Hoppa yfir valmynd
8. ágúst 2012 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 50/2012, úrskurður 8. ágúst 2012

 

Mál nr. 50/2012                   Eiginnafn: Alína

 

Hinn 8. ágúst 2012 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 50/2012 en erindið barst nefndinni 1. ágúst.

Eiginnafnið Alína (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Alínu, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Alína (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum