Hoppa yfir valmynd
2. september 2020 Heilbrigðisráðuneytið

Vinnuhópur um bóluefni gegn Covid-19

Vinnuhópur um bóluefni gegn Covid-19 - myndStjórnarráðið

Undirbúningur sem snýr að framkvæmd kaupa á bóluefni gegn Covid-19 er hafinn í vinnuhópi sem heilbrigðisráðherra skipaði 26. ágúst síðastliðinn og er verið að skoða hvaða leiðir eru færar í þessum efnum. Fyrir liggur að kaup Íslands á bóluefnum gegn COVID-19 munu fara fram á grundvelli samninga Evrópusambandsins við lyfjaframleiðendur, líkt og kynnt var á fundi ríkisstjórnarinnar síðastliðinn föstudag.

Eins og fram kemur í skipunarbréfi hópsins ber embætti landlæknis ábyrgð á framkvæmd bólusetninga samkvæmt sóttvarnalögum og er bóluefni vegna almennra bólusetninga, t.d. gegn árstíðabundinni inflúensu, útvegað með útboðum og samningum. Núgildandi samningur Íslands um bóluefni gegn inflúensu nær ekki yfir bóluefni gegn Covid-19 og má gera ráð fyrir að ákvörðun um samninga og kaup á slíku bóluefni þegar þar að kemur verði að ýmsu leyti frábrugðið ferlinu þegar um ræðir almenn bóluefni. Verkefni vinnuhópsins snýr að þessu og mun hann meðal annars leita í smiðju Norðmanna hvað þetta varðar þar sem sambærileg vinna stendur yfir. Líkt og áður hefur komið fram mun Svíþjóð hafa milligöngu um að framselja Íslendingum og Norðmönnum bóluefni á grundvelli samninga Evrópusambandsins.

Vinnuhópinn skipa eftirtaldir:

  • Áslaug Einarsdóttir, fulltrúi heilbrigðisráðuneytisins, formaður vinnuhópsins
  • Bjarni Sigurðsson, fulltrúi heilbrigðisráðuneytisins
  • Valtýr St. Thors, fulltrúi sóttvarnalæknis
  • Ólafur Guðlaugsson, fulltrúi sóttvarnaráðs
  • Hulda Harðardóttir, fulltrúi Landspítala
  • Sindri Kristjánsson, fulltrúi Lyfjastofnunar

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum