Hoppa yfir valmynd
3. september 2009 Dómsmálaráðuneytið

Próf í íslensku fyrir umsækjendur um ríkisborgararétt hefjast 30. nóvember

Íslenskupróf vegna umsóknar um íslenskan ríkisborgararétt hefjast næst hjá Námsmatsstofnun 30. nóvember næstkomandi.

Íslenskupróf vegna umsóknar um íslenskan ríkisborgararétt hefjast næst hjá Námsmatsstofnun 30. nóvember næstkomandi fyrir þá sem hafa skráð sig í próf fyrir 10. nóvember. Þeir sem skrá sig eftir þann tíma eiga kost á því að taka próf vorið 2010. Prófin verða haldin í Reykjavík og utan höfuðborgarsvæðisins ef næg þátttaka fæst.

Íslenskupróf fyrir umsækjendur um íslenskan ríkisborgararétt var haldið í fyrsta sinn í júní síðastliðnum en 1. janúar 2009 tók gildi það ákvæði í lögum um íslenskan ríkisborgararétt að umsækjandi skuli hafa staðist próf í íslensku. Alls tóku þá 206 umsækjendur próf sem haldið var bæði á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri. Dóms- og kirkjumálaráðuneytið hefur falið Námsmatsstofnun að sjá um framkvæmd prófanna og að mati stofnunarinnar tókst framkvæmdin í júní að flestu leyti vel.

Skráning í prófin hefst 15. september nk. og fer hún fram með rafrænum hætti á vef Námsmatsstofnunar, www.namsmat.is. Þar er einnig að finna nánari upplýsingar um hvar prófin fara fram, sýnishorn af verkefnum og prófkröfur. Einnig eru veittar upplýsingar í síma 550 2400. Gjald fyrir þátttöku í prófi er 7.000 krónur.

Auglýsing um próf í íslensku fyrir umsækjendur um íslenskan ríkisborgararétt (pdf-skjal)



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum