með vísan til aðstæðna aðila að öðru leyti er það niðurstaða kærunefndar að ekki sé ástæða til að fresta réttaráhrifum úrskurðar í máli aðila á þeim grundvelli að framkvæmd úrskurðarins valdi tjóni á málatilbúnaði þeirra fyrir dómstólum eða skerði réttindi sem þeim eru tryggð samkvæmt 70. gr. stjórnarskrárinnar, sbr. einnig dóma Héraðsdóms Reykjavíkur í málum nr. E-2434/2017 og E-6830/2020.

Með úrskurði kærunefndar útlendingamála hefur verið tekin afstaða til málsástæðna aðila varðandi umsókn þeirra um alþjóðlega vernd hér á landi og komist að niðurstöðu um að synja umsókn þeirra um efnismeðferð. Kærunefnd ítrekar það sem kemur fram í úrskurði í máli aðila að athugun nefndarinnar hefur ekki leitt í ljós gögn sem gefa tilefni til að ætla að aðstæður í viðtökuríki séu þess eðlis að endursending aðila þangað sé í andstöðu við 1. og 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga eða 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu eða að aðila sé ekki tryggð raunhæf leið til að ná fram rétti sínum þar í landi, sbr. 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Í samræmi við framangreint er það jafnframt mat kærunefndar að aðilar eigi ekki á hættu að verða fyrir óafturkræfum skaða snúi þau aftur til viðtökuríkis.

Tiltölulega skammur tími er liðinn síðan nefndin úrskurðaði í máli aðila. Ekkert í gögnum málsins bendir til þess að aðstæður aðila eða aðstæður í ríkinu, sem vísa á aðilum til, hafi breyst verulega síðan nefndin úrskurðaði í málunum á þann hátt að nefndin telji að það gæti haft áhrif á efnislega niðurstöðu málsins. Eftir skoðun á beiðni aðila um frestun réttaráhrifa telur kærunefnd að athugasemdir sem þar koma fram varðandi málsmeðferð og efnislegt mat kærunefndar í málinu séu ekki þess eðlis að ástæða sé til að ætla að niðurstaða kærunefndar í málinu sé haldin annmörkum sem leitt gæti til ógildingar úrskurðarins.

Samkvæmt framansögðu er það mat kærunefndar að ekki sé ástæða til að fallast á beiðni aðila um frestun réttaráhrifa úrskurðar kærunefndar í máli þeirra.

 

ÚRSKURÐARORÐ:

 

Kröfu aðila er hafnað.

The appellant’s request is denied.

 

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

 

Þorsteinn Gunnarsson, formaður

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum