Hoppa yfir valmynd
12. apríl 2007 Heilbrigðisráðuneytið

Nýjar reglur um takmarkanir á reykingum og um sölu tóbaks

Siv Friðleifsdóttir heilbrigðis-og tryggingamálaráðherra hefur undirritað reglugerð um takmarkanir á tóbaksreykingum þar sem kveðið er nánar á um framkvæmd reykingabannsins sem kemur til framkvæmda þann 1. júní næst komandi, samkvæmt lögum sem Alþingi samþykkti vorið 2006. Í reykingabanninu felst að með öllu verður óheimilt að reykja innanhúss í þjónusturýmum stofnana, fyrirtækja og félagasamtaka, svo sem á veitinga- og skemmtistöðum og þar sem menningar-og félagsstarfsemi fer fram. Í lögunum eru jafnframt settar tilteknar skorður við reykingum á útisvæðum þessara staða.

Í hinni nýju reglugerð er kveðið nánar á um leyfilega tilhögun útisvæða og heimilar hún að reykingar verði leyfðar á útisvæði, til dæmis við veitinga- og skemmtistaði, ef það er undir beru lofti. Sé útisvæðið hins vegar undir þaki, föstu eða hreyfanlegu, má aðeins leyfa reykingar þar ef svæðið er að hámarki lokað að ¾ hlutum og nægjanlegt loftstreymi tryggt upp í gegnum þak eða meðfram þakskeggi.

Annað helsta nýmæli reglugerðarinnar lýtur að takmörkunum á tóbaksreykingum um borð í fiskiskipum, kaupskipum eða öðrum skipum, sem notuð eru í atvinnurekstri. Samkvæmt gildandi reglum hafa verið rýmri heimildir til tóbaksreykinga í skipum en á öðrum vinnustöðum. Nýja reglugerðin gerir hins vegar ráð fyrir að eftirleiðis gildi sömu reglur um skip og aðra vinnustaði.

Reglugerð um smásölu tóbaks.

Heilbrigðis-og tryggingamálaráðherra hefur einnig undirritað reglugerð um smásölu á tóbaki. Í henni er meðal annars mælt nánar fyrir um heimildir til reksturs sérverslana með tóbak, umbúnað slíkra verslana og undanþágu þeirra til að hafa tóbak sýnilegt viðskipavinum. Undanþága sérverslana frá sýnileikabanni tóbaksvarnalaga var lögfest á Alþingi vorið 2006.


ATH Reglugerðirnar opnast í nýjum glugga.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum