Hoppa yfir valmynd
13. apríl 2023

Mál nr. 94/2023 - Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 94/2023

Fimmtudaginn 13. apríl 2023

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.

Með kæru, dags. 15. febrúar 2023, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 3. febrúar 2023, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 9. janúar 2023. Í umsókn kæranda kemur fram að hann hafi sagt upp starfi sínu. Með erindi Vinnumálastofnunar, dags. 24. janúar 2023, var kæranda boðið að veita skýringar á starfslokum sínum. Engar skýringar frá kæranda bárust stofnuninni. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 3. febrúar 2023, var kæranda tilkynnt að umsókn hans um atvinnuleysisbætur hefði verið samþykkt en með vísan til starfsloka hans hjá fyrrum vinnuveitanda væri réttur til atvinnuleysisbóta hins vegar felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 54. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Skýringar á starfslokum kæranda bárust Vinnumálastofnun 6. febrúar 2023 og var mál hans því tekið fyrir að nýju. Með erindi Vinnumálastofnunar, dags. 7. febrúar 2023, var kæranda tilkynnt að fyrri ákvörðun frá 3. febrúar 2023 væri staðfest þar sem hún hefði að geyma efnislega rétta niðurstöðu, þrátt fyrir að ný gögn hefðu borist.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 15. febrúar 2023. Með bréfi, dags. 21. febrúar 2023, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 10. mars 2023 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 15. mars 2023. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hann hafi sagt upp starfi sínu þar sem hann hafi fundið annað starf í vélvirkjun. Eftir að hann hafi sagt upp starfinu hafi nýja starfið í vélvirkjun ekki gengið eftir.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslur atvinnuleysistrygginga með umsókn, dags. 9. janúar 2023. Á umsókn kæranda hafi komið fram að hann hafi sjálfur sagt upp starfi sínu hjá B. Ástæða uppsagnar hans hafi verið vilyrði fyrir öðru starfi sem hafi átt að hefjast þann 1. janúar 2023. Ekki hafi orðið af ráðningu hans í umrætt starf.

Meðal gagna málsins sé staðfesting á starfstímabili hjá B. Samhliða staðfestingu á starfstímabili hafi kærandi veitt frekari skýringar á ástæðum uppsagnar hans. Þar komi fram að hann hafi verið kominn með starf hjá öðrum atvinnurekanda sem hafi átt að hefjast þann 1. janúar 2023, en hann hafi þó ekki verið ráðinn í það starf. Kærandi hafi hitt umræddan atvinnurekanda og þeir hafi rætt möguleika á starfi. Atvinnurekandinn hafi lofað honum starfi. Þegar kærandi hafi sagt upp starfi sínu hjá B hafi umræddur atvinnurekandi hins vegar skyndilega neitað honum um starfið. Ástæðan fyrir því hafi verið erfiðleikar í rekstri atvinnurekandans. Kæranda hafi verið leiðbeint af starfsmanni Vinnumálastofnunar að afla skriflegrar staðfestingar hjá umræddum atvinnurekanda þar sem frásögn kæranda væri staðfest, en slíkt kynni mögulega að hafa áhrif á rétt hans til greiðslu atvinnuleysisbóta. Vinnumálastofnun hafi ekki borist slík staðfesting.

Með erindi, dags. 24. janúar 2023, hafi Vinnumálastofnun óskað frekari skýringa frá kæranda vegna starfsloka hans hjá B. Engar frekari skýringar hafi borist Vinnumálastofnun. Með erindi, dags. 3. febrúar 2023, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans um atvinnuleysisbætur hefði verið samþykkt. Með vísan til starfsloka hans hjá B væri réttur hans til atvinnuleysisbóta hins vegar felldur niður í tvo mánuði. Sú ákvörðun hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Þann 6. febrúar 2023 hafi kærandi veitt Vinnumálastofnun frekari skýringar á ástæðum uppsagnar. Þar hafi komið fram að kærandi hafi starfað við ræstingar hjá B, en það væri ekki starf sem hann hefði reynslu til að sinna. Hann hafi því fundið nýtt starf, en þegar starfi hans hafi lokið hjá B hafi það starf ekki lengur staðið honum til boða. Vinnumálastofnun hafi fjallað um mál kæranda að nýju í kjölfar framangreindra skýringa. Með erindi, dags. 7. febrúar 2023, hafi kæranda verið tilkynnt að mál hans hefði verið tekið fyrir að nýju með tilliti til nýrra gagna. Niðurstaða Vinnumálastofnunar væri hins vegar sú að staðfesta bæri fyrri ákvörðun í máli kæranda, enda hefði sú ákvörðun að geyma efnislega rétta niðurstöðu í máli hans.

Lög nr. 54/2006 gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna. Tilgangur laga um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim sem tryggðir séu og misst hafi fyrra starf sitt tímabundna fjárhagsaðstoð í þrengingum sínum. Lögin veiti þeim fjárhagslegt úrræði og beri að gera ríkar kröfur til þeirra sem segi upp störfum sínum um að hafa til þess gildar ástæður samkvæmt lögunum, enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi.

Í 54. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar segi:

„Sá sem telst tryggður samkvæmt lögum þessum en hefur sagt starfi sínu lausu án gildra ástæðna skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur. Hið sama gildir um þann sem missir starf sitt af ástæðum sem hann sjálfur á sök á. Hinn tryggði skal uppfylla skilyrði laga þessara á biðtímanum skv. 1. mgr.“

Orðalagið „gildar ástæður“ hafi verið túlkað þröngt og fá tilvik hafi fallið þar undir. Í athugasemdum við 1. mgr. 54. gr. í greinargerð með frumvarpi því sem hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar komi fram að með ákvæðinu sé verið að undirstrika það markmið vinnumarkaðskerfisins að stuðla að virkri atvinnuþátttöku fólks. Í ljósi þess sé ekki gefinn kostur á að fólk segi upp starfi sínu til að fá greiddar atvinnuleysisbætur án þess að sérstakar ástæður liggi að baki uppsögninni í tilvikum þar sem annað starf sé ekki í boði. Þar sé jafnframt sérstaklega tekið fram að það sé erfiðleikum bundið að skilgreina nákvæmlega í lögum og reglugerðum hvaða ástæður sem liggi að baki uppsögn séu gildar þar sem þær ástæður geti verið af margvíslegum toga. Þó sé í athugasemdum sérstaklega fjallað um tvenns konar tilvik sem talin séu heyra til gildra ástæðna fyrir starfslokum. Annars vegar sé það þegar um ræði þau tilvik þegar maki hins tryggða hafi hafið störf í öðrum landshluta og fjölskyldan hafi af þeim sökum þurft að flytja búferlum. Hins vegar séu það þau tilvik þegar uppsögn megi rekja til þess að atvinnuleitandi hafi sagt upp störfum af heilsufarsástæðum en sé að öðru leyti vinnufær. Í ljósi þess að um matskennda ákvörðun sé að ræða sé Vinnumálastofnun falið að meta hvernig atvik og aðstæður hvers máls falli að umræddri reglu. Vinnumálastofnun beri að líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða við ákvarðanir um hvort umsækjendur um atvinnuleysisbætur skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Ljóst sé að kærandi hafi sagt starfi sínu lausu hjá B. Ágreiningur snúi að því hvort ástæður kæranda fyrir uppsögn í starfi teljist gildar í skilningi framangreinds ákvæðis 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Úrskurðarnefnd velferðarmála hafi í fyrri úrskurðum sínum talið að almennt beri að gera nokkuð ríkar kröfur til atvinnuleitanda þegar metið sé hvort ástæður fyrir uppsögn séu gildar samkvæmt 1. mgr. 54. gr. laganna.

Þær skýringar sem kærandi hafi gefið sem ástæðu fyrir uppsögn sinni lúti að því að hann hafi verið kominn með annað starf en þegar á reyndi hafi kærandi þó ekki verið ráðinn til starfa á nýjum stað. Þar sem B hafi þegar lokið við að ráða annan í stöðu kæranda hafi hann ekki getað dregið uppsögn sína til baka. Við mat á því hvort ástæður þessar fyrir starfslokum séu gildar í skilningi 54. gr. laganna verði að líta til þess að ríkar kröfur beri að gera til þess að atvinnuleitendur hafi tryggt sér annað starf áður en þeir segi upp störfum sínum. Úrskurðarnefnd velferðarmála hafi áður fjallað um slík álitaefni, sbr. úrskurð nefndarinnar frá 23. ágúst 2016 í máli nr. 89/2015. Af fyrirliggjandi gögnum í máli kæranda verði ekki séð að kærandi hafi verið búinn að undirrita ráðningarsamning hjá nýjum vinnuveitanda eða verið með fast starf í hendi þegar hann hafi sagt upp starfi sínu hjá B. Niðurstaða Vinnumálastofnunar sé því sú að framangreindar skýringar kærandi geti ekki talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar.

Í ljósi framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta biðtíma á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar með vísan til starfsloka hans hjá B.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Ákvæði 1. mgr. 54. gr. laganna er svohljóðandi:

„Sá sem telst tryggður samkvæmt lögum þessum en hefur sagt starfi sínu lausu án gildra ástæðna skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir um þann sem missir starf af ástæðum sem hann á sjálfur sök á.“

Óumdeilt er að kærandi sagði upp starfi sínu hjá B en ágreiningur málsins lýtur að því hvort ástæður hans fyrir uppsögninni hafi verið gildar í skilningi 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006. Í athugasemdum við ákvæðið í frumvarpi til laga um atvinnuleysistryggingar kemur fram að í ljósi 54. gr. laganna sé ekki gefinn kostur á að fólk segi upp starfi sínu til að fá greiddar atvinnuleysisbætur án þess að sérstakar ástæður liggi að baki uppsögninni í tilvikum þegar annað starf er ekki í boði. Einnig kemur fram að það sé erfiðleikum bundið að takmarka þau tilvik sem geti talist til gildra ástæðna í lögum og reglugerðum þar sem ástæður þess að fólk segi störfum sínum lausum eða missi þau geti verið af margvíslegum toga. Því sé lagt til að lagareglan verði áfram matskennd og Vinnumálastofnun falið að meta atvik og aðstæður hverju sinni. Stofnuninni beri að líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða við ákvarðanir um hvort umsækjendur um atvinnuleysisbætur skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Jafnframt er bent á að um íþyngjandi ákvörðun sé að ræða.

Kærandi hefur gefið þær skýringar að hann hafi sagt upp starfi sínu þar sem hann hafi talið að hann væri komið með annað starf. Starfsmaður Vinnumálastofnunar benti kæranda á að skila inn staðfestingu frá nýjum atvinnurekanda þar sem frásögn hans væri staðfest. Ekki liggur fyrir ráðningarsamningur eða staðfesting á starfstilboði frá nýjum vinnuveitanda og því er ekki ljóst hvort kæranda hafi boðist annað starf.

Að mati úrskurðarnefndarinnar er því ekki um að ræða gilda ástæðu fyrir uppsögn í skilningi 54. gr. laga nr. 54/2006. Að því virtu átti kærandi ekki rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en að tveimur mánuðum liðnum frá móttöku umsóknar hans um atvinnuleysisbætur, sbr. 1. mgr. ákvæðisins. Hin kærða ákvörðun er því staðfest.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 3. febrúar 2023, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

_________________________________

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum