Hoppa yfir valmynd
8. maí 2008 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Greiðsluafkoma ríkissjóðs janúar-mars 2008

Greiðsluuppgjör ríkissjóðs fyrir fyrsta ársfjórðung liggur nú fyrir. Samkvæmt uppgjörinu er handbært fé frá rekstri jákvætt um 37,8 ma.kr. innan ársins, sem er 7,4 ma.kr. hagstæðari útkoma en á sama tíma í fyrra. Tekjur reyndust 9,4 ma.kr. hærri en í fyrra á meðan gjöldin jukust um 7,9 ma.kr. Hreinn lánsfjárjöfnuður er jákvæður um 35,5 ma.kr., en var neikvæður um 1,7 ma.kr. á sama tíma í fyrra.

Sjóðstreymi ríkissjóðs janúar–mars 2006-2008

 

 Í milljónum króna

 

2004

2005

2006

2007

2008

Innheimtar tekjur

64.635

79.449

99.707

118.420

127.835

Greidd gjöld

65.039

70.255

73.891

85.628

93.577

Tekjujöfnuður

-404

9.194

25.816

32.792

34.259

Söluhagn. af hlutabr. og eignahl.

-

-

-

-

-

Breyting viðskiptahreyfinga

-838

108

-2.730

-2.434

3.504

Handbært fé frá rekstri

435

9.301

23.086

30.357

37.763

Fjármunahreyfingar

3.177

6.210

-2.529

-32.020

-2.306

Hreinn lánsfjárjöfnuður

3.611

15.511

20.557

-1.663

35.457

Afborganir lána

-13.950

-11.404

-9.096

-31.921

-808

   Innanlands

-57

-2.220

-9.096

-20.810

-704

   Erlendis

-13.893

-9.184

-

-11.111

-104

Greiðslur til LSR og LH

-1.875

-850

-990

-990

-990

Lánsfjárjöfnuður, brúttó

-12.214

3.257

10.471

-34.574

33.659

Lántökur

34.626

1.094

1.532

43.753

-322

   Innanlands

14.240

-3.831

1.532

39.362

-322

   Erlendis

20.387

4.925

-

4.391

-

Breyting á handbæru fé

5.064

4.351

12.003

9.180

33.337



 Innheimtar tekjur á fyrstu þremur mánuðum ársins námu 128 ma.kr. sem er 7,2% meira en á sama tíma 2007. Þar af námu skatttekjur og tryggingargjöld rúmum 119 ma.kr. og jukust um 6,7% að nafnvirði milli ára eða 2,4% umfram verðbólgu. Aðrar rekstrartekjur námu rúmum 7 ma.kr. og jukust um 10,5% en þær samanstanda einkum af vaxtatekjum og sölutekjum af vöru og þjónustu. Loks nam eignasala ríkissjóðs rúmum einum milljarði á greiðslugrunni í mars.

Skattar á tekjur og hagnað námu tæpum 54 ma.kr. og jukust um 8,7% milli ára. Þar af nam tekjuskattur einstaklinga 23,1 ma.kr og jókst um 0,5% að nafnvirði frá fyrra ári. Tekju­skattur lögaðila nam 4,8 ma.kr. og minnkaði um 11,5% milli ára. Skattur af fjármagns­tekjum nam 25,8 ma.kr. en innheimta hans fer að langmestu leyti fram í janúar hvert ár. Innheimtur fjármagnstekjuskattur á tímabilinu jókst um 22,9% milli ára. Eignarskattar drógust saman um 16% frá fyrra ári og sjást þar merki samdráttar á fasteignaviðskiptum, en stimpilgjöld sem námu 800 m.kr. í mars í fyrra námu nú aðeins 484 m.kr. á mánuðinum.

Innheimta almennra veltuskatta nam tæpum 51 ma.kr. á fyrstu þremur mánuðunum ársins sem samsvarar 2,4 ma.kr. aukningu milli ára eða aðeins 0,7% hækkun að raunvirði (umfram hækkun vísitölu neysluverðs án húsnæðis). Þegar litið er á 6 mánaða hlaupandi meðaltal nemur raunhækkun veltuskatta 6,1% á ársgrundvelli. Stærsti hluti veltuskattanna (um 70%) er virðisaukaskattur og skilaði hann 9,3 ma.kr. í mars sem er tæpum milljarði minna að krónutölu en í sama mánuði í fyrra. Talsverð umskipti koma fram í innheimtutölum um virðisaukaskatt sl. tveggja mánaða eftir mikla innheimtu í janúar sl. Aðrir veltuskattar skiluðu ríkissjóði 15,5 ma.kr. í tekjur á tímabilinu, rúmum 2 ma.kr. meira en í fyrra, tollar skiluðu 1,9 ma.kr. og tryggingagjöldin 10,3 ma.kr. Innheimta veltuskatta það sem af er ári er nokkru meiri en reiknað var með í tekjuáætlun ársins en á móti kemur heldur minni innheimta tekjuskatta.

Greidd gjöld námu tæpum 94 ma.kr. og jukust um 8 ma.kr. frá fyrra ári, eða 9,3%. Milli ára jukust útgjöld mest til heilbrigðismála, um 1,8 milljarð króna eða 8,3% og til menntamála um 1,3 ma.kr. eða 12,5%. Hlutfallslega er mest hækkun milli ára á liðnum varnarmál, en Ratsjárstofnun kemur sem ný stofnun undir þennan lið nú á þessu ári.

Lánsfjárjöfnuður ríkissjóðs er jákvæður um 33,6 ma.kr. eftir fyrsta ársfjórðung, en lánsfjárþörfin var 34,6 ma.kr. fyrir sama tímabil í fyrra. Hreinn lánsfjárjöfnuður nam 35,5 ma.kr. fyrstu þrjá mánuðina, en var neikvæður um 1,7 ma.kr. á sama tíma í fyrra.

Tekjur ríkissjóðs janúar-mars 2006-2008

 

Milljónir króna

 

Breyting frá fyrra ári, %

 

2006

2007

2008

 

2006

2007

2008

Skatttekjur og tryggingagjöld

94.593

111.812

119.261

 

25,9

18,2

6,7

Skattar á tekjur og hagnað

41.004

49.294

53.593

 

40,0

20,2

8,7

Tekjuskattur einstaklinga

19.592

22.968

23.079

 

11,5

17,2

0,5

Tekjuskattur lögaðila

7.475

5.369

4.754

 

249,0

-28,2

-11,5

Skattur á fjármagnstekjur

13.937

20.957

25.760

 

45,4

50,4

22,9

Eignarskattar

3.032

2.713

2.279

 

-16,3

-10,5

-16,0

Skattar á vöru og þjónustu

40.683

48.276

50.677

 

20,5

18,7

5,0

Virðisaukaskattur

27.511

35.000

35.229

 

25,1

27,2

0,7

Vörugjöld af ökutækjum

2.677

1.809

3.193

 

32,1

-32,4

76,5

Vörugjöld af bensíni

2.279

2.218

2.079

 

11,7

-2,7

-6,3

Skattar á olíu

1.630

1.865

2.006

 

-24,9

14,4

7,6

Áfengisgjald og tóbaksgjald

2.491

2.592

2.744

 

5,2

4,1

5,9

Aðrir skattar á vöru og þjónustu

4.095

4.792

5.426

 

29,5

17,0

13,2

Tollar og aðflutningsgjöld

854

1.387

1.900

 

26,9

62,4

37,0

Aðrir skattar

174

259

552

 

8,2

48,7

113,0

Tryggingagjöld

8.845

9.884

10.260

 

16,1

11,7

3,8

Fjárframlög

220

205

27

 

43,9

-6,7

-86,9

Aðrar tekjur

4.877

6.683

7.385

 

19,2

37,0

10,5

Sala eigna

14

501

1.162

 

-

-

-

Tekjur alls

99.704

119.201

127.835

 

25,5

19,6

7,2



Gjöld ríkissjóðs janúar–mars  2006-2008

 

Milljónir króna

 

Breyting frá fyrra ári, %

 

2006

2007

2008

 

2007

2008

Almenn opinber þjónusta

9.320

11.337

12.371

 

21,6

9,1

Þar af vaxtagreiðslur

2.524

3.506

3.520

 

38,9

0,4

Varnarmál

166

158

405

 

-4,8

156,3

Löggæsla, réttargæsla og öryggismál

3.240

4.143

5.123

 

27,9

23,7

Efnahags- og atvinnumál

8.898

11.384

11.718

 

27,9

2,9

Umhverfisvernd

655

860

742

 

31,3

-13,7

Húsnæðis- skipulags- og veitumál

107

114

130

 

6,5

14,0

Heilbrigðismál

19.319

21.666

23.475

 

12,1

8,3

Menningar-, íþrótta- og trúmál

3.714

4.378

4.853

 

17,9

10,8

Menntamál

9.640

10.525

11.845

 

9,2

12,5

Almannatryggingar og velferðarmál

16.476

19.249

20.226

 

16,8

5,1

Óregluleg útgjöld

1.493

1.814

2.688

 

21,5

48,2

Gjöld alls

73.029

85.628

93.577

 

17,3

9,3



 

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum