Hoppa yfir valmynd
1. apríl 2019 Utanríkisráðuneytið

Guðlaugur Þór stýrði utanríkisráðherrafundi NB8 og Visegrad-ríkja

Guðlaugur Þór Þórðarson, Linas Antanas Linkevičius, utanríkisráðherra Lithánes, og Miroslav Lajčák, utanríkisráðherra Slóvakíu, á fundinum í dag. - myndUtanríkisráðuneytið
Öryggis- og varnarmál, þróun mála í Evrópu og málefni Sameinuðu þjóðanna voru meðal umræðuefna á utanríkisráðherrafundi Norðurlandanna, Eystrasaltsríkja og Visegrad-ríkja, sem lauk í Palanga, Litháen, fyrr í dag. Ísland gegnir formennsku í samstarfi Norðurlanda og Eystrasaltsríkja (NB8) og stýrði Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra því fundinum.

Í umræðu um öryggis- og varnarmál báru hæst samskiptin vestur yfir haf og utanríkisráðherrafundur Atlantshafsbandalagsins, sem haldinn verður í Bandaríkjunum síðar í vikunni í tilefni af 70 ára afmæli bandalagsins. Samskiptin við Rússland og staða mála í Úkraínu voru sömuleiðis meðal umfjöllunarefna.

Þá fór fram umræða um útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu , en einnig innflytjendamál og þróun mála í Evrópusambandinu í aðdraganda kosninga til Evrópuþingsins í næsta mánuði.

Helstu viðfangsefni á alþjóðavettvangi voru jafnframt á dagskrá fundarins, ekki síst málefni Sameinuðu þjóðanna. Rætt var um mannréttindamál og nýliðna lotu í mannréttindaráðinu þar sem Ísland leiddi 36 ríki, þ.m.t. öll NB8 og Visegrad-ríkin, í gagnrýni á stöðu mannréttinda í Sádi-Arabíu. Var Íslandi þakkað frumkvæðið. Einnig spannst umræða um stöðu alþjóðakerfisins og mikilvægi þess að standa vörð um grunngildi þess.

Þá leiddi utanríkisráðherra umræðu um loftslagsmál og málefni hafsins. Í máli sínu greindi Guðlaugur Þór frá áherslum í formennsku Íslands í norrænu samstarfi, NB8-samstarfi, sem og í Norðurskautsráðinu, þar sem málefni hafsins eru í forgrunni í öllum tilfellum. Fjallaði Guðlaugur Þór einnig um mikilvægi sjálfbærni og fullnýtingu sjávarafurða og reynslu Íslands þar að lútandi.

„Í umræðu um loftslagsmál er mikilvægt að beina sjónum að samspili loftslagsbreytinga og hafsins, sem stundum vill gleymast. Það er sameiginlegt verkefni okkar, hvort heldur sem eyþjóð í norðanverðu Atlantshafi eða landlukt ríki um miðja Evrópu, og mikilvægt að geta bent á það í þessum ríkjahópi. Það eru enn fremur mikil tækifæri fólgin í bláa hagkerfinu og sífellt aukin eftirspurn eftir gæðum í sjávarfangi sem nýsköpun og sjálfbærni getur af sér. Það þekkjum við á Íslandi og getum miðlað af þeirri þekkingu og reynslu,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson.

Norðurlöndin, Eystrasaltsríkin og Visegrad-ríkin hittast að jafnaði einu sinni á ári og var þetta í sjöunda skipti sem fundur er haldinn í þessum ríkjahópi. Visegrad ríkin eru Pólland, Tékkland, Slóvakía og Ungverjaland.
  • Utanríkisráðherrar Norðurlanda, Eystrasaltsríkja og Visegrad-ríkjanna á fundinum í Palanga í dag. - mynd
  • Frá fundinum í Palanga í morgun. Guðlaugur Þór Þórðarson stýrir fundi. - mynd

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum