Hoppa yfir valmynd
29. janúar 2021 Dómsmálaráðuneytið

Dómarar skipaðir í Endurupptökudóm

Með lögum nr. 47/2020, sem tóku gildi þann 1. desember sl., var Endurupptökudómi komið á fót, en Endurupptökudómur er sérdómstóll sem tekur ákvörðun um hvort heimila eigi endurupptöku dómsmála sem dæmd hafa verið í héraði, Landsrétti eða Hæstarétti.

Í Endurupptökudómi sitja fimm dómendur, einn frá hverju dómstigi og tveir aðrir sem ekki eru embættisdómarar, en skipað er í þessar tvær stöður að undangenginni auglýsingu og umsögn dómnefndar um hæfni umsækjenda um dómaraembætti. Varamenn eru jafnmargir og skipaðir á sama hátt. Sá hæstaréttardómari sem skipaður er í dóminn er jafnframt forseti hans.

Skipunartími er fimm ár, en þó þannig að skipunartími eins manns rennur út hvert ár. Þegar skipað er í fyrsta sinn í dóminn ræður tilviljun lengd skipunartíma. Í samræmi við þetta hefur dómsmálaráðherra skipað fimm dómendur og fimm varadómendur í Endurupptökudóm. Þeir eru:

 

Dómendur:

  • Karl Axelsson, dómari við Hæstarétt Íslands, skipaður frá 1. febrúar 2021 – 31. janúar 2022.
  • Jóhannes Karl Sveinsson, lögmaður, skipaður frá 1. febrúar 2021 – 31. janúar 2023.
  • Oddný Mjöll Arnardóttir, dómari við Landsrétt, skipuð frá 1. febrúar 2021 – 31. janúar 2024.
  • Hólmfríður Grímsdóttir, héraðsdómari, skipuð frá 1. febrúar 2021 – 31. janúar 2025.
  • Eyvindur G. Gunnarsson, prófessor, skipaður frá 1. febrúar 2021 – 31. janúar 2026.

 

Varadómendur:

  • Ingveldur Einarsdóttir, dómari við Hæstarétt Íslands, skipuð frá 1. febrúar 2021 – 31. janúar 2022.
  • Stefán Geir Þórisson, lögmaður, skipaður frá 1. febrúar 2021 – 31. janúar 2023.
  • Aðalsteinn E. Jónasson, dómari við Landsrétt, skipaður frá 1. febrúar 2021 – 31. janúar 2024.
  • Helgi Sigurðsson, héraðsdómari, skipaður frá 1. febrúar 2021 – 31. janúar 2025.
  • Eiríkur Elís Þorláksson, dósent, skipaður frá 1. febrúar 2021 – 31. janúar 2026.

Endurupptökudómur hefur aðsetur hjá dómstólasýslunni að Suðurlandsbraut 14 í Reykjavík.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum