Hoppa yfir valmynd
27. september 2023 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 525/2023 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 27. september 2023 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 525/2023

í stjórnsýslumálum nr. KNU23040046 og KNU23040047

 

Kæra [...]

og [...]

á ákvörðunum

Útlendingastofnunar

 

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 14. apríl 2023 kærðu [...], fd. [...], ríkisborgari Venesúela (hér eftir M) og [...], fd. [...], ríkisborgari Venesúela (hér eftir K), ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 31. mars 2023, um að synja þeim um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Kærendur krefjast þess aðallega að hinar kærðu ákvarðanir verði felldar úr gildi og þeim verði veitt staða flóttamanna hér á landi með vísan til 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til vara krefjast kærendur þess að hinar kærðu ákvarðanir verði felldar úr gildi og þeim verði veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til þrautavara krefjast kærendur þess að hinar kærðu ákvarðanir verði felldar úr gildi og þeim verði veitt dvalarleyfi hér á landi á grundvelli mannúðarsjónarmiða með vísan til 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Í þriðju varakröfu krefjast kærendur þess að hinar kærðu ákvarðanir verði felldar úr gildi og lagt verði fyrir Útlendingastofnun að taka umsóknir þeirra um alþjóðlega vernd hér á landi til meðferðar á ný á grundvelli 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga. Í fjórðu varakröfu krefjast kærendur þess að hinar kærðu ákvarðanir verði felldar úr gildi og þeim verði veitt viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga með vísan til jafnræðisreglu, sbr. 11. gr. stjórnsýslulaga.

Fyrrgreindar ákvarðanir eru kærðar á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og bárust kærurnar fyrir lok kærufrests.

II.        Málsmeðferð

Kærendur lögðu fram umsóknir um alþjóðlega vernd hér á landi 24. september 2022. Kærendur komu í viðtöl hjá Útlendingastofnun m.a. 10. nóvember 2022 ásamt talsmanni sínum. Með ákvörðunum, dags. 31. mars 2023, synjaði Útlendingastofnun kærendum um alþjóðlega vernd ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Voru þær ákvarðanir kærðar til kærunefndar útlendingamála 14. apríl 2023. Kærunefnd bárust greinargerðir kærenda 28. apríl 2023. Með tölvubréfi, dags. 12. júlí 2023, óskaði kærunefnd eftir nánari upplýsingum frá kærendum. Viðbótarathugasemdir bárust frá kærendum 14. júlí 2023. Þá bárust frekari gögn 18. júlí 2023.

Í greinargerðum sínum óskuðu kærendur eftir því að fá að koma fyrir nefndina og tjá sig um efni málsins. Í ljósi frásagna kærenda og skýrslna um heimaríki taldi kærunefnd ekki ástæðu til að gefa kærendum kost á að koma fyrir nefndina, sbr. 7. mgr. 8. gr. laga um útlendinga.

III.      Ákvarðanir Útlendingastofnunar

Í ákvörðunum Útlendingastofnunar kemur fram að kærendur byggi umsóknir sínar um alþjóðlega vernd á því að þau séu í hættu í heimaríki vegna almenns ástands þar í landi.

Niðurstaða ákvarðana Útlendingastofnunar í málum kærenda var sú að kærendur væru ekki flóttamenn og þeim skyldi synjað um alþjóðlega vernd á Íslandi samkvæmt ákvæðum 37. og 40. gr. laga um útlendinga. Kærendum var jafnframt synjað um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laga um útlendinga. Þá taldi stofnunin að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga stæði endursendingu til heimaríkis ekki í vegi.

Kærendum var brottvísað frá landinu og þeim ákvarðað endurkomubann í tvö ár. Kærendum var veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið. Fram kom að yfirgæfu kærendur landið sjálfviljug innan frestsins yrði endurkomubannið fellt niður.

Útlendingastofnun tilkynnti kærendum jafnframt að kæra frestaði réttaráhrifum ákvarðananna, sbr. 1. mgr. 35. gr. laga um útlendinga.

IV.      Málsástæður og rök kærenda

Í greinargerðum sínum til kærunefndar vísa kærendur til greinargerða sinna til Útlendingastofnunar og annarra gagna málsins hvað málsatvik varðar. Kærendur hafi neyðst til að flýja heimaríki sitt vegna ástandsins sem þar ríki. Ástandið þar í landi sé alvarlegt og ótryggt, m.a. vegna takmarkaðs aðgengis að heilbrigðisþjónustu og hreinu drykkjarvatni og þá séu laun þar í landi það lág að ekki sé hægt að lifa mannsæmandi lífi. Samkvæmt kærendum séu almennir borgarar í stöðugri hættu á að verða fyrir ofbeldi, mannráni eða morðtilraunum í Venesúela. K hafi greint frá því að hafa verið rænd nokkrum sinnum og m.a. lent í vopnuðu ráni. M hafi greint frá því að hafa verið hótað með byssu. Þau telji sig í stöðugri hættu. Lögreglan í Venesúela sé afar spillt og ekki sé hægt að treysta á aðstoð hennar. Þá sé enga aðstoð að fá frá yfirvöldum þar sem þau séu hluti af vandamáli landsins.

Kærendur fjalla um ástand öryggis og mannréttinda í Venesúela og vísa í alþjóðlegar skýrslur máli sínu til stuðnings. Heimildir beri ekki með sér að tilefni sé til breytts mats á aðstæðum í landinu eftir uppkvaðningu fyrri úrskurða kærunefndar útlendingamála. Í nóvember 2021 hafi saksóknari hjá Alþjóðaglæpadómstólnum tilkynnt að hafin yrði rannsókn á því hvort framdir hefðu verið glæpir gegn mannkyni í Venesúela. Þá bendi heimildir til þess að ástandið í Venesúela fari aðeins versnandi. Í ferðaleiðbeiningum bandaríska utanríkisráðuneytisins sem uppfærðar hafi verið 28. júní 2021 sé fólki alfarið ráðið frá því að ferðast til Venesúela. Fram komi að Bandaríkin hafi hætt allri utanríkisþjónustu í landinu vegna þess ástands sem þar ríki. Fram komi að ofbeldisglæpir, s.s. morð, vopnuð rán, mannrán og bílþjófnaðir séu algengir. Pólitískar fjöldasamkomur og mótmæli geti átt sér stað án fyrirvara og þeim sé mætt af lögreglu og öryggissveitum sem noti táragas, piparúða og gúmmíkúlur. Vísað sé til þess að samkvæmt skýrslu mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna hafi yfirvöld staðið að baki þúsundum manndrápa án dóms og laga. Þá komi fram að skortur sé á bensíni, mat, rafmagni, vatni, lyfjum og sjúkravörum í meirihluta landsins. Þá komi fram í skýrslunum að talið sé að einn af hverjum þremur íbúum Venesúela búi við fæðuóöryggi og þarfnist aðstoðar en vannæring meðal barna sé viðvarandi vandamál í landinu. Í landinu ríki efnahagskrísa, verðbólga sé mikil, laun verulega lág og fjöldi íbúa ófærir um að sjá fjölskyldum sínum fyrir grunnþörfum. Vöruskortur í landinu sé slíkur að í stærstum hluta landsins skorti mat, rafmagn, vatn, lyf og sjúkravörur. Margir íbúar Venesúela eigi erfitt með að verða sér úti um atvinnu, senda börn sín í skóla og fá aðgang að heilbrigðiskerfinu.

Í skýrslunum komi þá fram að einstaklingar sem snúi aftur til Venesúela eigi á hættu að verða fyrir slæmri meðferð við endurkomuna af hálfu yfirvalda og vopnaðra hópa sem séu á bandi yfirvalda. Forseti Venesúela hafi haft uppi verulega neikvæð ummæli sem sett hafi smánarblett á einstaklinga sem snúið hafi aftur til heimalandsins. Þá hafi hann sent frá sér yfirlýsingar sem innihaldi hótanir um fangelsisvist einstaklinga sem á ólöglegan hátt hafi snúið aftur til heimalandsins sökum lokana á landamærum. Í kjölfar valdatöku Maduro hafi stjórnvöld notast við auðkenniskort til að sinna eftirliti með borgurum og mismuna þeim. Um sé að ræða fjölþætt auðkenniskort sem íbúar Venesúela þurfi að hafa undir höndum til að fá aðgang að þjónustu á vegum ríkisins. Til að uppfylla skilyrði þess að fá slíkt kort þurfi íbúar að sýna fram á pólitísk tengsl sín og svara spurningum um félagslega aðstoð. Ljóst sé að staða þeirra sem ekki séu stuðningsmenn ríkjandi stjórnvalda í Venesúela sé slæm. Kærendur telja nýlegar skýrslur um ástandið í Venesúela vera sama efnis og fyrri skýrslur sem fyrri ákvarðanir um veitingu alþjóðlegrar verndar hafi byggt á og ekki verði séð að aðrar nýlegar heimildir gefi tilefni til breytts mats.

Kærendur vísa til þess að samkvæmt uppfærðri skýrslu Sameinuðu þjóðanna frá 22. mars 2023 beiti stjórnvöld enn markvissum aðgerðum til að bæla niður andstöðu í landinu, m.a. með borgaralegum handtökum og stöðvunum á mótmælum. Af skýrslunni sé ljóst að aðstæður hafi ekki breyst til batnaðar heldur hafi aðstæður á margan hátt versnað. Samkvæmt skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá 29. mars 2023 eigi einstaklingar sem snúi aftur til Venesúela erfitt með að fá aðgang að félagsþjónustu, húsnæði og störfum. Kærendur benda þá á að Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hafi gefið út leiðbeiningar vegna umsókna venesúelskra ríkisborgara um alþjóðlega vernd árið 2019. Í leiðbeiningunum komi fram að það sé mat stofnunarinnar að meirihluti venesúelskra ríkisborgara hafi ríka þörf fyrir vernd vegna ástandsins þar í landi. Í ljósi ástandsins hafi Flóttamannastofnunin hvatt aðildarríki til þess að senda venesúelska ríkisborgara ekki aftur til landsins. Hinn 19. apríl 2022 hafi kærunefnd útlendingamála sent fyrirspurn til Flóttamannstofnunar og óskað eftir upplýsingum um hvort framangreind afstaða þeirra hefði tekið breytingum. Í svari, dags. 22. apríl 2022, komi fram að engin breyting hafi orðið á afstöðu Flóttamannastofnunar til endursendinga til Venesúela. Leiðbeiningar stofnunarinnar frá árinu 2019 um að senda venesúelska ríkisborgara ekki aftur til Venesúela gegn þeirra vilja væru enn í gildi. Hinn 14. mars 2023 hafi Flóttamannastofnunin og Alþjóðlega fólksflutningastofnunin einnig hvatt til aukins alþjóðlegs stuðnings við flóttafólk frá Venesúela.

Kærendur gera athugasemdir við ákvarðanir Útlendingastofnunar í málum þeirra en þau eru m.a. ósammála niðurstöðu stofnunarinnar um að engin raunveruleg hætta sé á að endursending þeirra til Venesúela brjóti gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og kærendur eigi ekki á hættu illa meðferð samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærendur telja yfirgnæfandi líkur á að endursending þeirra nái lágmarksþröskuldi 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu í ljósi hættunnar af almennu ofbeldisástandi, persónulegum aðstæðum kærenda og mannúðaraðstæðum í Venesúela. Þá gera kærendur athugasemdir við fullyrðingar Útlendingastofnunar um að ástandið í Venesúela fari batnandi og að stjórnvöld hafi sýnt vilja og getu til að bæta aðstæður einstaklinga í Venesúela og því séu aðstæður ekki þær sömu og hafi verið uppi þegar úrskurður kærunefndar nr. 231/2022 hafi verið kveðinn upp í júlí 2022. Kærendur benda á að nýlegar heimildir gefi ekki tilefni til breytts mats á aðstæðum í landinu. Nokkrir punktar um framfarir í Venesúela bendi ekki til þess að ástandið hafi farið batnandi eða að trúverðugur árangur hafi náðst og vísa kærendur til nýlegra alþjóðlegra skýrslna máli sínu til stuðnings.

Kærendur gera einnig athugasemdir við fullyrðingu Útlendingastofnunar þess efnis að leiðbeiningar Flóttamannastofnunar séu ekki bindandi fyrir íslensk stjórnvöld. Kærendur vísa til þess að samkvæmt 3. mgr. 23. gr. laga um útlendinga eigi íslensk stjórnvöld við framkvæmd og ákvarðanir í málum sem varða alþjóðlega vernd að eiga í samvinnu við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna, sbr. 35. gr. Flóttamannasamningsins. Íslenska ríkið hafi að meginstefnu farið eftir tilmælum Flóttamannastofnunar og kærendur telja ekkert benda til þess að fara ætti gegn tilmælum stofnunarinnar. Kærendur telja framangreinda málsmeðferð Útlendingastofnunar hvorki í samræmi við jákvæðar skyldur íslenska ríkisins samkvæmt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu né 10. gr. stjórnsýslulaga. Kærendur gera athugasemdir við fullyrðingar Útlendingastofnunar þess efnis að þau geti framfleytt sér í Venesúela. K hafi greint frá því að hafa reynt að fá heilbrigðisþjónustu í Venesúela vegna ofnæmis en ekki fengið, m.a. vegna skorts á sérfræðiþekkingu lækna þar í landi. Þá hafi M greint frá því að hafa einu sinni fengið heilbrigðisþjónustu í Venesúela þar sem hann þekkti mann sem hafi getað komið honum að. Sú frásögn staðreyni ekki að hann muni hafa aðgang að heilbrigðisþjónustu í Venesúela.

Þá gagnrýna kærendur það að gildistöku laga nr. 136/2022 sé beitt með afturvirkum hætti í málum þeirra en lögin hafi tekið gildi 10. janúar 2023. Kærendur telja að um ósanngjarna ráðstöfun sé að ræða en ráðstöfunin skerði ferðafrelsi kærenda óhóflega og hindri að kærendur geti heimsótt landið og ræktað tengslin sem þau hafi myndað hér á landi.

Kærendur byggja aðallega á því að þau séu flóttamenn samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærendur hafi greint frá því að þeim stafi ógn af glæpagengjum í Venesúela og að lögregla og yfirvöld í landinu séu spillt og geti ekki veitt þeim vernd.

Til vara krefjast kærendur þess að þeim verði veitt viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Venesúelskir flóttamenn sem hafi komið hingað til lands til að sækja um alþjóðlega vernd hafi fengið vernd á grundvelli 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga og engar nýlegar heimildir bendi til þess að breyta eigi þeirri framkvæmd. Af lestri landaupplýsinga og fyrri ákvarðana Útlendingastofnunar sé ljóst að viðvarandi mannréttindabrot eigi sér stað í ríkinu og yfirvöld veiti þegnum sínum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum og glæpum. Ekkert bendi til þess að trúverðugur árangur hafi náðst til að efla réttlæti, ábyrgð eða virðingu fyrir mannréttindum. Ekkert hafi komið fram í málinu sem bendi til þess að sú hætta sem kærendum stafi af glæpagengjum, lögreglunni, yfirvöldum eða hinu almenna ástandi sé yfirstaðin. Þá telja kærendur að einstaklingsbundnar aðstæður þeirra leiði ekki til þeirrar niðurstöðu að þau uppfylli ekki skilyrði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga enda sé ljóst að aðstæður í Venesúela séu grafalvarlegar um allt land og ekkert sem bendi til þess að kærendur geti fengið vernd frá yfirvöldum. Þá vísa kærendur til niðurstöðu úrskurða kærunefndar útlendingamála nr. 231/2022 frá 18. júlí 2022 og nr. 272/2022 og 273/2022 frá 22. júlí 2022.

Kærendur hafi greint frá því í viðtölum hjá Útlendingastofnun að þau geti ekki flutt innanlands í Venesúela og verið örugg þar sem það væri hvergi öruggt að vera í Venesúela. Styðji frásagnir þeirra við fyrirliggjandi heimildir. Það að þau flytji sig um set muni ekki leysa þau undan þeirri hættu sem þeirra bíði þar í landi.

Til þrautavara krefjast kærendur þess að þeim verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Við mat á þörf fyrir dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skuli Útlendingastofnun skoða og meta aðstæður umsækjenda heildstætt. Kærendur benda á að þær aðstæður sem nú séu í Venesúela eigi rætur sínar fyrst og fremst að rekja til óstjórnar yfirvalda í landinu, ofbeldi af þeirra hálfu, starfsemi glæpahópa sem sumir hverjir séu tengdir stjórnvöldum og almennu virðingarleysi fyrir lífi og mannréttindum íbúa landsins. Kærendur benda á að þó að fátækt og skortur á nauðsynjum sé nú vissulega orðinn hluti af afleiðingum óstjórnar undanfarinna ára séu rætur neyðarinnar í raun ekki efnahagslegar. Um sé að ræða erfiðar almennar aðstæður sem annars vegar grundvallist á viðvarandi mannréttindabrotum og því að yfirvöld veiti þegnum sínum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum og hins vegar á óvenjulegum aðstæðum. Þegar aðstæður kærenda séu metnar heildstætt sé ljóst að almennar og félagslegar aðstæður þeirra í heimaríki séu afar erfiðar og þau geti ekki treyst á aðstoð eða vernd stjórnvalda þar í landi.

Kærendur byggja á því til þrautaþrautavara að umsóknir þeirra um alþjóðlega vernd hér á landi verði teknar til meðferðar á ný á grundvelli 10. gr. stjórnsýslulaga. Í ákvörðunum Útlendingastofnunar hafi stofnunin byggt á því að aðstæður í Venesúela hafi batnað verulega og á þeim grundvelli uppfylli kærendur ekki skilyrði viðbótarverndar samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Útlendingastofnun hafi hins vegar ekki rannsakað hvort afstaða Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna hafi breyst varðandi þvingaðar endursendingar til Venesúela. Telja kærendur að nauðsynlegt hafi verið að rannsaka afstöðu Flóttamannastofnunar í ljósi nýlegra heimilda áður en ákvörðun hafi verið tekin í máli þeirra. Skoðist það sérstaklega í ljósi þess að íslensk stjórnvöld hafi að meginstefnu fylgt leiðbeiningum Flóttamannastofnunar varðandi endursendingar til annarra ríkja og í ljósi 3. mgr. 23. gr. laga um útlendinga. Þá telja kærendur að rannsókn Útlendingastofnunar á einstaklingsbundnum aðstæðum þeirra hafi verið ábótavant. Viðtal við kærendur hafi farið fram fyrir u.þ.b. fimm mánuðum. Útlendingastofnun hafi ekki leitast við að fá uppfærðar upplýsingar frá kærendum um fjölskylduhagi eða tengsl í Venesúela fyrir ákvarðanatöku í málum þeirra. Þá telja kærendur skorta alla rannsókn á stöðu kvenna í Venesúela í úrlausnum Útlendingastofnunar.

Til þrautaþrautaþrautavara byggja kærendur á því að þeim verði veitt viðbótarvernd með vísan til jafnræðisreglu 11. gr. stjórnsýslulaga. Kærendur hafi mætt í viðtal hjá Útlendingastofnun 10. nóvember 2022 og fengið ákvarðanir í málunum birtar 31. mars 2023. Umsækjendur um alþjóðlega vernd frá Venesúela sem mætt hafi í viðtal í vikunni á undan, þ.e. 2. til 6. nóvember 2022, hafi hlotið viðbótarvernd á grundvelli 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga á staðnum. Kærendur telja að samræmis og jafnræðis hafi ekki verið gætt í lagalegu tilliti samkvæmt 11. gr. stjórnsýslulaga, enda sé ekkert sem bendi til þess að aðstæður í Venesúela hafi breyst til batnaðar viku seinna eða hafi breyst yfir höfuð.

Kærendur telja að með endursendingu þeirra til Venesúela yrði brotið gegn grundvallarreglunni um bann við endursendingum, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Að auki myndi slík ákvörðun brjóta í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, 6. og 7. gr. samnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. Flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna.

V.        Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í máli þessu koma einkum til skoðunar ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Auðkenni

Í ákvörðunum Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærendur framvísað venesúelskum vegabréfum. Telur kærunefnd því ljóst að kærendur séu venesúelskir ríkisborgarar.

Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Venesúela, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

  • 2022 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 20. mars 2023);
  • 2021 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 12. apríl 2022);
  • Amnesty International Report 2022/23: Venezuela (Amnesty International, 27. mars 2023);
  • Annual Report 2020 – Chapter IV.B: Venezuela (Inter-American Commission on Human Rights, 2021);
  • Annual Report 2022 – Chapter IV.B: Venezuela (Inter-American Commission on Human Rights, 2023);
  • Bolivarian Republic of Venezuela interim country strategic plan 2023-2025 (World Food Programme, 1. febrúar 2023);
  • Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (United Nations. Human Rights Council, 15. september 2020);
  • Election Observation Mission – Venezuela 2021 (European Union, 22. febrúar 2022);
  • Fostering Impunity: The Impact of the Failure of the Prosecutor of the International Court to Open an Investigation into the Possible Commission of Crimes against Humanity in Venezuela (Organization of American States, OAS, 2. desember 2020);
  • Freedom in the World 2022 – Venezuela (Freedom House, 28. febrúar 2022);
  • Freedom in the World 2023 – Venezuela (Freedom House, 10. mars 2023);
  • General Country of Origin Information Report. Venezuela 2020 (Netherlands. Ministry of Foreign Affairs, júní 2020);
  • Guidance Note on International Protection Considerations for Venezuelans – Update I (UNHCR, maí 2019);
  • Human Rights Violations in the Bolivarian Republic of Venezuela: A Downward Spiral with No End in Sight (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights, OHCHR, júní 2018);
  • Humanitarian Access overview (ACAPS, desember 2022);
  • Humanitære forhold (Landinfo, 2. mars 2023);
  • Independence of the justice system and access to justice in the Bolivarian Republic of Venezuela, including for violations of economic and social rights, and the situation of human rights in the Arco Minero del Orinoco region (United Nations High Commissioner for Human Rights, OHCHR, 29. september 2020);
  • Informe Annual de Violencia 2022 (Observatorio Venezolano de Violencia, 29. desember 2022);
  • Latest Asylum Trends (European Union Agency for Asylum, 17. maí 2023);
  • Outcomes of the investigation into allegations of possible violations of the human rights to life, liberty, and physical and moral Integrity in the Bolivarian Republic of Venezuela (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights, OHCHR, 17. september 2020);
  • Report of the General Secretariat of the Organization of American States and the Panel of Independent International Experts on the Possible Commission of Crimes Against Humanity in Venezuela. Second Edition (Organization of American States, OAS, mars 2021);
  • Rise of the Criminal Hybrid State in Venezuela (InSight Crime, júlí 2023);
  • Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights, OHCHR, 16. júní 2021);
  • Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela (The United Nations High Commissioner for Human Rights, OHCHR, 4. júlí 2023);
  • Situation of Venezuelans who have returned and seek to return to their country in the context of COVID-19 (Organization of American States, OAS, september 2020);
  • UNHCR Venezuela Annual Report 2022 (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);
  • UNHCR Response – Venezuela, January – June 2023 (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);
  • Vefsíða Sameinuðu þjóðanna (http://news.un.org/en/story/2023/01/1132957 – sótt 20. júní 2023);
  • Venezuela: Availability of health care, including for persons with disabilities and older persons; treatment of persons with disabilities and older persons within the healthcare system (2021-January 2023) (Immigration and Refugee Board of Canada, 13. febrúar 2023);
  • Venezuela: Humanitarian Action, (OCHA, 30. nóvember 2022);
  • Venezuela: Humanitarian Response Plan 2022-2023 (OCHA, 7. september 2022);
  • Venezuela in 2022: Building solutions with communities affected by armed violence (International Committee of the Red Cross, 6. janúar 2023);
  • Venezuela Country Focus (European Asylum Support Office, EASO, ágúst 2020);
  • Venezuela Country Report 2022 (Bertelsmann Stiftung, 2022);
  • Venezuela’s Humanitarian Emergency (Human Rights Watch, 4. apríl 2019);
  • Venezuela: Joint Statement on Venezuela Negotiation in Mexico (The Diplomatic Service of the European Union, 26. nóvember 2022);
  • Venezuela: Los Colectivos (Landinfo, 1. október 2019);
  • Venezuela Organized Crime Observatory (InSightCrime, síðast uppfært 14. júní 2023);
  • Venezuela: Overview of U.S. Sanctions (Congressional Research Service, 30. nóvember 2022);
  • Venezuela: Overview of U.S Sanctions (Congressional Research Service, 8. ágúst 2023);
  • Venezuela: Political Crisis and U.S Policy (Congressional Research Service, 1. september 2023);
  • Venezuela: Progress Report March – April 2023 (OCHA, 31. maí 2023);
  • Venezuela: Sikkerhetssituasjonen for sivilbefolkningen (Landinfo, 14. apríl 2020);
  • Venezuela: Tidligere og nåværende protestaksjoner, og retursituasjonen for personer som deltok i de store demonstrasjonene i 2017-2019 (Landinfo, 30. maí 2023);
  • Venezuela: Ytringsfrihet og kritiske ytringer i sosiale medier (Landinfo, 28. júní 2023);
  • Venezuela situation (UNHCR, janúar 2023);
  • Venezuela Situation Fact Sheet (UNHCR, 8. mars 2023);
  • Venezuela: UN Experts warn of persisting attacks on civil society, media and trade union leaders (UNCHR, 22. mars 2023);
  • Venezuela: Utsatte grupper og reaksjoner fra myndighetene (Landinfo, 11. júní 2020);
  • Venezuela: Treatment of citizens by the authorities based on whether or not they participate in anti-government protests, including whether some are more targeted than others and for what reasons; whether access to social security programs may be affected by political activities (2017–January 2021) (Immigration and Refugee Board of Canada, 3. febrúar 2021);
  • The World Factbook – Venezuela (Central Intelligence Agency, síðast uppfært 29. ágúst 2023);
  • What’s Ahead for Venezuela’s Crisis (World Politics Review, 20. apríl 2023);
  • World Report 2022 – Venezuela (Human Rights Watch, 15. janúar 2022) og
  • World Report 2023 – Venezuela (Human Rights Watch, 12. janúar 2023).

Venesúela er stjórnarskrárbundið lýðveldi með rúmlega 30 milljónir íbúa. Í landinu aðhyllast um 96% íbúa kristna trú, þar af meirihlutinn rómversk-kaþólska trú. Hinn 15. nóvember 1945 gerðist Venesúela aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi ásamt alþjóðasamningi um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1978. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um afnám allrar mismununar gegn konum árið 1983 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 1991.

Í framangreindum skýrslum, þ. á m. skýrslum bandarísku utanríkisþjónustunnar frá 2022 og 2023, bandarísku leyniþjónustunnar frá 2023 og Human Rights Watch frá 2023, kemur fram að Venesúela sé fjölflokka lýðræðisríki að nafninu til. Nicolás Maduro, forseti landsins frá árinu 2013, hafi hins vegar styrkt völd sín jafnt og þétt og um leið veikt löggjafar-, framkvæmdar- og dómsvald landsins. Stjórnarkreppa hafi ríkt í Venesúela frá árinu 2019. Forsetatíð Nicolás Maduro hafi lokið 10. janúar 2019, en hann hafi neitað að afsala sér völdum og haldið því fram að hann hafi unnið sigur í forsetakosningum árið áður. Niðurstöður kosninganna, sem hafi sætt mikilli gagnrýni og hvorki talist óháðar né sanngjarnar, hafi verið ógiltar af venesúelska þinginu. Hinn 23. janúar 2019 hafi stjórnarandstaðan lýst Juan Guaido, forseta venesúelska þingsins, forseta til bráðabirgða. Guaido hafi haft fullt stjórnskipulegt umboð frá þinginu og yfir 50 ríki hafi viðurkennt lögmæti hans sem bráðabirgðaforseta, þ. á m. Bandaríkin og flest ríki innan Evrópusambandsins. Þrátt fyrir það hafi Maduro farið með stjórn allra ríkisstofnana landsins auk þess sem hann hafi notið stuðnings öryggissveita. Guaido hafi því ekki getað beitt valdheimildum sínum og aðeins haft yfirráð yfir nokkrum sendiráðum og eignum Venesúela erlendis. Samkvæmt skýrslu Evrópusambandsins frá árinu 2022 hefur stjórnarandstaðan sniðgengið þrennar kosningar í landinu frá árinu 2015 vegna skorts á lýðræðislegum skilyrðum en hafi árið 2021 verið boðið að sitja í kjörstjórn sveitastjórnarkosninga og hafi sendinefnd á vegum Evrópusambandsins verið boðið að fara með kosningaeftirlit þeirra. Stjórnarandstaðan hafi tekið þátt í kosningunum en framkvæmd þeirra hafi hins vegar verið ábótavant. Í nóvember 2022 hafi samningaviðræður milli stjórnarandstöðunnar og ríkistjórnar Maduro hafist að nýju en þær hafi legið niðri síðan í október 2021. Samningsaðilar hafi komist að samkomulagi um að bæta mannúðarástand í landinu með stofnun sjóðs á vegum Sameinuðu þjóðanna sem sótt gæti fjármagn í frystar eignir Venesúela erlendis. Í desember 2022 í kjölfar viðræðnanna hafi stjórnaraðstaðan dregið stuðning sinn við Guaido til baka og leyst upp bráðabirgðastjórn hans í landinu þar sem honum hafi mistekist að ná þeim yfirráðum sem stefnt hafi verið að. Markmið stjórnarandstöðunnar sé enn að koma Maduro frá völdum en hún telji Guaido ekki réttan fulltrúa sinn. Vonir standi til þess að þær viðræður sem hafi hafist í nóvember 2022 leiði til frjálsra lýðræðislegra kosninga árið 2024. Stjórnarandstaðan stefni að því að velja sinn fulltrúa í kosningunum haustið 2023.

Í skýrslu EASO frá 2020 kemur fram að fljótlega eftir að Maduro hafi orðið forseti árið 2013 hafi olíuverð farið hríðlækkandi. Olía hafi lengi verið helsta tekjulind Venesúela og hafi um helmingur af árlegum tekjum ríkissjóðs komið til vegna olíuvinnslu. Lækkun olíuverðs hafi, ásamt efnahagsstefnu stjórnvalda og íþyngjandi regluverki er snúi að atvinnulífinu, átt þátt í niðursveiflu hagkerfisins í Venesúela. Óðaverðbólga og kreppa hafi dregið verulega úr kaupmætti almennings í landinu og orsakað skort á matvælum, lyfjum og öðrum nauðsynjavörum. Þrátt fyrir að lágmarkslaun hafi verið hækkuð hafi meginþorri almennings ekki getað keypt nauðsynjavörur eða framfleytt sér án fjárhagsaðstoðar. Þá kemur fram að öll aðstoð sé veitt í gegnum föðurlandskerfið og föðurlandskortið (s. sistema Patria, Carnet de la Patria) en kortið sé forsenda þess að geta fengið opinbera aðstoð, m.a. matvælaaðstoð í formi svokallaðra CLAP matarpakka (s. Comité Local de Abastecimiento y Producción). Kerfið hafi verið notað til að fylgjast með íbúum og upp hafi komið tilvik þar sem einstaklingum hafi verið neitað um aðstoð vegna þess að þeir hafi verið taldir á móti ríkisstjórn landsins. Þannig hafi föðurlandskortið verið verkfæri til samfélagsstjórnunar í gegnum matvæla- og fjárhagsaðstoð. Í skýrslu Human Rights Watch frá árinu 2023 kemur fram að flestir íbúar Venesúela séu í þörf fyrir aðstoð vegna skorts á mat, vatni, heilbrigðisþjónustu og hreinlæti. Rúmlega sjö milljónir venesúelskra ríkisborgara hafi lagt á flótta eða séu á vergangi vegna ástandsins í landinu og venesúelska flóttamannakrísan sé talin eitt alvarlegasta vandamál nútímans og fólksflutningarnir þeir fjölmennustu í nútímasögu Suður-Ameríku.

Í skýrslu Landinfo frá mars 2023 kemur fram að árið 2021 hafi aukning orðið í olíuframleiðslu í landinu, en Maduro hafi slakað á þeim ströngu reglum sem gilt höfðu um gjaldeyrismál og gefið leyfi fyrir auknum viðskiptum í erlendri mynt. Í kjölfar þess hafi hagkerfið farið að vaxa að nýju eftir að hafa verið í frjálsu falli síðustu ár og talið sé að hagkerfið hafi styrkst um 15% árið 2022. Fátæktin sé þó enn mikil, sérstaklega hjá þeim sem ekki hafi aðgang að erlendum gjaldeyri. Þá kemur fram að efnahagsástand í landinu hafi farið batnandi síðan árið 2019 þrátt fyrir að enn sé langt í land. Í kjölfar afléttinga ýmissa innflutningshafta og lækkunar verðbólgu hafi framboð af matvælum og lyfjum aukist. Samt sem áður hafi fæstir efni á að nálgast slíkt sökum lágra launa og hækkandi matvöruverðs. Flestir sem yfirgefi landið geri það af efnahagslegum ástæðum. Ástandið í Karakas sé mun betra en á öðrum svæðum þar sem rafmagnsleysi hafi áhrif á aðgengi fólks að bæði rafmagni og rennandi vatni. Samkvæmt skýrslunni hafi um 50% heimila í Venesúela verið undir fátæktarmörkum árið 2022 samanborið við 65% árið 2021 og 87% árið 2017.

Í skýrslu Freedom House frá 2021 kemur fram að strangar hömlur hafi verið settar á grundvallarréttindi venesúelskra ríkisborgara, þ. á m. á tjáningar-, samkomu- og félagafrelsi. Stjórnarandstæðingar, blaðamenn, aðgerðarsinnar, mótmælendur og einstaklingar sem taldir séu andsnúnir ríkistjórninni hafi verið skotmörk yfirvalda og hafi m.a. þurft að sæta handahófskenndum rannsóknum og handtökum. Í skýrslu Freedom House frá 2023 kemur fram að yfirvöld í landinu hafi takmarkað borgaraleg réttindi og sótt til saka pólitíska andstæðinga sína án réttlátrar málsmeðferðar. Þrátt fyrir að efnahagur landsins hafi náð vexti á ný eftir margra ára samdrátt sé enn mannúðarkrísa í landinu sem drifin sé af pólitísku ójafnvægi. Í skýrslu Human Right Watch frá 2023 kemur fram að ríkisstjórn landsins hafi fangelsað pólitíska andstæðinga sína. Að minnsta kosti 114 pólitískir fangar hafi dvalið í meira en þrjú ár í gæsluvarðhaldi sem samræmist ekki hegningarlögum landsins. Öryggissveitir og vopnaðir hópar sem styðji ríkisstjórnina hafi ítrekað ráðist á mótmælendur með ofbeldisfullum árásum, barsmíðum og skotárásum. Dómskerfi landsins hafi hætt að starfa sem óháð ríkisvald árið 2004 og hafi dómsmálayfirvöld verið samsek venesúelskum yfirvöldum í misnotkun á kerfinu, t.a.m. með því að gefa út afturvirkar heimildir til handtöku og fyrirskipa gæsluvarðhöld á grundvelli ónægra sönnunargagna. Í samantekt rannsóknarnefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna frá 22. mars 2023 kemur m.a. fram að yfirvöld handtaki enn pólitíska andstæðinga sína, hindri mótmæli verkalýðsfélaga og loki fjölmiðlum. Varðhald og pyndingar af hálfu stjórnvalda hindri tjáningarfrelsi og réttinn til mótmæla. Handahófskennd gæsluvarðhöld af pólitískum ástæðum séu enn áhyggjuefni og séu að minnsta kosti 282 einstaklingar enn í haldi, þ. á m. óbreyttir borgarar og hermenn.

Í skýrslu EASO frá 2020 kemur fram að morðtíðni í Venesúela sé ein sú hæsta í Mið- og Suður-Ameríku. Frá 2018 til 2019 hafi morðum fækkað en það sé ekki til marks um að ofbeldi í landinu hafi farið minnkandi. Vopnahópum hafi tekist að viðhalda yfirráðasvæðum sínum og komið á fót eiginlegum smáríkjum (e. micro-states) innan Venesúela sem hafi gert það að verkum að dregið hafi úr átökum milli stríðandi fylkinga. Þá megi rekja fækkun morða til aukinnar fátæktar og flutnings fólks úr landi. Mannránum hafi einnig fækkað og megi rekja það til erfiðleika við greiðslu lausnargjalda vegna óðaverðbólgu. Á sama tíma hafi tíðni annarra glæpa aukist, s.s. fjárkúgun, fíkniefnasala og heimilisofbeldi. Venezuelan Observatory of Violence gefur árlega út skýrslu um glæpatíðni í landinu. Í skýrslu þeirra frá desember 2020 kemur fram að morðtíðni í landinu það ár hafi verið um 45,6 morð á hverja hundrað þúsund íbúa. Þá hafi orðið aukning í morðum af hálfu yfirvalda en árið 2020 hafi verið fyrsta árið, frá árinu 2016, þar sem skráð morð af hálfu lögreglu hafi verið fleiri en af hálfu annarra gerenda. Í skýrslu þeirra frá desember 2021 kemur fram að morðtíðni það ár hafi verið 40,9 morð á hverja hundrað þúsund íbúa og a.m.k. 6,3 morð hafi verið framin á hverjum degi af hálfu yfirvalda. Aukning hafi orðið á morðum sem skráð séu óupplýst og því óvíst um gerendur og þá hafi orðið aukning í óútskýrðum mannshvörfum, eða um 4,4 mannshvörf á dag árið 2021. Í skýrslu þeirra frá desember 2022 kemur fram að morðtíðni fari lækkandi en tíðni síðasta árs hafi verið um 40,4 morð á hverja hundrað þúsund íbúa.

Samkvæmt framangreindum skýrslum, m.a. skýrslu bandarísku leyniþjónustunnar (CIA) frá árinu 2023 og skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2022, heyra lögreglu- og öryggismál landsins m.a. undir alríkislögregluna, herlögregluna, svæðisbundin lögregluembætti og lögregluembætti sveitarfélaga. Um 45 þúsund lögreglumenn starfi hjá alríkislögreglunni en yfirvöld hafi gefið það út að stefnt sé að því að fjölga þeim í 100 þúsund árið 2024. Í fyrrnefndri skýrslu bandarísku utanríkisþjónustunnar kemur fram að stjórn yfirvalda yfir öryggissveitum landsins hafi minnkað undanfarin ár. Hin ólögmæta og sífellt óvinsælli ríkisstjórn Maduro hafi treyst á hersveitir-, leyniþjónustu og vopnahópa (Colectívos) til þess að veikja stöðu stjórnarandstæðinga og draga úr vilja almennings til mótmæla. Í skýrslu Landinfo frá 2019 kemur fram að Colectívos sé sameiginlegt heiti yfir vopnahópa sem starfi í Venesúela og styðji ríkisstjórnina. Colectívos, sem samanstandi af allt að 100 mismunandi vopnahópum, séu með viðveru um land allt. Óljóst sé að hve miklu leyti vopnahópunum sé stjórnað af yfirvöldum en Colectívos hafi verið þátttakendur í aðgerðum yfirvalda gegn mótmælendum og stjórnarandstæðingum ríkisstjórnar Maduro. Í niðurstöðuskýrslu óháðrar nefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna (e. Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela) frá 2020 er fjallað um ítarlega rannsókn á aðgerðum yfirvalda í Venesúela frá árinu 2014. Nefndin komst að þeirri niðurstöðu að yfirvöld í Venesúela og vopnahópar á þeirra vegum hafi framið svívirðilega glæpi, þ. á m. kerfisbundnar pyndingar og aftökur án dóms og laga, sem geti fallið undir skilgreiningu á glæpum gegn mannkyni (e. crimes against humanity). Meirihluti glæpanna hafi verið hluti af kerfisbundnu ofbeldi gegn almenningi í samræmi við eða til að framfylgja stefnu stjórnvalda, m.a. í því skyni að þagga niður, letja eða brjóta á bak aftur andstöðu tiltekinna einstaklinga við ríkisstjórn Maduro og að berjast gegn glæpum. Þá hafi háttsettir embættismenn og herforingjar haft vitneskju um glæpina og ekki gripið til aðgerða til að sporna gegn þeim. Samtök Ameríkuríkja (e. Organization of American States, OAS) hafa í skýrslum sínum frá 2020 og 2021 komist að sömu niðurstöðu. Í skýrslunum kemur m.a. fram að umfang og alvarleiki glæpa gegn mannkyni í Venesúela hafi aukist frá því að fyrri skýrsla samtakanna hafi verið gefin út árið 2018. Skráð tilvik aftaka án dóms og laga séu yfir 18 þúsund og fjöldi einstaklinga hafi þurft að sæta handahófskenndum handtökum og varðhöldum. Þvinguð mannshvörf hafi verið tíð og yfirvöld hafi beitt ýmsum aðferðum við pyndingar, s.s. kynferðislegu ofbeldi. Samkvæmt skýrslu Human Rights Watch frá 2023 gaf saksóknari alþjóðlega sakamáladómstólsins (International Criminal Court (ICC)) út yfirlýsingu í nóvember 2021 um þá ákvörðun sína að hefja rannsókn á ætluðum glæpum gegn mannkyni sem framdir hafi verið í Venesúela. Í mars 2022 hafi saksóknarinn fengið heimild til að opna skrifstofu sína í Karakas og samkvæmt skýrslu mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna frá júní 2022 hefur dregið verulega úr dauðsföllum í aðgerðum öryggissveita þó nefndin telji að slíkar aðgerðir hafi haldið áfram.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023 kemur fram að konur njóti sömu réttinda og karlar samkvæmt stjórnarskrá landsins. Konur og karlar séu lagalega jöfn í hjónabandi, lögin kveði á um jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði og vinnuveitendur megi ekki mismuna konum varðandi laun eða vinnu. Engu að síður sé ójöfnuður á vinnumarkaði viðvarandi og lögum ekki framfylgt. Í skýrslunni kemur einnig fram að dómsmálaráðherra Venesúela hafi sett á fót stofnun sem taki á móti kvörtunum vegna ofbeldis gegn konum og börnum. Ráðherra hafi sett saman teymi lögfræðinga, geðlækna og annarra sérfræðinga sem eingöngu hafi sinnt málum er tengjast morðum á konum, kynbundnu ofbeldi og öðrum glæpum gegn konum. Nauðgun sé refsiverð í Venesúela og geti varðað fangelsi allt að 14 árum. Þá kveði lögin á um tuttugu til þrjátíu ára fangelsisrefsingu fyrir morð á konum og refsingu fyrir líkamlegt, kynferðislegt eða andlegt ofbeldi. Lögreglan í landinu sé þó treg við að grípa inn í og koma í veg fyrir ofbeldi í samböndum og sé ekki þjálfuð til að takast á við slík mál. Þrátt fyrir að lög í landinu kveði á um refsingar fyrir ofbeldi gegn konum sé lögunum sjaldan fylgt í raun.

Samkvæmt skýrslum mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna, innflytjenda- og flóttamannanefndar Kanada og Landinfo frá 2023 eru bæði opinberar og einkareknar heilbrigðisstofnanir í Venesúela en aðeins 3% íbúa Venesúela hafi tök á að nýta sér þjónustu einkarekinna heilbrigðisstofnana. Yfir 200 opinber sjúkrahús og fjöldi heilsugæslustöðva séu í landinu en þar hafi skort allar helstu nauðsynjar til að sinna sjúklingum síðustu ár. Í framangreindum skýrslum, þ. á m. skýrslum Human Rights Watch frá 2022 og 2019 og EASO frá 2020, kemur fram að frá árinu 2012 hafi heilbrigðisþjónusta í landinu farið versnandi. Innviðir heilbrigðiskerfisins séu veikburða og skortur sé á heilbrigðisvörum og lyfjum. Árið 2022 hafi stjórnvöld áfram stutt við aðgengi að heilbrigðisþjónustu og lyfjum á fátækustu svæðum landsins en aðbúnaði sé ábótavant og skortur sé á heilbrigðisstarfsfólki sem hafi flúið land í miklum mæli. Fjölda sjúkrahúsa hafi verið lokað undanfarin ár og afkastageta þeirra sjúkrahúsa sem enn séu starfrækt hafi verið takmörkuð, t.a.m. hafi mörg þeirra ekki haft reglulegan aðgang að rafmagni og vatni. Umfang vandans liggi ekki fyrir vegna vanrækslu yfirvalda við birtingu heilbrigðisupplýsinga. Þó liggi fyrir að barnadauði og útbreiðsla sjúkdóma sem hefði mátt koma í veg fyrir með bólusetningum, s.s. barnaveiki, malaríu og mislinga, hafi aukist verulega á undanförnum árum. Heilbrigðiskerfið í Venesúela hafi verið illa undirbúið fyrir Covid-19 faraldurinn og hafi einstaklingar sem greinst hafi með sjúkdóminn ekki fengið viðeigandi meðferð. Þá hafi læknar og annað heilbrigðisstarfsfólk sætt hótunum og jafnvel handtökum af hálfu yfirvalda hafi þau tjáð skoðanir sínar opinberlega á stöðu heilbrigðiskerfisins og aðgerðarleysi stjórnvalda í þeim málum. Í skýrslu Human Rights Watch frá árinu 2023 kemur fram að Venesúela standi enn frammi fyrir alvarlegri mannúðarkrísu þar sem milljónir hafi ekki aðgang að fullnægjandi heilbrigðisþjónustu og næringu. Í mars 2023 hafi rúmlega átta milljónir alvarlega veikra einstaklinga átt í erfiðleikum með að fá heilbrigðisþjónustu í Venesúela og meira en níu milljónir sem þurft hafi á lyfjum eða heilbrigðisþjónustu að halda hafi ekki haft efni á að nálgast slíkt. Aðgangur að drykkjarvatni og hreinlætisaðstöðu hafi dregist saman frá árinu 2021 til ársins 2022 sem m.a. hafi leitt til þess að rúmlega fjórar milljónir séu í mikilli þörf fyrir drykkjarvatn.

Frá árinu 2021 hefur hagkerfi landsins farið að vaxa að nýju og í skýrslu mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá september 2023 kemur fram að hagvöxtur hafi aukist um 17,3% árið 2022. Þrátt fyrir hagvöxt hafi önnur atvik og aðstæður áfram haft neikvæð áhrif á nauðsynlega almannaþjónustu, s.s. samgöngur, menntun og heilbrigðisþjónustu. Í framangreindri skýrslu Human Right Watch frá árinu 2023 kemur fram að nýkjörinn forseti Kólumbíu hafi tilkynnt að hann hygðist opna landamærin að Venesúela að nýju og hafi skipað sendiherra sem tekið hafi við embætti í Karakas 29. ágúst 2022. Í apríl 2022 hafi argentínsk yfirvöld tilkynnt áform sín um að endurnýja stjórnmálasamband við Venesúela. Í mars og júní 2022 hafi Bandaríkin sent opinberar sendinefndir til Venesúela í fyrsta sinn í mörg ár til samræðna vegna áhuga stjórnar landsins á að opna fyrir olíuviðskipti við Venesúela að nýju. Í nóvember 2022 hafi orðið vendipunktur í stjórnarfari Venesúela þegar ríkisstjórn Maduro og stjórnarandstaðan hafi undirritað samkomulag um að auka mannúðaraðstoð í landinu. Samkomulagið kveði á um úthlutun þriggja milljarða Bandaríkjadala til velferðarmála, m.a. til að tryggja betri heilbrigðisþjónustu, fæðuöryggi og rafmagn í landinu, en fram að þessum tíma hafi Maduro, forseti landsins, verið tregur við að þiggja mannúðaraðstoð þrátt fyrir þrýsting frá Bandaríkjunum og öðrum löndum. Þá hafi samningsaðilar samþykkt að halda viðræðum áfram um hin ýmsu mannréttindamál og ákvarða nákvæma tímasetningu kosninga í landinu árið 2024. Bandaríkin hafi í nóvember 2022 dregið úr viðskiptaþvingunum í kjölfar samningaviðræðna ríkistjórnar landsins og stjórnarandstöðunnar og hafi heimilað bandarísku fyrirtæki að hefja að nýju vinnslu á olíu frá Venesúela og innflutning á henni til Bandaríkjanna. Samkvæmt sameiginlegri yfirlýsingu Evrópusambandsins, Bandaríkjanna, Kanada og Bretlands 26. nóvember 2022 hyggjast ríkin endurskoða viðskiptaþvinganir sínar verði sýnt fram á lýðræðislegar umbætur í Venesúela. Samkvæmt frétt á heimasíðu Sameinuðu þjóðanna fór mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna, Volker Türk, í opinbera heimsókn til Venesúela í janúar 2023. Türk fundaði með Maduro forseta landsins sem lýsti opinberlega yfir vilja til að vinna að því að bæta réttarkerfi landsins. Türk hafi þá boðið fram stuðning og sérfræðiþekkingu til að fylgja því eftir. Türk hafi einnig hitt varaforseta landsins, háttsetta embættismenn, yfirmann dómstóla, stjórnarandstöðu og fleiri háttsetta aðila sem allir hafi viðurkennt þörfina á umbótum í landinu. Ítrekaði Türk þá tilmæli sín til aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna um að fresta eða aflétta ráðstöfunum sem grafi undan mannréttindum í landinu. Þá hafi Türk hvatt yfirvöld í Venesúela til að efla samstarf sitt við stofnanir Sameinuðu þjóðanna til að tryggja frjálsa, örugga og virðulega endurkomu þeirra sem kjósi að snúa aftur til heimaríkis. Í skýrslu Landinfo frá árinu 2023 kemur fram að frá árinu 2019 hafi Sameinuðu þjóðirnar aukið viðveru sína og mannúðaraðstoð í landinu. Þá hafi aðgengi ýmissa hjálparsamtaka að landinu aukist en aðstoðin komi aðallega frá Sameinuðu þjóðunum, Rauða krossinum og öðrum alþjóðlegum félagasamtökum. Í ávarpi mannréttindastjóra Sameinuðu þjóðanna, Volker Türk, til mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna, dags. 5. júlí 2023, kemur fram að skráðum tilvikum drápa af hálfu öryggisstofnana, og tilkynningum um pyndingar og illa meðferð haldi áfram að fækka. Stjórnvöld hafi haldið áfram að saksækja og refsa embættismönnum sem gerst hafi sekir um pyndingar og illa meðferð. Þó þurfi stjórnvöld að halda áfram að bregðast við tilkynningum um slíka glæpi án undantekninga og af gagnsæi. Í skýrslu hinnar óháðu nefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna um stöðu mála í Venesúela, frá 18. september 2023, kemur fram að að einhver árangur hafi náðst við að draga þá til ábyrgðar sem framið hafi þau brot sem nefndin hafi rannsakað. Þó telji nefndin ástæðu til að ætla að stjórnvöld hafi ekki gert nauðsynlegar breytingar á stofnunum og hafi jafnvel stuðlað að framgangi þeirra sem beri ábyrgð á ofbeldinu. Þá hafi árásum á borgaralegum og lýðræðislegum vettvangi fjölgað á ný. Sé það einkum vegna stefnu stjórnvalda er miði að því að þagga niður í stjórnarandstöðu og gagnrýni á forseta landsins og ríkisstjórn hans. Þrátt fyrir að nefndinni hafi borist færri tilkynningar um meint alvarleg mannréttindabrot síðasta ár en undanfarin ár, hafi hún skrásett fjölda slíkra brota gegn raunverulegum og ætluðum andstæðingum ríkisstjórnarinnar. Brotin hafi einkum beinst að ákveðnum meðlimum borgaralegs samfélags, þ. á m. verkalýðsleiðtogum, blaðamönnum og baráttufólki fyrir mannréttindum.

Ákvæði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 37. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki, verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.

Kærunefnd hefur við mat sitt á umsókn kæranda haft til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá hefur aðferðarfræði trúverðugleikamats kærunefndar tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Kærendur byggja umsóknir sínar á því að þau séu í hættu í heimaríki vegna almenns ástands þar í landi.

Kærendur hafa ekki borið fyrir sig að hafa sætt ofsóknum eða að þau óttist ofsóknir af hálfu stjórnvalda í heimaríki sem hafa eða gætu náð því alvarleikastigi sem 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga mælir fyrir um. Þá benda önnur gögn málsins ekki til þess að slíkar ofsóknir hafi átt sér stað eða að kærendur eigi þær á hættu en heimildir bera með sér að einkum áberandi aðilar í stjórnarandstöðuflokkum, blaðamenn, aðgerðarsinnar, mótmælendur og einstaklingar sem taldir séu andsnúnir ríkistjórninni hafi verið skotmörk yfirvalda og hafi m.a. þurft að sæta handahófskenndum rannsóknum og handtökum.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi K frá því að óttast glæpamenn í heimaríki. Tvær tilraunir hafi verið gerðar til að ræna hana, í þriðja skiptið hafi það tekist en þá hafi veski hennar og skólabækur verið teknar þegar hún hafi verið í strætó á leið úr háskólanum. M greindi frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að hafa vegna misskilnings verið ógnað með byssu. Kærendur óttast þá almennt ástand í heimaríki.

Að teknu tilliti til framangreinds er að mati kærunefndar ekki ástæða til að draga í efa frásagnir kærenda. Aftur á móti hafa kærendur ekki borið fyrir sig að eiga á hættu ofsóknir af neinum þeim ástæðum sem taldar eru upp í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá hafa kærendur engin gögn lagt fram sem sýna fram á að þau hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir í skilningi ákvæðisins. Með vísan til framangreinds er það niðurstaða kærunefndar að kærendur hafi ekki með rökstuddum hætti leitt líkur að því að þau hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. mgr. 38. gr. laganna.

Telur kærunefnd því ljóst að kærendur uppfylli ekki skilyrði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi.

Ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram þegar metið er hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008, 110 mgr., og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997, 40. mgr.).

Mannréttindadómstóll Evrópu hefur talið ómannlega meðferð vera m.a. þá sem beitt er að yfirlögðu ráði, í margar klukkustundir í senn og veldur annað hvort líkamlegu tjóni eða alvarlegum andlegum eða líkamlegum þjáningum, sbr. t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Kudła gegn Póllandi (nr. 30210/96) frá 26. október 2000, 92. mgr., og M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, (nr. 30696/09) frá 21. janúar 2011, 220. mgr. Þá hefur dómstóllinn talið meðferð vera vanvirðandi í skilningi 3. gr. mannréttindasáttmálans þegar meðferðin niðurlægir eða lítillækkar einstakling, sýnir skort á virðingu fyrir eða gerir lítið úr mannlegri reisn hans, eða skapar ótta, angist eða vanmátt, sem er til þess fallið að brjóta niður líkamlegt eða andlegt mótstöðuafl viðkomandi, sbr. t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Pretty gegn Bretlandi (nr. 2346/02) frá 29. apríl 2002, 52. mgr., og M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 220. mgr. Dómurinn hefur talið að þó að líta verði til þess hvort meðferðin sé af ásetningi sé það ekki að öllu leyti útilokað að hún teljist brot á 3. gr. þó svo hafi ekki verið, sbr. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Peers gegn Grikklandi (nr. 28524/95) frá 19. apríl 2001, 74. mgr. Þá hefur dómurinn sagt að ef alvarleg mannúðarkrísa í landi stafi m.a. af aðgerðum eða aðgerðarleysi stjórnvalda sem og aðgerðum annarra aðila sem stjórnvöld bregðist ekki við geti slík staða leitt til þess að endursending til þess ríkis teljist vanvirðandi meðferð sem brjóti gegn 3. gr. mannréttindasáttmálans, sbr. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Sufi og Elmi gegn Bretlandi (nr. 8319/07 og 11449/07) frá 28. nóvember 2011, 282. og 283. mgr. Sé þá rétt að horfa til nálgunar dómsins í M.S.S gegn Belgíu og Grikklandi frekar en í N. gegn Bretlandi (nr. 2656/05) frá 27. maí 2008. Þannig skuli horft til möguleika umsækjanda á því að fullnægja grunnþörfum sínum, líka á að hann verði fyrir illri meðferð og hvort aðstæður hans muni batna innan skynsamlegs tímaramma.

Á árunum 2018 til 2020 veitti Útlendingastofnun umsækjendum um alþjóðlega vernd frá Venesúela viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga með vísan til almennra aðstæðna í heimaríki óháð einstaklingsbundnum aðstæðum hvers umsækjanda. Í maí og júní árið 2021 bárust kærunefnd kærur í fjórum málum þar sem Útlendingastofnun hafði synjað venesúelskum ríkisborgurum um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Í ákvörðunum Útlendingastofnunar var m.a. vísað til samantektarskýrslu EASO, dags. 4. júní 2020, um framkvæmd annarra Evrópuríkja í málum umsækjenda um alþjóðlega vernd frá Venesúela (e. Policy and Practice toward Venezuelan applicants for international protection). Þá var vísað til dóma Mannréttindadómstóls Evrópu og úrskurðar kærunefndar útlendingamála í Noregi (n. Stornemnd), dags. 12. júní 2020, þar sem meirihluti nefndarinnar komst að þeirri niðurstöðu að almennt öryggisástand í Venesúela væri ekki með þeim hætti að allir ríkisborgarar landsins ættu rétt á viðbótarvernd.

Með úrskurðum kærunefndar nr. 451/2021, 452/2021, 453/2021 og 454/2021, dags. 16. september 2021, voru framangreindar ákvarðanir Útlendingastofnunar felldar úr gildi. Í úrskurðum kærunefndar kom m.a. fram að samkvæmt heimildum hafi öryggisástand og almennar aðstæður í Venesúela ekki tekið framförum á undanförnum árum. Þvert á móti hefðu nýleg gögn, þ. á m. skýrsla OAS frá 2020, gefið til kynna að ástandið í landinu hefði farið versnandi og að umfang og alvarleiki glæpa gegn mannkyni hefði aukist. Var því ekki ráðið af upplýsingum um ástandið í Venesúela af hvaða ástæðum Útlendingastofnun hefði talið rétt að breyta fyrri framkvæmd sinni og synja kærendum um viðbótarvernd hér á landi.

Hinn 17. desember 2021 tilkynnti Útlendingastofnun um breytta stjórnsýsluframkvæmd við mat á þörf ríkisborgara Venesúela fyrir viðbótarvernd. Breytingin, sem tók gildi, 1. janúar 2022, fól það í sér að Útlendingastofnun lagði einstaklingsbundið mat á umsóknir ríkisborgara Venesúela um vernd hér á landi og hafði það í för með sér að einstaklingar fengu ekki skilyrðislaust viðbótarvernd á grundvelli almennra aðstæðna í heimaríki. Umsækjendur kærðu ákvarðanir Útlendingastofnunar sem byggðu á framangreindri framkvæmd til kærunefndar. Með úrskurði kærunefndar nr. 231/2022, dags. 18. júlí 2022, felldi nefndin ákvörðun Útlendingastofnunar um synjun á umsókn venesúelsks ríkisborgara um alþjóðlega vernd hér á landi, sbr. 1. og 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, úr gildi og veitti kæranda þess máls viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Komst nefndin að þeirri niðurstöðu að ástandið í Venesúela hefði ekki breyst til batnaðar frá þeirri framkvæmd sem mörkuð hafði verið af Útlendingastofnun frá árinu 2018. Var það niðurstaða nefndarinnar að þegar markvissar aðgerðir stjórnvalda til að bæla niður stjórnarandstöðu í landinu, alvarlegt efnahagsástand þar sem laun dygðu ekki til að uppfylla grunnþarfir almennings í landinu, skortur á hreinu drykkjarvatni, há glæpatíðni, skortur á lögregluvernd og algert hrun réttarkerfisins legðust saman gætu aðstæður einstaklinga við endursendingu til Venesúela náð því marki að rétt væri að veita þeim viðbótarvernd hér á landi. Hefði því ástandið í Venesúela ekki breyst til batnaðar síðan nefndin úrskurðaði í sambærilegum málum árið 2021 og því væru ekki forsendur til að komast að annarri niðurstöðu og þannig víkja frá þeirri framkvæmd. Mat nefndin það sem svo að aðstæður í Venesúela væru slíkar að raunhæf ástæða væri til þess að ætla að kærandi ætti á hættu að sæta þar meðferð sem næði því marki að teljast ómannúðleg eða vanvirðandi, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Var það mat nefndarinnar byggt á alþjóðlegum skýrslum og heildstæðu mati á aðstæðum kæranda í Venesúela og því ástandi sem þá ríkti. Þá tók nefndin það fram í niðurstöðu sinni að ljóst væri að aðgerðir og aðgerðarleysi stjórnvalda í Venesúela ykju enn fremur á alvarleika ástandsins þar í landi. Þá mætti ætla að vegna skoðana kæranda og andstöðu hans við stjórnvöld myndu stjórnvöld í Venesúela hvorki hafa vilja né getu til að veita honum þá aðstoð sem honum væri nauðsynleg til að vera öruggur og mæta grunnþörfum sínum.

Í nóvember 2022 ákvað Útlendingastofnun að stöðva tímabundið afgreiðslu mála er vörðuðu umsóknir einstaklinga frá Venesúela um alþjóðlega vernd hér á landi og beið stofnunin með að taka ákvarðanir í slíkum málum fram í mars 2023. Með ákvörðunum Útlendingastofnunar í málum kærenda, dags. 31. mars 2023, komst stofnunin að þeirri niðurstöðu að gögn um Venesúela bæru ekki með sér að almennar aðstæður í landinu næðu því alvarleikastigi að þær einar og sér ættu að leiða til þess að allir sem staddir væru í Venesúela ættu á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð vegna aðstæðna sem stjórnvöld eingöngu eða að mestu leyti hafi valdið. Þá taldi Útlendingastofnun gögn benda til þess að efnahags- og mannúðarástand hefði stöðugt batnað í landinu frá árinu 2019. Var það mat Útlendingastofnunar að þrátt fyrir aðgerðir stjórnvalda til að bæla niður andstöðu í landinu næðu þær aðgerðir ekki því alvarleikastigi að þær teldust einar og sér leiða til þess að allir sem staddir væru í Venesúela ættu á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Gögnin bæru með sér að aðgerðir og athafnir venesúelskra stjórnvalda sem talist gætu ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð hafi beinst að tilteknum einstaklingum sem álitnir væru andstæðingar stjórnvalda. Þá hafi Útlendingastofnun horft til upplýsinga frá mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna þess efnis að dauðsföllum vegna öryggisaðgerða stjórnvalda og andlátum vegna ofbeldis hefði fækkað verulega, auk þess sem alþjóðlegar skýrslur bæru með sér að hætta á dauðsföllum í öryggisaðgerðum stjórnvalda væri bundin við tengsl eða ætluð tengsl við glæpastarfsemi og að þær öryggisaðgerðir ættu sér aðallega stað í jaðarsettum hverfum þar sem fátækt væri mikil. Þá hafi gögn bent til þess að þrátt fyrir að skort hafi á skilvirkni í réttarvörslukerfi landsins þá veitti lögregla í landinu almenningi aðstoð. Þá bæru gögnin einnig með sér að aðstæður hvers og eins í Venesúela væru breytilegar og bæru ekki með sér að allir íbúar landsins liðu alvarlegan skort sem væri ósamrýmanlegur mannlegri reisn. Það var því mat Útlendingastofnunar í ljósi þess að ástandið í Venesúela færi batnandi ásamt því að stjórnvöld hafi sýnt vilja og getu til að bæta aðstæður einstaklinga þar í landi að aðstæður nú væru ekki þær sömu og voru uppi þegar úrskurður kærunefndar útlendingamála nr. 231/2022 var kveðinn upp í júlí árið 2022. Því þyrfti að meta hverja og eina umsókn út frá einstaklingsbundnum aðstæðum og fyrirliggjandi heimildum.

Af stöðu og hlutverki kærunefndar útlendingamála gagnvart Útlendingastofnun leiðir að úrskurðir nefndarinnar eru bindandi sem fordæmi fyrir stofnunina. Á grundvelli jafnræðisreglu 11. gr. stjórnsýslulaga eiga aðilar mála hjá Útlendingastofnun jafnframt rétt á því að mál þeirra fái sambærilega úrlausn og meðferð og sambærileg mál sem hafa fengið úrlausn kærunefndar útlendingamála, þ.m.t. að matskenndum lagaheimildum sé beitt með sama hætti við úrlausn sambærilegra mála. Til þess er að líta að flóttamannaréttur er kvikt réttarsvið að því leyti að matið á því hvort einstaklingar geti átt rétt á alþjóðlegri vernd vegna aðstæðna í heimaríki miðast ávallt við aðstæður í viðkomandi ríki á hverjum tíma og persónubundnum aðstæðum umsækjanda. Geta aðstæður í einstaka ríkjum breyst með skömmum fyrirvara og því mikilvægt að stjórnvöld sem taka ákvarðanir vegna umsókna um alþjóðlega vernd rannsaki vandlega aðstæður í heimaríki umsækjenda á þeim tíma sem ákvörðun er tekin. Hafa því fordæmi æðra setts stjórnvalds í slíkum málum, hvað aðstæður í viðkomandi ríki áhrærir, aðeins gildi svo fremi að aðstæðurnar hafi ekki breyst.

Í framangreindum gögnum kemur fram að yfirvöld í Venesúela og vopnahópar á þeirra vegum eru talin hafa, frá árinu 2014, framið glæpi sem geta fallið undir skilgreiningu á glæpum gegn mannkyni (e. crimes against humanity). Hafi meirihluti glæpanna verið hluti af kerfisbundnu ofbeldi gegn almenningi í samræmi við eða til að framfylgja stefnu stjórnvalda, m.a. í því skyni að þagga niður, letja eða brjóta á bak aftur andstöðu tiltekinna einstaklinga við ríkisstjórn Maduro og að berjast gegn glæpum. Að virtum gögnum um Venesúela, m.a. nýjum alþjóðlegum skýrslum, verður þó ekki ráðið að í landinu sé stríð eða útbreidd vopnuð átök. Öryggisástand er þó ótryggt og glæpa- og morðtíðni há. Aftur á móti hefur dregið úr átökum í landinu undanfarin ár og hafa þau að mestu verið staðbundin við svæði við landamæri Kólumbíu. Verður því, líkt og í úrskurði kærunefndar nr. 231/2022, ekki talið að aðstæður í landinu nái því marki að sérhver einstaklingur sem þangað fari eigi á hættu að láta lífið eða verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum.

Líkt og fram kemur í framangreindum landaupplýsingum hefur efnahagsástandið í Venesúela þokast í rétta átt að nýju frá árinu 2021 með afléttingum ýmissa viðskiptaþvingana, innflutningstakmarkana og verð- og gjaldeyrisstýringar. Alþjóðlegar skýrslur bera með sér að ákveðnar breytingar hafi orðið á stjórnarfari landsins síðasta árið. Með því samkomulagi sem ríkisstjórn Maduro og stjórnarandstaðan undirrituðu í nóvember 2022 virðist viðhorf samningsaðila hafa breyst og bendir það til þess að aðilar séu tilbúnir að vinna saman að bættum aðstæðum í landinu. Gefur það jafnframt tilefni til að ætla að aðstæður í landinu séu aðrar en þegar framangreindur úrskurður kærunefndar frá 18. júlí 2022 var kveðinn upp. Framangreindur samningur og samtal milli stjórnar og stjórnarandstöðu í landinu bera með sér að dregið hafi úr því pólitíska ójafnvægi sem áður ríkti þegar íbúar Venesúela og aðrar þjóðir skiptust í fylkingar með tveimur sitjandi forsetum landsins. Nú hafa stjórnvöld í Venesúela viðurkennt þörfina á mannúðaraðstoð og greint frá þeim vilja sínum að vinna að bættu réttarkerfi í landinu en ríkisstjórn Maduro hafði fram að því hafnað allri mannúðaraðstoð og lokað fyrir innflutning til landsins. Auk þess höfðu fjölmörg ríki heims sett á Venesúela viðskiptaþvinganir sem vonir standa til að létt verði á vinni stjórnvöld í Venesúela með alþjóðasamfélaginu að umbótum í landinu. Í niðurstöðu úrskurðar kærunefndar 18. júlí 2022 byggði nefndin m.a. á því að aðgerðir og aðgerðarleysi stjórnvalda í Venesúela hafi aukið enn fremur á alvarleika ástandsins í landinu, sbr. einnig dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Sufi og Elmi gegn Bretlandi (nr. 8319/07 og 11449/07) frá 28. nóvember 2011. Samkvæmt framangreindum skýrslum lítur út fyrir að forsetakosningar verði í landinu árið 2024, efnahagur landsins hefur þokast í rétta átt síðustu árin, olíuviðskipti hafa hafist að nýju og samningur verið gerður milli stjórnar og stjórnarandstöðu um aukna mannúðaraðstoð í landinu. Með hliðsjón af framangreindu og áður rakinnar dómaframkvæmdar Mannréttindadómstóls Evrópu er það mat kærunefndar að þrátt fyrir alvarlega stöðu í heimaríki kæranda þá nái almennar aðstæður í Venesúela ekki því alvarleikastigi að hver sem þar sé staddur teljist eiga á hættu dauðarefsingu eða ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Er það því mat kærunefndar að frekari persónulegir þættir þurfi að vera til staðar svo umsækjandi um alþjóðlega vernd frá Venesúela teljist eiga á hættu meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur umsjón með framkvæmd flóttamannasamningsins frá árinu 1951. Samkvæmt 35. gr. samningsins hafa samningsríki skuldbundið sig til þess að eiga í samvinnu við Flóttamannastofnun m.a. til að auðvelda stofnuninni eftirlitshlutverk sitt. Á grundvelli ákvæðisins gefur stofnunin út leiðbeiningar til aðildarríkja og stöðuskýrslur um aðstæður í einstaka ríkjum sem m.a. eigi að auðvelda stofnuninni að sinna áðurnefndri eftirlitsskyldu sinni og aðstoða samningsríki við túlkun og beitingu samningsins.

Árið 2019 gaf Flóttamannastofnun út leiðbeiningar vegna umsókna venesúelskra ríkisborgara um alþjóðlega vernd. Í leiðbeiningunum kemur fram að það sé mat stofnunarinnar að meirihluti venesúelskra ríkisborgara hafi ríka þörf fyrir vernd vegna ástandsins í Venesúela. Atburðir undanfarinna ára hafi raskað allsherjarreglu í landinu og sé líf borgara landsins, öryggi og frelsi því í hættu. Í ljósi ástandsins hafi Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hvatt aðildarríki til þess að beita ekki þvinguðum endursendingum gagnvart ríkisborgurum Venesúela. Hinn 19. apríl 2022 sendi kærunefnd fyrirspurn á Flóttamannastofnun og óskaði eftir upplýsingum um hvort framangreind afstaða þeirra hefði tekið breytingum. Í svari, dags. 22. apríl 2022, kom fram að engin breyting hefði orðið á afstöðu Flóttamannastofnunar til endursendinga til Venesúela. Leiðbeiningar stofnunarinnar frá árinu 2019 um að senda venesúelska ríkisborgara ekki aftur til Venesúela gegn þeirra vilja væru því enn í gildi. Kærunefnd sendi að nýju fyrirspurn til Flóttamannastofnunar, dags. 12. júlí 2023. Í svari Flóttamannastofnunar, dags. 26. júlí 2023, kom fram að stofnunin hafi ekki sett fram nýjar leiðbeiningar síðan árið 2019.

Leiðbeiningar Flóttamannastofnunar eru leiðbeinandi fyrir aðildarríkin en ekki bindandi að lögum og eru ekki fyrirvaralaust lagðar til grundvallar í hverju máli. Samkvæmt upplýsingum á vefsíðu Flóttamannastofnunar ber að líta til leiðbeininganna og stöðuskýrslnanna svo fremi sem ekki liggi fyrir nýjar upplýsingar um aðstæður í viðkomandi ríki og ber því að leggja mat á gildi þeirra hverju sinni. Kærunefnd hefur í framkvæmd almennt litið til leiðbeininga Flóttamannastofnunar varðandi endursendingar til annarra ríkja, sbr. 3. mgr. 23. gr. laga um útlendinga, enda liggi ekki fyrir gögn og upplýsingar sem gefi til kynna að aðstæður í viðkomandi ríki hafi breyst til batnaðar frá því að viðkomandi leiðbeiningar Flóttamannastofnunar voru gefnar út. Samkvæmt því sem að framan er rakið liggja nú fyrir alþjóðlegar skýrslur sem benda til þess að ástandið í Venesúela hafi breyst til hins betra frá því framangreindar leiðbeiningar stofnunarinnar voru settar fram árið 2019. Verður því við úrlausn máls þessa höfð hliðsjón af leiðbeiningum Flóttamannastofnunar en jafnframt byggt á nýjustu heimildum um aðstæður í Venesúela.

Heimabær kærenda, [...] í Miranda héraði, er staðsettur í útjaðri höfuðborgar landsins Karakas. Samkvæmt alþjóðlegum skýrslum, m.a. skýrslu Landinfo frá árinu 2023, eru almennar aðstæður í höfuðborginni mun betri en á strjálbýlli stöðum í landinu. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023, kemur fram að ríkislögreglan sé aðallega við störf í höfuðborginni og nágrenni hennar og þá bera heimildir ekki með sér að vopnuð átök eða árásir á almenna borgara séu tíðar í heimabæ kærenda. Með vísan til framangreinds verður ekki talið að kærendur eigi á hættu að verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum verði þau send aftur til heimaríkis. Þá er ekkert í gögnum málsins og framburði kærenda sem gefur tilefni til að ætla að sérstakar aðstæður þeirra leiði til þess að þau eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu snúi þau til baka.

Í ljósi þess sem að framan er rakið og þeirra gagna sem liggja fyrir um heimaríki kærenda telur kærunefnd að aðstæður kærenda í Venesúela séu ekki með þeim hætti að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Uppfylla kærendur þannig ekki skilyrði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi. 

Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærunefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. eða 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga á kærandi ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.

Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.

Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi m.a. til erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu og þá aðstöðu að yfirvöld veiti þegnum sínum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að með erfiðum almennum aðstæðum sé vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki sem ekki séu staðbundin, svo sem vegna langvarandi stríðsátaka. Þá kemur fram að erfiðar almennar aðstæður taki að jafnaði ekki til neyðar af efnahagslegum rótum eða náttúruhamfara, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Eigi það m.a. við þegar í heimaríki viðkomandi ríki óðaverðbólga, atvinnuleysi í ríkinu sé mikið eða lágmarkslaun dugi ekki fyrir framfærslu.

Af framangreindum gögnum að ráða hafa yfirvöld í Venesúela og vopnahópar á þeirra vegum síðustu ár framið glæpi sem fallið geta undir skilgreiningu á glæpum gegn mannkyni (e. crimes against humanity) og hafi meirihluti glæpanna verið hluti af kerfisbundnu ofbeldi gegn almenningi í þeim tilgangi að efla stjórn ríkisins. Almennir borgarar hafi hvorki getað treyst á vernd lögregluyfirvalda né opinbera aðstoð. Þá benda heimildir til þess að sú alvarlega staða sem ríkt hefur í landinu hvað varðar efnahag þess og aðgang almennings að fæðu, hreinu vatni og heilbrigðisþjónustu hafi fyrst og fremst stafað af aðgerðum og aðgerðarleysi stjórnvalda en ekki af utanaðkomandi þáttum líkt og þurrkum eða öðrum náttúruhamförum. Af þeim gögnum og skýrslum sem kærunefnd hefur farið yfir má ráða að þrátt fyrir það ótrygga ástand sem ríkt hefur í landinu síðustu ár hafi ástandið undanfarna mánuði breyst til batnaðar m.a. með breyttu viðhorfi stjórnvalda til mannúðaraðstoðar og vilja til að vinna að bættu réttarkerfi landsins. Þá er hvorki stríð í landinu né útbreidd vopnuð átök. Með vísan til fyrri umfjöllunar um aðstæður kærenda, aðstæður í heimaríki þeirra og framangreindrar afstöðu kærunefndar hvað varðar leiðbeiningar Flóttamannastofnunar frá árinu 2019, er það niðurstaða kærunefndar að gögn málsins bendi ekki til þess að almennar aðstæður sem bíði kærenda í heimaríki nái því alvarleikastigi sem 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kveði á um.

Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 með síðari breytingum og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunna að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væru ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi M frá því að vera við góða heilsu en væri með verki í hnjánum. Hann hafi farið til læknis í heimaríki og fengið lyf en ekkert meira hafi verið gert. K greindi frá því að vera við góða heilsu, hún væri þó með ofnæmi og taki inn ofnæmistöflur. Hún hafi ekki getað leitað til ofnæmislæknis af því hann hafi verið staðsettur í hættulegu hverfi í heimaríki. Hún hafi þó leitað til háls-, nef- og eyrnalæknis sem hafi greint veikindi hennar. Mælt hafi verið með því að hún léti taka nefkirtlana en hún hafi ekki haft efni á því. Þrátt fyrir efnahagslega erfiðleika í heimaríki kæranda og þeirrar stöðu sem uppi er í heilbrigðiskerfi landsins verður ekki annað séð en að kærendur hafi getað leitað sér aðstoðar vegna veikinda sinna þar í landi og fengið hana. Með vísan til framangreinds verður ekki talið að kærendur þarfnist meðferðar sem sé svo sérhæfð að þau geti einungis hlotið hana hérlendis né að rof á henni yrði til tjóns fyrir þau verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis. Verður því ekki talið að kærendur hafi sýnt fram á ríka þörf á vernd af heilbrigðisástæðum, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga er jafnframt fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við heimkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli.

Í viðtölum hjá Útlendingastofnun greindu kærendur frá því að óttast það að verða heimilislaus í heimaríki. Þau hafi búið í húsnæði í eigu ömmu M sem nýlega hafi fallið frá og því standi til að selja húsið. Kærendur hafi unnið fyrir sér í heimaríki, K kvaðst hafa átt fyrir mat og annarri nauðsynjavöru en M hafi greint frá því að hafa stundum ekki átt fyrir mat eða annarri nauðsynjavöru en þá getað fengið aðstoð frá föður sínum. Þá greindi K frá því að hafa haft aðgang að vatni sem hafi þó þurft að sækja þegar vatnsdælan hafi ekki virkað, m.a. sökum rafmagnsleysis. Kærendur hafi safnað fyrir ferðinni til Íslands með atvinnutekjum sínum en einnig fengið lán, m.a. frá frænda M. Kærendur greindu frá því að eiga foreldra í heimaríki, K eigi í góðu sambandi við foreldra sína en M hafi aldrei átt í góðu sambandi við foreldra sína og hafi alist upp hjá ömmu sinni. K hafi lokið háskólanámi í viðskiptafræði [...] og M útskrifast sem kokkur. Þá kváðust kærendur ekki vera aðilar að stjórnmálaflokki né minnihlutahópi í heimaríki.

Kærendur hafa greint frá því að hafa bakland í heimaríki og af gögnum málsins verður talið að kærendur hafi verið með atvinnu og getað framfleytt sér í heimaríki. Kærendur eru ung að árum og hefur ekkert komið fram sem bendir til annars en að þau séu heilsuhraust og vinnufær. Kærunefnd telur því að félagslegar aðstæður kærenda við komu til heimaríkis séu ekki slíkar að þær geti talist erfiðar í skilningi 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Þegar upplýsingar um heimaríki kærenda og frásagnir þeirra eru virtar í heild, með hliðsjón af aðstæðum þeirra í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að þau hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að þau hafi ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Því er fallist á það með Útlendingastofnun að aðstæður kærenda í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kærendum dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Bann við endursendingu samkvæmt 42. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kærenda telur kærunefnd að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til ekki eiga við í máli kærenda. Kærunefnd telur því að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga standi ekki í vegi fyrir endursendingu kærenda þangað.

Brottvísun og endurkomubann

Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart kæranda verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. nr. 33/1944 og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans. 

Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar, sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins, sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.

Í andmælum kæranda til Útlendingastofnunar er því haldið fram að beiting brottvísunar feli í sér afturvirkni. Í lögum um landamæri kemur ekki annað fram en að lögin taki þegar gildi. Lög um landamæri voru undirrituð af forseta Íslands 28. desember 2022 og birt í A-deild Stjórnartíðinda 9. janúar 2023 og höfðu því tekið gildi þegar hinar kærðu ákvarðanir voru teknar. Kærendur voru upplýst um lagabreytinguna og gefið færi á að koma að andmælum við mögulegri brottvísun. Verður því ekki fallist á málsástæðu kærenda um að óheimilt væri að ákvarða í máli þeirra í samræmi við lagabreytinguna.

Samkvæmt gögnum málsins sóttu kærendur um alþjóðlega vernd hér á landi 24. september 2022. Eins og að framan greinir hefur umsóknum kærenda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verið synjað. Hafa þau því ekki frekari heimild til dvalar hér á landi. Af framangreindu leiðir að með hinum kærðu ákvörðunum var réttilega bundinn endir á heimildir kærenda til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa þeim úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi. Það athugast að kæra til kærunefndar útlendingamála frestaði réttaráhrifum hinna kærðu ákvarðana.

Með bréfi Útlendingastofnunar, dags. 3. febrúar 2023, var kærendum leiðbeint um að til skoðunar væri að brottvísa þeim frá Íslandi og ákvarða endurkomubann hingað til lands. Var kærendum gefið færi á að koma að andmælum hvað það varðar. Í andmælum kærenda, dags. 10. febrúar 2023, kemur fram að slík ráðstöfun væri ósanngjörn og afar íþyngjandi fyrir kærendur enda hafi þau búið hér á landi í nokkra mánuði og myndað félagsleg tengsl. Slík ráðstöfun myndi binda enda á fyrirhugaðar heimsóknir til landsins og skerða ferðafrelsi kærenda óhóflega.

Af þeim svörum sem kærendur gáfu um tengsl sín við Ísland og önnur Schengen-ríki verður ekki séð að brottvísun þeirra og endurkomubann verði talin ósanngjörn ráðstöfun í garð þeirra eða nánustu aðstandenda þeirra, sbr. 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Þá horfir kærunefnd jafnframt til þess að kærendur geti komist hjá endurkomubanni og afleiðingum þess yfirgefi þau Ísland innan þess frest sem þeim er gefinn.

Í ákvörðunarorðum í ákvörðunum Útlendingastofnunar var kærendum brottvísað og þeim ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Var kærendum veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið auk þess sem tekið var fram að yfirgefi þau landið sjálfviljug innan þess frests verði endurkomubannið fellt niður.

Að mati kærunefndar og með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur í tilviki kærenda til að yfirgefa landið. Endurkomubann kærenda fellur niður yfirgefi þau landið sjálfviljug innan framangreinds frests.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinna kærðu ákvarðana eru ákvarðanir Útlendingastofnunar staðfestar.

Athygli kærenda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir því að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.


 

Úrskurðarorð:

Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru staðfestar.

The decisions of the Directorate of Immigration are affirmed.

 

 

Þorsteinn Gunnarsson

 

 

 

Bjarnveig Eiríksdóttir                                                     Gunnar Páll Baldvinsson

 

 

 

Sandra Hlíf Ocares                                                                          Sindri M. Stephensen

 

 

 

Valgerður María Sigurðardóttir                                                                 Þorbjörg I. Jónsdóttir

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum