Hoppa yfir valmynd
1. september 2017 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Starfshópur um Þjóðgarðastofnun skipaður

Úr Þjóðgarðinum Snæfellsjökli - myndLjósmynd: Umhverfisstofnun
Björt Ólafsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, hefur skipað starfshóp til að vinna að gerð lagafrumvarps um Þjóðgarðastofnun.

Nýlega kynnti ráðherra áform um að koma á fót Þjóðgarðastofnun sem tæki við verkefnum Vatnajökulsþjóðgarðs, Þjóðgarðsins á Þingvöllum, Þjóðgarðsins Snæfellsjökuls og tiltekinna verkefna á sviði náttúruverndar á vegum Umhverfisstofnunar. Markmiðið er að efla og styrkja sameiginlega starfsemi og stoðþjónustu þjóðgarða og fr iðlýstra svæða.

Í starfshópnum sitja:

• Sigríður Auður Arnardóttir, formaður, umhverfis- og auðlindaráðuneyti,
• Vilhjálmur Árnason, formaður Þingvallanefndar,
• Einar Á.E. Sæmundsen, fræðslufulltrúi í Þjóðgarðinum á Þingvöllum,
• Helgi Kjartansson, oddviti Bláskógabyggðar,
• Ármann Höskuldsson, formaður stjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs,
• Þórður H. Ólafsson, framkvæmdastjóri Vatnajökulsþjóðgarðs,
• Björn Ingi Jónsson, bæjarstjóri Sveitarfélagsins Hornafjörður,
• Kristín Linda Árnadóttir, forstjóri Umhverfisstofnunar,
• Ólafur A. Jónsson, sviðsstjóri hjá Umhverfisstofnun,
• Kristinn Jónasson, bæjarstjóri Snæfellsbæjar,
• Margrét Björk Björnsdóttir, atvinnuráðgjafi hjá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi,
• Jón Geir Pétursson, skrifstofustjóri, umhverfis- og auðlindaráðuneyti,
• Sigríður Svana Helgadóttir, lögfræðingur, umhverfis- og auðlindaráðuneyti,
• Steinar Kaldal, aðstoðarmaður umhverfis- og auðlindaráðherra,
• Ingibjörg Halldórsdóttir, héraðsdómslögmaður, starfsmaður nefndarinnar.

Starfshópurinn skal skila tillögu sinni að frumvarpi til umhverfis- og auðlindaráðherra fyrir 1. nóvember nk.

Frétt frá 18. ágúst 2017: Áform um Þjóðgarðastofnun kynnt í ríkisstjórn

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum