Hoppa yfir valmynd
7. nóvember 2014 Heilbrigðisráðuneytið

Samið um sjúkraflutninga á höfuðborgarsvæðinu til sex ára

Við undirritun samnings um sjúkraflutninga
Við undirritun samnings um sjúkraflutninga

Samningar hafa tekist milli Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) og Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins (SHS) um sjúkraflutninga á höfuðborgarsvæðinu. Samningurinn tekur gildi 1. janúar næstkomandi og gildir til sex ára.

Heilbrigðisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra, forstjóri Landspítalans og stjórn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins staðfestu samninginn með undirritun í nýju húsnæði Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins við Skarhólabraut í Mosfellsbæ í dag.

Samningurinn er gerður á grundvelli fjárveitinga til verkefnisins og byggir að meginstofni á bráðabirgðasamningi um sjúkraflutninga sem gerður var í sumar. Hann tekur til allra bráðaflutninga auk flutninga fyrir Landspítala og aðrar stofnanir.

Helsta nýmæli samningsins felst í því að greiðslur fyrir þjónustuna taka að hluta til mið af fjölda sjúkraflutninga í stað eingöngu fastra mánaðarlegra greiðslna áður. Þannig  felst greiðsluþátttaka sjúkratrygginga og Landspítala annars vegar í föstum mánaðarlegum greiðslum og hins vegar í greiðslum fyrir hvern flutning. Gert er ráð fyrir að heildarfjöldi sjúkraflutninga verði um 23.000 á ári.

Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra segir samninginn kærkominn eftir langvarandi óvissu: „Bráðabirgðasamkomulagið sem náðist í sumar var mikilvægur áfangi eftir tveggja og hálfs árs samningsleysi um þessa mikilvægu öryggisþjónustu. Ég hef verið þeirrar skoðunar að aðskilnaður sjúkraflutninga og slökkvistarfs á höfuðborgarsvæðinu væri óskynsamlegur, bæði faglega og fjárhagslega. Það er því mikils virði að langtímasamningur sé í höfn og ég er viss um að samstarfið sem þarna er innsiglað verði bæði farsælt og hagstætt fyrir alla aðila.“

Fallið frá dómsmáli

Samhliða undirritun samningsins var gengið frá samkomulagi um sérstakt uppgjör vegna þjónustu SHS frá 1. janúar 2012 til 30. júní 2014 en SHS sinnti á þessu tímabili sjúkraflutningum á höfuðborgarsvæðinu þrátt fyrir að enginn samningur hafi þá verið í gildi um þjónustuna. Með þessu samkomulagi verður jafnframt fellt niður dómsmál, sem SHS hafði höfðað gegn íslenska ríkinu vegna greiðslna fyrir þá þjónustu sem SHS veitti á ofangreindu tímabili.

Eigendur SHS eru sex sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu: Reykjavíkurborg, Kópavogsbær, Hafnarfjarðarbær, Garðabær, Mosfellsbær og Seltjarnarnesbær.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum