Hoppa yfir valmynd
20. ágúst 2018 Innviðaráðuneytið

Drög að frumvarpi um framlengingu og víkkun gildissviðs laga um svæðisbundna flutningsjöfnun til umsagnar

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið óskar eftir umsögnum um drög að frumvarpi þar sem lagt er til að gildistími laga um svæðisbundna flutningsjöfnun verði framlengdur til ársloka 2025. Skilyrði flutningsjöfnunarstyrkja verði jafnframt rýmkuð til að fjölga þeim framleiðendum á landsbyggðinni sem mögulega geta notið slíkra styrkja. Opið er fyrir umsagnir til og með 30. ágúst nk.

Með setningu laga um svæðisbundna flutningsjöfnun, nr. 160/2011, sem tóku gildi 1. janúar 2012, var komið á flutningsjöfnunarstyrkjum úr ríkissjóði til að styðja við framleiðsluiðnað og atvinnuuppbyggingu á landsbyggðinni. Var markmiðið að jafna þannig flutningskostnað framleiðenda sem staðsettir eru fjarri innanlandsmarkaði eða útflutningshöfn og búa því við skerta samkeppnisstöðu vegna hærri flutningskostnaðar. Lögin giltu upphaflega til ársloka 2013 en með lögum nr. 132/2013 var gildistími þeirra framlengdur til ársloka 2020. Í frumvarpinu er, sem fyrr segir, lagt til að gildistími laganna verði framlengdur til ársloka 2025.

Flutningsjöfnunarstyrkir eru veittir vegna flutnings vöru frá styrksvæði ef framleiðslan er annaðhvort fullunnin eða hálfunnin vara, þ.e. vara sem hefur farið í gegnum ákveðið framleiðsluferli á styrksvæðinu, eða vegna flutnings til styrksvæðis á hrávöru eða hálfunninni vöru, þ.e. vöru sem vantar til að endanleg framleiðsla á vöru geti átt sér stað á styrksvæðinu. Styrkirnir eru nú einungis veittir þeim sem stunda framleiðslu sem fellur undir C-bálk í íslensku atvinnugreinaflokkuninni ÍSAT2008.

Flutningsjöfnunarstyrkir reiknast í dag sem hlutfall af flutningskostnaði, enda sé lengd ferðar ekki innan við 245 km. Þá er veittur aukinn styrkur á tilteknum svæðum sé ferð lengri en 390 km. Samanlagðir flutningsjöfnunarstyrkir til hvers framleiðanda skulu aldrei vera hærri en sem nemur 200.000 evrum á þriggja ára tímabili. Sjá nánari umfjöllun um framkvæmd svæðisbundinnar flutningsjöfnunar á árinu 2017 í skýrslu ráðherra sem lögð var fyrir Alþingi nú í vor.

Frumvarpsdrögin fela í sér að gildissvið laganna er víkkað frá því sem nú er þannig að þau taki einnig til framleiðslu garðyrkjubænda sem rækta ávexti, blóm eða grænmeti og fullvinna framleiðslu sína í söluhæfar umbúðir, enda uppfylli þeir jafnframt önnur skilyrði laganna. Er þá miðað við að ræktun og pökkun vörunnar fari fram á sama stað þannig að í raun sé um að ræða fullvinnslu vörunnar þannig að hægt er að setja hana beint í verslanir.

Þá er lagt til að lágmarksflutningsvegalengd styrkhæfrar framleiðslu verði lækkuð úr 245 km í 150 km. Þessi aðgerð mun eðli máls samkvæmt fjölga þeim sem rétt geta átt á styrk vegna framleiðslu sinnar. Einnig er kveðið á um það að fari styrkhæfar umsóknir fram úr fjárveitingu ársins sé heimilt að lækka hlutfall styrkja af flutningskostnaði sem því nemur en reynist styrkhæfar umsóknir lægri en fjárveitingin megi hún hækka þetta hlutfall. Tryggir þetta bæði að þeir fjármunir sem lagðir eru til þessara styrkja séu fullnýttir og jafnframt að ekki sé farið fram úr fjárheimildum.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum