Hoppa yfir valmynd
22. september 2021 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Framlengir samning við SÁÁ um sálfræðiþjónustu fyrir börn

Frá undirritun samningsins. - mynd

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, hefur framlengt samning við SÁÁ um eitt ár, en samningurinn gerir samtökunum kleift að veita börnum sem búa við fíknisjúkdóm aðstandenda aðgang að sálfræðiþjónustu samtakanna. Ráðherra setti af stað tilraunaverkefni með SÁÁ fyrir ári þar sem markmiðið var að styrkja og bæta þjónustu við börnin á miklum álagstímum vegna Covid-19 faraldursins, ásamt því að stytta bið barna eftir sálfræðiþjónustu hjá samtökunum. Verkefnið hefur gengið vonum framar, en í mars 2020 voru rúmlega 100 börn á biðlista eftir sálfræðiþjónustu en í apríl 2021 voru einungis sex börn á biðlista. Þá hefur biðtími eftir þjónustunni styst verulega, og er nú um vika en var áður mest um fimm mánuðir.

Félagsmálaráðuneytið fjármagnar samkvæmt samningnum eina stöðu sálfræðings til þess að auka sálfræðiþjónustu til barna skjólstæðinga SÁÁ. Einnig fá foreldrar sem leggjast inn á Vog, eða fá göngudeildarþjónustu, kynningu á sálfræðiþjónustu barna og þeim sem eiga börn á aldrinum 8-18 ára er boðið að skrá þau í þjónustu hjá SÁÁ. Stefnt er á að bjóða hverju barni upp á allt að átta viðtöl hjá sálfræðingi. Þjónustan er veitt bæði samhliða því sem foreldrar eru í áfengis- og vímuefnameðferð og þegar fjölskylda er á námskeiði í fjölskyldudeild.

Ásmundur Einar Daðason, félags-og barnamálaráðherra: „Samstarf okkar við SÁÁ vegna sálfræðiþjónustu barna hefur verið mjög vel heppnað og ég er virkilega ánægður með að framlengja það hér um annað ár. Sálfræðiþjónusta fyrir börn sem búa við fíknisjúkdóm aðstandenda getur skipt sköpum fyrir börnin, en langvarandi álag og streita sem fylgir áfengis- og fíknivanda foreldra getur haft mikil áhrif á börn sem aðstandendur. Með þessu samstarfi hefur okkur tekist að stytta bið barna eftir sálfræðiþjónustu hjá samtökunum verulega og nánast eyða biðlistum.“

 

 

 

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum