Hoppa yfir valmynd
25. janúar 2016 Matvælaráðuneytið

Styrkir til rannsókna á sviði byggðamála

Ísland
Ísland

Byggðarannsóknasjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki til rannsókna á sviði byggðamála árið 2016. Tilgangur sjóðsins er að efla byggðarannsóknir og bæta þannig þekkingargrunn fyrir stefnumótun og aðgerðir í byggðamálum.

Í umsóknum skal meðal annars koma fram greinargóð lýsing á rannsókninni, markmiðum hennar, ávinningi, nýnæmi og hvernig hún styður við tilgang sjóðsins. Við mat á umsóknum er meðal annars litið til hvernig verkefnið styður við markmið sjóðsins, vísindalegs- og hagnýts gildis þess og hæfni umsækjenda.

Umsækjendur geta verið einstaklingar, fyrirtæki, rannsókna-, þróunar- og háskólastofnanir eða aðrir lögaðilar.

Styrkir verða veittir til eins árs. Til úthlutunar eru 10 m.kr. og samkvæmt reglum sjóðsins er miðað við að styrkirnir séu ekki færri en þrír og ekki fleiri en fimm ár hvert.

Þetta er í annað árið sem úthlutað verður styrkjum úr Byggðarannsóknasjóði, en sjóðurinn var settur á laggirnar í byrjun árs 2015. Stjórn Byggðarannsóknasjóðs styrkti eftirfarandi fjórar rannsóknir á árinu 2015:

  • Byggðir og breytingar – atvinnuhættir íslenskra þéttbýlisstaða í fortíð, nútíð og framtíð. Styrkhafi er Þekkingarnet Þingeyinga. Styrkupphæð 2 m.kr.
  • Lýðræðisvitund og valdefling ungmenna á landsbyggðinni. Styrkhafi er Þekkingarsetrið Nýheimar. Styrkupphæð 3 m.kr.
  • Nýir íbúar í norðri: Hamingja og velferð innflytjenda á Norðurlandi. Styrkhafi er Markus Hermann Meckl (Háskólinn á Akureyri). Styrkupphæð 3 m.kr.
  • Samstarfsverkefni sveitarfélaga. Styrkhafi er Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri. Styrkupphæð 2 m.kr.

Rafrænt umsóknarform má nálgast hér.

Og hér má finna reglurByggðarannsóknasjóðs og starfsreglur stjórnar sjóðsins.

Nánari upplýsingar veitir Hólmfríður Sveinsdóttir. Netfang: [email protected]. Sími: 545 8600.

Umsóknir skulu berast Byggðastofnun fyrir miðnætti 6. mars 2016.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum