Hoppa yfir valmynd
19. október 2022 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 400/2022 - Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 400/2022

Miðvikudaginn 19. október 2022

A

gegn

Tryggingastofnun ríkisins

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur og Unnþór Jónsson lögfræðingur.

Með rafrænni kæru, móttekinni 4. ágúst 2022, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 21. júní 2022 um endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta hennar vegna ársins 2021.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Niðurstaða endurreiknings og uppgjörs tekjutengdra bóta vegna ársins 2021, dags. 19. maí 2022, var sú að kæranda hefðu verið ofgreiddar bætur það ár að fjárhæð 142.411 kr., að teknu tilliti til greiddrar staðgreiðslu. Í kjölfar andmæla frá kæranda var framkvæmdur nýr endurreikningur og var niðurstaðan sú að kæranda hefðu verið ofgreiddar bætur það ár að fjárhæð 116.526 kr., að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu. Kæranda var tilkynnt um framangreinda ofgreiðslu og innheimtu með bréfi Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 21. júní 2022.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 4. ágúst 2022. Með bréfi, dags. 9. ágúst 2022, óskaði úrskurðarnefnd eftir greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins ásamt gögnum málsins. Með bréfi, dags. 22. ágúst 2022, barst greinargerð stofnunarinnar og var hún send kæranda til kynningar með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 23. ágúst 2022. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru kemur fram að kærandi hafi fengið kröfu vegna ársins 2021 vegna tímabils sem hún hafi verið á endurhæfingarlífeyri en hún hafi fengið uppgjör vegna starfsloka og orlofsréttar frá B.

Kærandi hafi sent Tryggingastofnun ríkisins rökstuðning frá launafulltrúa B þess efnis að þetta hafi verið orlofsréttur sem hún hafi átt inni en hafi fengið greitt hálfu ári seinna. Þetta hafi ekki verið laun. Það hafi ekki verið tekið tillit til rökstuðnings launafulltrúans.

Með kæru fylgdi bréf C hjá D en þar segi að kærandi hafi leitað til stéttarfélagsins þar sem tekjur hennar vegna ársins 2021 hafi verið endurreiknaðar hjá Tryggingastofnun vegna nýrra upplýsinga frá Skattinum. Ástæðan sé sú að þann 1. desember 2021 hafi hún fengið launatekjur að fjárhæð 389.296 kr. sem samkvæmt staðgreiðsluskrá séu skráðar sem laun í nóvember 2021.

Forsagan sé sú að kærandi hafi starfað hjá B til loka júlí 2021 þegar hún hafi hætt störfum sökum veikinda. Kærandi hafi fengið launatekjur allt til þess tímamarks og í framhaldinu hafi hún fengið greiðslur sjúkradagpeninga frá stéttarfélagi og síðar meir endurhæfingarlífeyri frá Tryggingastofnun þann 1. október 2021.

Þrátt fyrir starfslok 31. júlí 2021 hafi kærandi ekki fengið uppgerð laun líkt og skylt sé samkvæmt almennum reglum vinnuréttarins, svo sem ónýtt orlof og orlofs- og desemberuppbætur. Það hafi komið kæranda að óvörum að þann 1. desember 2021 hafi hún greidda upp ofangreinda launaliði vegna starfsloka sem hafi átt sér stað tæpu hálfu ári áður. Hún hafi haft samband við launadeild B sem hafi staðfest að umrædd greiðsla væri vegna starfsloka 31. júlí 2021 eins og fram komi í meðfylgjandi skjali.

Kærandi hafi ekki aflað þessara tekna sem komi fram á staðgreiðsluskrá eftir töku endurhæfingarlífeyris, heldur sé um að ræða tekjur sem hún hafði aflað þó nokkru áður, eða vegna orlofsársins 2020-2021 og svo frá 1. maí 2021 til og með 31. júlí 2022. Farið sé fram á að tekið verði tillit til þessara skýringa samkvæmt almennum reglum stjórnsýsluréttar, svo sem andmælarétti hennar og rannsóknarskyldu stjórnvalda.

III.  Sjónarmið Tryggingastofnunar ríkisins

Í greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins kemur fram að kærður sé endurreikningur tekjutengdra bóta ársins 2021.

Í 16. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingum, sé kveðið á um tilhögun útreiknings tekjutengdra bóta. Í 2. mgr. ákvæðisins sé vísað til laga nr. 90/2003 um tekjuskatt varðandi hvað skuli teljast til tekna. Til tekna samkvæmt III. kafla laga um almannatryggingar teljist tekjur samkvæmt II. kafla laga nr. 90/2003 um tekjuskatt, að teknu tilliti til ákvæða 28. gr. sömu laga um hvað ekki teljist til tekna og frádráttarliða samkvæmt 1., 3., 4. og 5. tölul. A-liðar 1. mgr. 30. gr. og 31. gr. sömu laga eða undantekninga og takmarkana samkvæmt öðrum sérlögum.

Tryggingastofnun greiði lífeyri á grundvelli áætlunar um tekjur viðkomandi árs, sbr. 5. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar. Bótaþegi beri ábyrgð á því að slík tekjuáætlun endurspegli árstekjur og beri að breyta áætluninni ef svo sé ekki, sbr. 1. mgr. 39. gr. sömu laga og 3. gr. reglugerðar nr. 598/2009 um útreikning, endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags, en þar komi fram að bótaþega sé skylt að veita Tryggingastofnun allar nauðsynlegar upplýsingar til að hægt sé að taka ákvörðun um bótarétt, fjárhæð og greiðslu bóta og endurskoðun þeirra. Að sama skapi sé bótaþega skylt að tilkynna Tryggingastofnun um breytingar á tekjum eða öðrum aðstæðum sem geti haft áhrif á greiðslur.

Í 7. mgr. 16. gr. laga um almanntryggingar komi fram að þegar endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluársins liggi fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum, skuli Tryggingastofnun endurreikna bótafjárhæðir á grundvelli tekna. Einnig sé fjallað um endurreikning í reglugerð nr. 598/2009. Tryggingastofnun hafi ekki heimild til að líta fram hjá tekjuupplýsingum sem fram komi í skattframtölum.

Samkvæmt 4. mgr. 4. gr. reglugerðar nr. 598/2009 sé Tryggingastofnun ríkisins heimilt, þegar einstaklingur leggi inn nýja umsókn um bætur frá stofnuninni, að miða útreikning bóta eingöngu við þær tekjur sem áætlað sé að aflað verði eftir að bótaréttur stofnast. Unnt sé að beita heimild þessari bæði um nýja umsókn um örorkubætur/endurhæfingarlífeyri og um nýja umsókn um ellilífeyri hjá sama einstaklingi, enda sé ekki um samfellt bótatímabil að ræða. Heimildinni verði þó eingöngu beitt einu sinni um útreikning ellilífeyris. Þegar um endurhæfingar- eða örorkulífeyrisþega sé að ræða teljist umsókn vera ný ef liðin séu meira en tvö ár frá því að síðasta örorkumat hafi runnið út eða viðkomandi einstaklingur hafi verið í virkri endurhæfingu og/eða hafi fengið greiðslur frá Tryggingastofnun.

Komi í ljós við endurreikning bóta að bætur hafi verið ofgreiddar fari um það samkvæmt 55. gr. laganna. Þar komi fram sú skylda Tryggingastofnunar til að innheimta ofgreiddar bætur. Sú meginregla sé ítrekuð í 9. gr. reglugerðar nr. 598/2009.

Á árinu 2021 hafi kærandi verið með endurhæfingarlífeyri og tengdar greiðslur í október, nóvember og desember. Í samræmi við ákvæði 4. mgr. 4. gr. reglugerðar nr. 598/2009 hafi allar tekjur kæranda á tímabilinu 1. október 2021 til 31. desember 2021 áhrif á réttindi kæranda. Uppgjör tekjutengdra bóta ársins hafi leitt til 142.411 kr. ofgreiðslu, að teknu tilliti til greiddrar staðgreiðslu. Ástæða þess að endurkrafa hafi myndast sé sú að við samkeyrslu við tekjuupplýsingar af skattframtali 2022 vegna tekjuársins 2021, hafi komið í ljós að tekjur kæranda hafi reynst hærri en tekjuáætlun hafði gert ráð fyrir. Endurreikningur byggist á upplýsingum úr skattframtölum bótaþega.

Kærandi hafi sent inn bréf frá Sjúkratryggingum Íslands, dags. 24. júní 2022, varðandi greiðslu sjúkradagpeninga á árinu 2021 sem litið hafi verið á sem andmæli við uppgjörið. Greiðslur vegna ársins 2021 hafi verið endurreiknaðar í kjölfarið og hafi niðurstaðan verið sú að ofgreiðsla hafi lækkað í 116.526 kr., að teknu tilliti til greiddrar staðgreiðslu.

Tryggingastofnun hafi borist umsókn kæranda um endurhæfingarlífeyri þann 7. október 2021. Kærandi hafi sent inn tekjuáætlun sama dag þar sem ekki hafi verið gert ráð fyrir neinum tekjum. Með bréfi Tryggingastofnunar, dags. 1. nóvember 2021, hafi kæranda verið tilkynnt um afgreiðslu umsóknar um endurhæfingarlífeyri frá 1. október 2021. Í bréfinu hafi komið fram að miðað yrði við engar tekjur og hafi kæranda verið greitt samkvæmt þessari tekjuáætlun í október, nóvember og desember 2021.

Við seinna bótauppgjör ársins 2021 hafi komið í ljós að frá 1. október og til og með 31. desember 2021 hafi kærandi haft 389.296 kr. í launatekjur og 2.646 kr. í vexti og verðbætur. Tekjuáætlun Tryggingastofnunar hafi ekki gert ráð fyrir neinum tekjum á því tímabili.

Tryggingastofnun sé skylt lögum samkvæmt að framkvæma endurreikning ár hvert þegar endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluársins liggi fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum. Tryggingastofnun sé ekki heimilt að horfa fram hjá tekjum sem birtist á framtali bótaþega, eins og ítrekað hafi verið staðfest af úrskurðarnefnd og hafi einnig verið staðfest fyrir dómstólum.

Niðurstaða endurreiknings tekjutengdra bóta ársins 2021 hafi verið sú að kærandi hafi fengið greiddar 1.103.276 kr. á árinu en hefði átt að fá greiddar 933.290 kr. Þessi mismunur hafi leitt til ofgreiðslu að fjárhæð 116.526 kr., að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu.

Í kæru séu gerðar þær athugasemdir að greiðsla að upphæð 389.296 kr., sem kærandi hafi fengið í nóvember 2021, skuli teljast henni til tekna við útreikning endurhæfingarlífeyris. Þessi greiðsla sé á engan hátt tekjur sem aflað hafi verið eftir að hún hafi hafið töku endurhæfingarlífeyris heldur sé um að ræða uppgjör orlofs sem kærandi hafi aflað þó nokkru áður.

Samkvæmt upplýsingum úr staðgreiðsluskrá hafi launatekjur kæranda verið 389.296 kr. í nóvember 2021.

Í 1. mgr. 7. gr. reglugerðar nr. 598/2009 segi að við endurreikning bóta til þeirra sem fengu greiðslur hluta úr bótagreiðsluári gildir að byggja skuli á upplýsingum úr staðgreiðsluskrá skattyfirvalda þegar um sé að ræða tekjur sem séu staðgreiðsluskyldar samkvæmt lögum nr. 45/1987 um staðgreiðslu opinberra gjalda. Eingöngu beri að líta til tekna þeirra mánaða sem bótaréttur hafi verið fyrir hendi í. 

Tryggingastofnun beri að reikna bætur út frá þeim tekjum sem aflað sé frá þeim tíma sem bótaréttur stofnast. Kæranda hafi verið greitt umrætt orlof í nóvember 2021 samkvæmt gögnum málsins og staðgreiðsluskrá. Kærandi hafi byrjað á endurhæfingarlífeyri þann 1. október 2021. Með vísan til ofangreindra laga- og reglugerðarákvæða ber Tryggingastofnun því að telja umrætt orlof til tekna við útreikning lífeyris til kæranda.

Með vísun til framanritaðs telji Tryggingastofnun ekki forsendur til að breyta fyrri ákvörðun sinni um endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta ársins 2021.

IV.  Niðurstaða

Mál þetta varðar endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta vegna ársins 2021.

Kærandi fékk greiddan endurhæfingarlífeyri frá Tryggingastofnun ríkisins í október 2021 til og með desember 2021. Í 3. mgr. 7. gr. laga nr. 99/2007 um félagslega aðstoð segir að um endurhæfingarlífeyri gildi ákvæði a-liðar 1. mgr., 4. mgr. og 5. mgr. 18. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar. Um aðrar tengdar bætur fari eftir sömu reglum og gildi um örorkulífeyri.

Samkvæmt 39. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar er umsækjanda eða greiðsluþega skylt að veita stofnuninni allar nauðsynlegar upplýsingar til að hægt sé að taka ákvörðun um bótarétt, fjárhæð og greiðslu bóta og annarra greiðslna samkvæmt lögunum og endurskoðun þeirra. Enn fremur er skylt að tilkynna stofnuninni um breytingar á tekjum eða öðrum aðstæðum sem geti haft áhrif á bætur eða greiðslur. Af framangreindu verður ráðið að sú skylda hvíli á greiðsluþegum að upplýsa Tryggingastofnun um tekjur á bótagreiðsluári sem kunni að hafa áhrif á bótarétt.

Í 16. gr. laga um almannatryggingar er kveðið á um tekjutengingu lífeyristrygginga og hvernig Tryggingastofnun ríkisins skuli standa að útreikningi bóta. Launatekjur eru tekjustofn sem hefur áhrif við útreikning Tryggingastofnunar á bótafjárhæð, sbr. 2. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar og einnig A-lið 7. gr. laga nr. 90/2003 um tekjustatt. Á grundvelli 7. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar ber Tryggingastofnun ríkisins að endurreikna bótafjárhæðir eftir að endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluárs liggja fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum. Leiði endurreikningur í ljós að bætur hafi verið ofgreiddar ber Tryggingastofnun að innheimta þær samkvæmt 55. gr. laga um almannatryggingar. Sú meginregla er ítrekuð í 9. gr. reglugerðar nr. 598/2009 um útreikning, endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags.

Í 5. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar kemur fram að til grundvallar bótaútreikningi hvers mánaðar skuli leggja 1/12 af áætluðum tekjum bótagreiðsluársins og að bótagreiðsluár sé almanaksár, en sé um nýja umsókn að ræða skuli bótaréttur reiknaður út frá þeim tekjum umsækjanda sem aflað er frá þeim tíma sem bótaréttur stofnaðist. Samkvæmt 4. mgr. 4. gr. reglugerðar um útreikning, endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags, er Tryggingastofnun ríkisins heimilt, þegar einstaklingur leggur inn nýja umsókn um bætur, að miða útreikning bóta eingöngu við þær tekjur sem áætlað er að aflað verði eftir að bótaréttur stofnast. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 7. gr. sömu reglugerðar, skal Tryggingastofnun við endurreikning bóta til þeirra, sem fengu greiðslur hluta úr bótagreiðsluári, byggja á upplýsingum úr staðgreiðsluskrá skattyfirvalda þegar um er að ræða tekjur sem eru staðgreiðsluskyldar samkvæmt lögum nr. 45/1987 um staðgreiðslu opinberra gjalda. Eingöngu ber að líta til tekna þeirra mánaða sem bótaréttur var fyrir hendi í. 

Við úrlausn þessa máls hefur úrskurðarnefnd velferðarmála hliðsjón af þeim lagaákvæðum sem tilgreind hafa verið hér að framan.

Samkvæmt gögnum málsins sendi kærandi Tryggingastofnun tekjuáætlun 7. október 2021 vegna töku endurhæfingarlífeyris. Í áætluninni var ekki gert ráð fyrir neinum tekjum. Tryggingastofnun samþykkti tekjuáætlunina með bréfi, dags. 1. nóvember 2021, og greiddi bætur út frá framangreindum tekjuforsendum.

Kærandi naut greiðslna endurhæfingarlífeyris frá október og út desember 2021. Í samræmi við framangreint hafa tekjur kæranda í þeim mánuðum áhrif á réttindi kæranda. Samkvæmt upplýsingum skattyfirvalda, vegna tekjuársins 2021, reyndust tekjur kæranda á framangreindu tímabili vera 389.296 kr. í launatekjur, -59.188 kr. í atvinnuleysisbætur, 71.780 kr. í aðrar tekjur og 2.646 kr. í vexti og verðbætur. Niðurstaða endurreiknings Tryggingastofnunar á tekjutengdum bótagreiðslum vegna ársins, dags. 19. maí 2022, var sú að sökum tekna hefði kærandi fengið ofgreiddar bætur samtals að fjárhæð 142.411 kr., að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu. Í kjölfar andmæla var framkvæmdur nýr endurreikningur, dags. 21. júní 2022. Samkvæmt honum voru fyrirliggjandi tekjuforsendur óbreyttar að frátöldum 71.780 kr í aðrar tekjur sem ekki voru teknar með í endurreikninginn. Niðurstaðan leiddi í ljós ofgreiðslu á árinu, samtals að fjárhæð 116.526 kr., að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu.

Ástæða þess að endurkrafa myndaðist á hendur kæranda er sú að launatekjur, nánar tiltekið orlofs- og desemberuppbætur, vegna tímabilsins 1. október til 31. desember 2021, voru hærri en gert hafði verið ráð fyrir í tekjuáætlun.

Ágreiningur málsins varðar þá ákvörðun Tryggingastofnunar að taka launauppgjör vegna starfsloka kæranda inn í framangreindan endurreikning. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum er ástæða kröfu framangreind launagreiðsla. Um er að ræða tekjustofn sem hefur áhrif við útreikning Tryggingastofnunar á bótafjárhæð, sbr. 2. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar. Tryggingastofnun greiðir tekjutengdar bætur á grundvelli upplýsinga úr tekjuáætlun viðkomandi greiðsluþega. Þá ber stofnuninni lögum samkvæmt að endurreikna bætur með hliðsjón af upplýsingum skattyfirvalda og innheimta ofgreiddar bætur. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 7. gr. reglugerðar nr. 598/2009, skal Tryggingastofnun við endurreikning bóta til þeirra, sem fengu greiðslur hluta úr bótagreiðsluári, byggja á upplýsingum úr staðgreiðsluskrá skattyfirvalda þegar um er að ræða tekjur sem eru staðgreiðsluskyldar samkvæmt lögum nr. 45/1987 um staðgreiðslu opinberra gjalda. Eingöngu ber að líta til tekna þeirra mánaða sem bótaréttur var fyrir hendi í. Þá er Tryggingastofnun ekki heimilt að horfa fram hjá tekjum sem birtast á framtali bótaþega, enda kveður 7. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar skýrt á um að eftir að endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluársins liggja fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum, skuli stofnunin endurreikna bótafjárhæðir á grundvelli tekna samkvæmt þessari grein. Við úrlausn þessa máls horfir úrskurðarnefnd til þess að samkvæmt staðgreiðsluskrá voru umræddar tekjur greiddar kæranda í nóvember 2021 og tilheyra því endurreikningi þess árs. Tryggingastofnun er ekki heimilt að horfa fram hjá tekjum sem birtast á framtali bótaþega.

Úrskurðarnefnd vill benda kæranda á að kanna þann möguleika að óska eftir breytingu á staðgreiðsluskrá hjá Skattinum.

Að öllu framangreindu virtu er það niðurstaða úrskurðarnefndar velferðarmála að staðfesta ákvörðun um endurreikning og uppgjör Tryggingastofnunar ríkisins á tekjutengdum bótum ársins 2021.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um endurreikning og uppgjör á tekjutengdum bótum A, á árinu 2021, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Rakel Þorsteinsdóttir

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum