Hoppa yfir valmynd
9. desember 2019 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 108B/2019 Úrskurður 9. desember 2019

Mál nr. 108/2019                   Eiginnafn:      Eliott (kk.)

                                                Eiginnafn:      Elíott (kk.)

 

 

Hinn 9. desember 2019 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 108/2019 en erindið barst nefndinni 11. nóvember.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  • Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  • Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  • Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  • Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Í þessu máli reynir í fyrsta lagi á 2. skilyrðið hér að ofan því að í íslensku kemur einhljóðið o aldrei fyrir næst á eftir einhljóðinu i í ósamsettum orðum. Þess vegna telst nafnið Eliott brjóta í bág við íslenskt málkerfi ef það er borið fram eftir stafanna hljóðan. Ef framburður nafnsins er Elíott getur rithátturinn Eliott ekki talist uppfylla 3. skilyrðið hér að ofan um að nafn skuli ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls og því aðeins unnt að samþykkja nafnið sé hefð fyrir rithætti þess.

Hugtakið hefð í mannanafnalögum varðar einkum erlend nöfn frá síðari öldum sem ekki hafa aðlagast ritreglum íslensks máls. Þau eru stundum nefnd ung tökunöfn og koma fyrst fram í íslensku máli árið 1703 þegar manntal á Íslandi var tekið fyrsta sinni. Við túlkun mannanafnanefndar á hugtakinu hefð í 5. og 6. gr. laga um mannanöfn er stuðst við eftirfarandi vinnulagsreglur sem nefndin setti sér á fundi 19. janúar 2015 og eru byggðar á greinargerð með frumvarpi að mannanafnalögum og eldri vinnulagsreglum:

1.   Ungt tökunafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:

 

  1. Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;
  2. Það er nú borið af 10–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;
  3. Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;
  4. Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1910 eða 1920;
  5. Það er ekki borið af neinum Íslendingi nú en kemur a.m.k. fyrir í tveimur manntölum frá 1703–1920.

 

2.  Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa átt lögheimili á Íslandi.

 

3.  Tökunafn getur verið hefðað, þó að það komi ekki fyrir í manntölum, ef það hefur unnið sér menningarhelgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum og þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.

Tekið skal fram að vinnulagsreglurnar eru mannafnanefnd til stuðnings við mat sitt, en ekki ráðandi um niðurstöðuna bendi önnur atriði engu að síður til þess að ritháttur nafns hafi hefðast.

Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá ber enginn, sem uppfyllir skilyrði vinnulagsreglna mannanafnanefndar varðandi hefð, nafnið Eliott. Nafnið kemur ekki fyrir í manntölum frá 1703–1920. Þess vegna getur nafnið ekki talist hafa áunnið sér hefð í íslensku máli.

Í þessu máli var til vara óskað eftir úrskurði um ritháttinn Elíott. Eiginnafnið Elíott (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Elíotts, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Eliott (kk.) er hafnað.

Beiðni um eiginnafnið Elíott (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum