Hoppa yfir valmynd
29. júní 2023 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 250/2023-Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 250/2023

Fimmtudaginn 29. júní 2023

A

gegn

Vinnumálastofnun – Fæðingarorlofssjóði

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Arnar Kristinsson lögfræðingur og Þórhildur Líndal lögfræðingur.

Með kæru, dags. 21. maí 2023, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs vegna umsóknar hans úr Fæðingarorlofssjóði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði vegna væntanlegrar barnsfæðingar. Með bréfi fæðingarorlofssjóðs, dags. 11. janúar 2023, var kærandi upplýstur um að ráða mætti af upplýsingum úr staðgreiðsluskrá Ríkisskattstjóra að hann uppfyllti ekki skilyrði 1. mgr. 21. gr. laga nr. 144/2020 um fæðingar- og foreldraorlof, þess efnis að hafa verið í minnst 25% starfshlutfalli síðustu mánuði fyrir fæðingardag barns þar sem engar/lágar tekjur væru skráðar á hann á réttindatímabilinu. Kæranda var í framhaldinu leiðbeint um hvað teldist jafnframt til þátttöku á vinnumarkaði samkvæmt 2. mgr. 22. gr. laganna og gefinn kostur á að leggja fram gögn til staðfestingar þátttöku sinnar á vinnumarkaði. Að öðrum kosti mætti hann eiga von á því að umsókn hans um greiðslur úr fæðingarorlofssjóði yrði sett á bið.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 21. maí 2023. Með erindi úrskurðarnefndar til Fæðingarorlofssjóðs 23. maí 2023 var óskað eftir upplýsingum um hvort sjóðurinn hefði tekið endanlega ákvörðun í máli kæranda. Svar sjóðsins barst 24. maí 2023 þar sem fram kemur að ekki liggi fyrir synjun í málinu.


 

II. Niðurstaða

Kærð er afgreiðsla Fæðingarorlofssjóðs vegna umsóknar kæranda um greiðslur úr sjóðnum. Samkvæmt 1. gr. laga nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála skal nefndin úrskurða í kærumálum vegna stjórnvaldsákvarðana eftir því sem mælt er fyrir um í lögum sem kveða á um málskot til nefndarinnar. Þannig er grundvöllur þess að unnt sé að leggja fram kæru til úrskurðarnefndar sá að fyrir liggi stjórnvaldsákvörðun. Um stjórnvaldsákvörðun er að ræða þegar stjórnvöld taka ákvarðanir um rétt eða skyldur manna í skjóli stjórnsýsluvalds, sbr. 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Í 2. mgr. 26. gr. stjórnsýslulaga segir að ákvörðun, sem ekki bindur enda á mál, verði ekki kærð til æðra stjórnvalds fyrr en málið hefur verið til lykta leitt. Ákvarðanir sem teknar eru um meðferð stjórnsýslumáls og fela ekki í sér endalok málsins, svokallaðar formákvarðanir, verða því ekki kærðar til úrskurðarnefndarinnar.

Samkvæmt gögnum málsins lá ekki fyrir stjórnvaldsákvörðun í máli kæranda þegar kæra barst úrskurðarnefndinni. Að því virtu og í samræmi við 2. mgr. 26. gr. stjórnsýslulaga er það mat úrskurðarnefndarinnar að málið sé ekki tækt til efnismeðferðar. Kærunni er því vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

Úrskurðarnefndin bendir á að kærandi geti lagt inn nýja kæru til úrskurðarnefndarinnar þegar Fæðingarorlofssjóður hefur afgreitt umsókn hans.

 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Kári Gunndórsson

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum