Hoppa yfir valmynd
18. desember 2020 Utanríkisráðuneytið

Framhald á samstarfi við orkusjóð Alþjóðabankans

Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, hefur ákveðið að framlengja til næstu fjögurra ára samstarfssamning við orkusjóð Alþjóðabankans (ESMAP). Ísland fjármagnar einnig stöðu jarðhitasérfræðings hjá sjóðnum. Sjóðurinn kemur að mótun og undirbúningi verkefna á sviði endurnýjanlegrar orku í þróunarríkjum, sem síðar koma til fjármögnunar hjá bankanum og fleiri aðilum. Jafnframt er sjóðurinn mikilvægt þekkingarsetur um endurnýjanlega orku.

„Þegar kemur að því að miðla og auka þekkingu á jarðhitaverkefnum í þróunarríkjum er orkusjóðurinn mikilvægasti vettvangur Alþjóðbankans. Samstarf við sjóðinn er okkur mikils virði til að koma á framfæri íslenskri sérþekkingu í tengslum við verkefni bankans. Nýr samningur er því beggja hagur,“ segir Guðlaugur Þór.

Verkefnaáætlun sjóðsins fyrir 2021-2024 sem liggur til grundvallar nýja samningnum byggir á tveimur meginmarkmiðum, aðgengi fyrir alla að orku fyrir 2030 og minnkun kolefnislosunar í orkugeiranum, til að styðja við framgang sjöunda heimsmarkmiðsins um sjálfbæra orku og baráttuna gegn loftslagsbreytingum. Í áætluninni er áfram lögð rík áherslu á jarðhita, meðal annars beina nýtingu, auk vatnsorku og annarra endurnýjanlegra orkugjafa.

Á þessu ári lauk verkefninu „Global Geothermal Development Plan“ en því var formlega hleypt af stokkunum á jarðhitaráðstefnu á Íslandi 2013. Íslenskir jarðhitasérfræðingar innan bankans störfuðu náið að verkefninu og í nýlegu yfirliti sjóðsins yfir árangur síðustu fjögurra ára kemur fram að íslensk sérþekking hafi átt stóran þátt í góðum árangri verkefnisins.

Auk jarðhitamála styður Ísland við vatnsaflsverkefni á vegum ESMAP en Ísland býr yfir víðtækri þekkingu á því sviði sem nýst getur víða um heim. Geir H. Haarde, aðalfulltrúi kjördæmis Norðurlanda og Eystrasaltsríkja hjá Alþjóðabankanum, stóð fyrir viðburði í tengslum við ársfund bankans um hlutverk vatnsafls í þróunarsamvinnu í tengslum við útgáfu úttektar á stuðningi Alþjóðabankans við raforkuframleiðslu úr endurnýjanlegum orkulindum. Úttektin sýnir að vatnsaflsverkefni bankans hafa skilað framúrskarandi árangri.

ESMAP leggur ríka áherslu á jafnréttismál í orkugeiranum og Íslendingar hafa átt samstarf við sjóðinn um jafnréttismál og jarðhita í þeim tilgangi að styrkja rödd og þátttöku kvenna. Nefna má að utanríkisráðuneytið tók þátt í vinnu ESMAP við nýja skýrslu um jafnréttismál í jarðhitaverkefnum.

  • $alt

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

7. Sjálfbær orka
5. Jafnrétti kynjanna
17. Samvinna um markmiðin
13. Aðgerðir í loftslagsmálum

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum