Hoppa yfir valmynd
26. maí 2017 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Dagpeningar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands - auglýsing nr. 1/2017

Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið dagpeninga til greiðslu gisti- og fæðiskostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands á vegum ríkisins sem að neðan greinir.

Athygli er vakin á að meginreglan er að greiða skal kostnað vegna ferðalaga innanlands, s.s. fargjöld, fæði og gistingu, eftir reikningi. Ákvörðun ferðakostnaðarnefndar eru hámarksupphæðir vegna greiðslu slíkra reikninga.

1. Gisting og fæði í einn sólarhring kr. 37.100

2. Gisting í einn sólarhring kr. 25.900

3. Fæði hvern heilan dag, minnst 10 tíma ferðalag kr. 11.200

4. Fæði í hálfan dag, minnst 6 tíma ferðalag kr. 5.600

Dagpeningar þessir gilda frá og með 1. júní 2017. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 2/2016 dags. 27. október 2016. Fjárhæðir taka mið af árstíðabundinni sveiflu gistikostnaðar og er að jafnaði breytt tvisvar á ári. Þannig eru fjárhæðir hærri yfir sumarmánuðina.

Nefndin fer þess á leit við ráðuneyti og stofnanir að viðmiðunarfjárhæðir um greiðslur dagpeninga um gistingu og veitingar verði kynntar starfsfólki.

Vakin er athygli á því að auglýsing ferðakostnaðarnefndar um dagpeninga er á vefsíðu fjármála- og efnahagsráðuneytisins og er veffangið eftirfarandi: www.fjarmalaraduneyti.is/ferdakostnadur.


Reykjavík, 23. maí 2017



Ferðakostnaðarnefnd

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum