Hoppa yfir valmynd
4. febrúar 2022 Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið

Tilnefningar Íslands við Mannréttindadómstól Evrópu

Mynd/Mannréttindadómstóll Evrópu - mynd

Forsætisráðuneytið hefur sent tilnefningar Íslands um dómaraefni við Mannréttindadómstól Evrópu til ráðgjafarnefndar á vegum Evrópuráðsins.

Í samræmi við viðmiðunarreglur Evrópuráðsins um val á þeim sem tilnefna skal sem dómaraefni við Mannréttindadómstól Evrópu nr. 40/2012, skipaði Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra í janúar sl. fimm manna nefnd til að leggja mat á hæfi umsækjenda til að vera tilnefnd af Íslands hálfu. Umsækjendum sem nefndin leggur til að tilnefnd verði sem dómaraefni skyldi ekki raðað innbyrðis og skyldu ekki sæta frekari samanburði á hæfni.

Nefndin hefur nú lokið störfum og er niðurstaða hennar sú að allir þrír umsækjendurnir sem sóttust eftir tilnefningu teljist hæfir til að verða tilnefndir af Íslands hálfu sem dómarar við Mannréttindadómstól Evrópu. Þau sem sóttu um að vera tilnefnd sem dómaraefni af Íslands hálfu eru Jónas Þór Guðmundsson, hæstaréttarlögmaður, Oddný Mjöll Arnardóttir, landsréttardómari og rannsóknarprófessor og Stefán Geir Þórisson, hæstaréttarlögmaður.

Endanlegum tilnefningum ber svo að skila til þings Evrópuráðsins, fyrir 5. maí nk. Samkvæmt 22. gr. mannréttindasáttmálans eru dómarar við Mannréttindadómstólinn kjörnir af þingi Evrópuráðsins af lista með þremur mönnum sem samningsaðili tilnefnir. Fer það kjör fram í júní n.k.

Um Mannréttindadómstól Evrópu

Mannréttindadómstóll Evrópu í Strassborg fjallar um mál sem til hans er vísað af einstaklingum og samningsaðilum vegna meintra brota á ákvæðum mannréttindasáttmála Evrópu eða samningsviðaukum við hann. Sáttmálanum hefur verið veitt lagagildi á Íslandi skv. 1. gr. laga nr. 62/1994. Dómstóllinn er skipaður einum dómara frá hverju samningsríkja, sbr. 20. gr. sáttmálans.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum