Hoppa yfir valmynd
19. nóvember 2020 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 210/2020 - Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 210/2020

Fimmtudaginn 19. nóvember 2020

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 27. apríl 2020, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 6. apríl 2020, um að fella niður bótarétt hans í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Þann 8. janúar 2020 var kærandi boðaður á íslenskunámskeið á vegum Vinnumálastofnunar og tekið var fram að um skyldumætingu væri að ræða. Námskeiðið var haldið á tímabilinu 13. janúar til 13. febrúar 2020. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 13. mars 2020, var óskað eftir skriflegri afstöðu kæranda á ástæðum þess að hann hafi fallið á mætingu á námskeiðinu og vísað til þess að hann hafi eingöngu mætt í sex skipti af 20 (30%). Í bréfinu vakti stofnunin athygli á því að samkvæmt 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar geti þeir sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, án gildra ástæðna, þurft að sæta biðtíma á grundvelli laganna. Skýringar bárust frá kæranda 16. mars 2020. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 24. mars 2020, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 58. gr. laga nr. 54/2006. Kærandi sendi Vinnumálastofnun frekari skýringar 26. mars 2020. Vinnumálastofnun tók mál kæranda til umfjöllunar á ný og með bréfi, dags. 6. apríl 2020, var kæranda tilkynnt að ákvörðun frá 24. mars 2020 væri staðfest.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 27. apríl 2020. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 30. apríl 2020, var óskað eftir að kærandi legði inn kæru sína á íslensku og tekið fram að nefndin myndi að því loknu taka mál hans til meðferðar. Beiðni nefndarinnar var ítrekuð með erindi 11. júní 2020 og bréfi, dags. 2. júlí 2020. Með bréfi, dags. 24. ágúst 2020, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst með bréfi, dags. 16. október 2020, og með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 19. október 2020, var greinargerðin send kæranda til kynningar. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hann hafi átt við alvarleg fjölskylduvandamál að stríða á þeim tíma er hann hafi verið skráður á námskeiðið. Hann hafi kannað þann möguleika að taka þátt í námskeiðinu á öðrum tíma en þá fengið þær upplýsingar að ekki væri skyldumæting á það. Kærandi hafi verið hvattur til þess að reyna að mæta og verið sagt að það yrðu engar afleiðingar af því að mæta ekki. Kærandi hafi útskýrt aðstæður sínar hjá Vinnumálastofnun og óskað eftir að taka námskeiðið á öðrum tíma. Þá tekur kærandi fram að hann hafi sent Vinnumálastofnun tölvupóst í byrjun námskeiðsins en aldrei fengið svar.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að mál þetta lúti að 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Þar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Í greinargerð er fylgdi frumvarpi því er varð að lögum um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Samkvæmt g-lið 1. mgr. 14. gr. laganna felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga um vinnumarkaðsúrræði nr. 55/2006 komi einnig fram skylda þess sem telst tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun bjóði upp á.

Það liggi fyrir að kærandi hafi verið boðaður á námskeið á vegum Vinnumálastofnunar. Kæranda hafi verið gerð grein fyrir því að skyldumæting væri á námskeiðið. Kærandi hafi einungis mætt í sex skipti af 20 skiptum. Í kæru til úrskurðarnefndar komi fram að kærandi hafi ekki mætt á umrætt námskeið sökum þess að hann hafi verið að takast á við vandamál í fjölskyldunni, auk þess sem hann hafi ekki vitað að skyldumæting væri á námskeiðið. Vinnumálastofnun bendir á að þann 8. janúar 2020 hafi kærandi fengið tölvupóst á pólsku þess efnis að 100% mætingarskylda væri á íslenskunámskeiðið. Atvinnuleitendum beri í samræmi við 2. mgr. 14. gr. laga nr. 54/2006 að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunni að verða á vinnufærni eða aðstæðum að öðru leyti samkvæmt 1. mgr. 14. gr., þar á meðal um tilfallandi veikindi og fjarveru á boðaðan fund, án ástæðulausrar tafar. Það hafi kærandi ekki gert og það sé því mat Vinnumálastofnunar að ástæður sem fram komi í kæru til úrskurðarnefndarinnar og í skýringarbréfum frá kæranda til stofnunarinnar séu ekki gildar í skilningi laga nr. 54/2006. Kæranda hafi því borið að sæta viðurlögum á grundvelli 58. gr. laganna.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður bótarétt kæranda í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.

Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 54/2006 segir meðal annars um 1. mgr. 58. gr. að ekki séu tilgreindar sérstakar vinnumarkaðsaðgerðir sem geti valdið því að hinn tryggði þurfi að sæta viðurlögum samkvæmt ákvæðinu heldur eigi það við um allar aðgerðir sem hinum tryggða sé boðið að taka þátt í til að auka líkur sínar á að fá vinnu við hæfi. Gert sé ráð fyrir að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og hinir tryggðu njóti faglegrar ráðgjafar sérfræðinga stofnunarinnar. Þannig megi ætla að þeim, sem eru tryggðir innan atvinnuleysistryggingakerfisins, verði boðin þátttaka í vinnumarkaðsúrræðum við hæfi en litið sé svo á að þeim sé skylt að taka þátt í slíkum úrræðum. Bregðist hinn tryggði þessum skyldum sínum leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Samkvæmt gögnum málsins var kærandi boðaður á íslenskunámskeið á vegum Vinnumálastofnunar í janúar 2020 og tekið fram að um skyldumætingu væri að ræða. Námskeiðið var haldið á tímabilinu 13. janúar til 13. febrúar 2020 en kærandi mætti í sex skipti af 20 og féll því á mætingu. Kærandi hefur borið því við að hann hafi ekki mætt vegna  fjölskylduvandamála og að hann hafi ekki vitað að um skyldumætingu væri að ræða.

Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram viðunandi skýringar sem réttlæta að hann hafi ekki mætt í vinnumarkaðsúrræðið sem honum var gert að sækja. Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins. Ákvæðið er fortakslaust og því er ekki heimilt að beita vægari úrræðum en þar er kveðið á um. Að því virtu er hin kærða ákvörðun staðfest.

 


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 6. apríl 2020, um að fella niður bótarétt A, í tvo mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

                                                                                                                                                                                              Kári Gunndórsson

 

 

 

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum