Hoppa yfir valmynd
1. mars 2022 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 25/2022 Úrskurður 1. mars 2022

Mál nr. 25/2022                    Eiginnafn:     Paradís (kvk.)

 

 

 

Hinn 1. mars 2022 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 25/2022 en erindið barst nefndinni 9. febrúar. 

 

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

 

  1. Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  2. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  3. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  4. Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Eiginnafnið Paradís (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Paradísar, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Paradís (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum