Hoppa yfir valmynd
21. nóvember 2012 Utanríkisráðuneytið

Áskoranir og sóknarfæri á norðurslóðum

Snædrekinn við Skarfabakka.

Utanríkisráðuneytið, Samtök atvinnulífsins og Íslandsstofa bjóða til opins fundar um áskoranir og sóknarfæri er tengjast auknum efnahagsumsvifum á norðurslóðum. Fundurinn verður haldinn fimmtudaginn 22. nóvember kl. 14-16 á Grand Hótel Reykjavík.
Miðað við núverandi þróun má gera ráð fyrir að fjárfestingar á norðurslóðum geti numið allt að 100 milljörðum dollara á næstu tíu árum, m.a. vegna olíu- og gasframleiðslu, nýtingar náttúruauðlinda, uppbyggingar samgönguinnviða, ferðaþjónustu og fjarskiptatækni. Svæðið býr yfir ýmsum áskorunum og Ísland og íslenskt atvinnulíf hefur reynslu, þekkingu og getu til að nýta sér þau fjölmörgu sóknarfæri sem framundan eru.

DAGSKRÁ:
Setning
Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra

Frummælendur
Charles Emmerson - Sérfræðingur hjá Chatham House London í málefnum norðurslóða og höfundur nýlegrar skýrslu Loyds of London Arctic Opening: Opportunity and Risk in the High North
Felix Tschudi - Eigandi og stjórnarformaður Tschudi skipafélagsins sem vinnur að því að þróa siglingar um Norður-Íshafið
Tryggvi Jónsson - framkvæmdastjóri mannvirkja hjá Mannviti
Ágúst Ágústsson - markaðsstjóri Faxaflóahafna, stjórnarformaður Cruise Iceland

Samantekt
Svana Helen Björnsdóttir, formaður Samtaka iðnaðarins.

Fundarstjóri
Jón Ásbergsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu.

Fundurinn fer fram á ensku.
Aðgangur er ókeypis en fólk er vinsamlegast beðið að skrá þátttöku á netfangið [email protected] eða í síma 511 4000

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum