Hoppa yfir valmynd
8. september 2021

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna alþingiskosninga 25. september 2021

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hjá sendiráði Íslands í Moskvu og kjörræðismönnum hófst í ágúst sl. vegna alþingiskosninga 25. september 2021.

Hægt er að kjósa á opnunartíma sendiráðsins alla virka daga milli kl. 9-16. Í ljósi kórónuveirufaraldursins biðjum við kjósendur vinsamlega að bóka tíma hjá sendiráðinu á netfangið moscow[hjá]utn.is eða í síma +7 (495) 956-7604. Kosið er hjá kjörræðismönnum í umdæmislöndum sendiráðsins eftir samkomulagi.

Gert er ráð fyrir að kjósendur kynni sér sjálfir hverjir eru í framboði og hvaða listabókstafir eru notaðir. Hagnýtar upplýsingar um kosningarnar verður að finna á vefsetrinu: www.kosning.is.

Athygli kjósenda er ennfremur vakin á því að þeim ber sjálfum að póstleggja atkvæði sín eða koma þeim á annan hátt í tæka tíð til viðkomandi kjörstjórnar á Íslandi. Vegna heimsfaraldursins er brýnt að gera slíkar ráðstafanir tímanlega.

Upplýsingar um sendiskrifstofur Íslands erlendis
Upplýsingar um kjörræðismenn eftir löndum.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum