Hoppa yfir valmynd
19. nóvember 2020 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 394/2020 - Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 394/2020

Fimmtudaginn 19. nóvember 2020

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 13. ágúst 2020, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 13. ágúst 2020, um að synja beiðni hans um greiðslu atvinnuleysisbóta frá 1. júní 2020.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 22. júní 2020. Með erindi kæranda 23. júní 2020 óskaði hann eftir greiðslu atvinnuleysisbóta frá 1. júní 2020 með vísan til þess að hann taldi sig hafa skilað umsókn í upphafi þess mánaðar. Með ákvörðun, dags. 13. ágúst 2020, var kæranda tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og bótaréttur metinn 100%. Beiðni kæranda um að umsókn tæki gildi 1. júní 2020 var synjað með vísan til 1. mgr. 29. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 13. ágúst 2020. Með bréfi, dags. 17. ágúst 2020, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst með bréfi, dags. 25. september 2020. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 1. október 2020, var greinargerð Vinnumálastofnunar send kæranda til kynningar. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi krefst þess að fyrsti dagur atvinnuleysisbóta verði færður aftur til 1. júní 2020 en þann 2. júní 2020 hafi hann gert tilraun til að klára umsókn og talið sig hafa lokið henni. Engar villumeldingar hafi komið né upplýsingar um að umsóknin hefði ekki klárast. Þann 23. júní 2020 hafi kærandi haft samband við Vinnumálastofnun og þá hafi starfsmaður séð að hann hafi gert tilraun til að gera umsókn þann 2. júní. Kæranda hafi verið sagt að hann yrði að gera aftur umsókn þar sem hann hafi ekki getað sjálfur fundið ókláruðu umsóknina. Það hafi kærandi gert og sótt um að fá fyrsta dag bóta færðan til baka. Kærandi bendir á að hann hafi verið tekjulaus mestallan júnímánuð vegna þessa og þurft að greiða til baka af þeim bótum sem hann hafi fengið fyrir júlímánuð. Ef ekki sé hægt að verða við kröfu kæranda krefjist hann þess að fá aðgang að öllum gögnum um umsóknir sínar, bæði kláraðar og ókláraðar, til þess að geta farið með málið lengra ef nauðsyn krefji.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar er vísað til 1. mgr. 9. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar þar sem fram komi að launamönnum og sjálfstætt starfandi einstaklingum sé heimilt að sækja um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar þegar þeir verði atvinnulausir. Þá segi í 1. mgr. 29. gr. laganna að sá sem teljist tryggður samkvæmt lögunum geti átt rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samfellt í þrjú ár frá þeim degi er Vinnumálastofnun hafi tekið við umsókn hans um atvinnuleysisbætur nema annað leiði af lögunum. Í athugasemdum við 29. gr. í frumvarpi því er varð að lögum nr. 54/2006 komi fram að miðað sé við að það tímabil sem atvinnuleysisbætur séu greiddar hefjist þegar Vinnumálastofnun móttaki umsókn um atvinnuleysisbætur. Samkvæmt umsóknarkerfi Vinnumálastofnunar hafi kærandi opnað umsókn um atvinnuleysisbætur á mínum síðum þann 4. júní 2020, án þess þó að ljúka við umsóknina. Kærandi hafi því ekki lokið við eða skilað umsókn til stofnunarinnar í byrjun júní 2020. Þann 22. [júní] hafi kærandi skilað inn umsókn til stofnunarinnar. 

Vinnumálastofnun bendir á að það sé grundvallarskilyrði fyrir því að eiga rétt á greiðslu atvinnuleysistrygginga að hinn tryggði sæki um slíkt til stofnunarinnar. Stofnunin telji sér ekki heimilt að greiða atvinnuleysisbætur lengra aftur en frá dagsetningu umsóknar atvinnuleitanda um atvinnuleysisbætur. Ljóst sé af gögnum málsins að kærandi hafi fyrst lokið við umsókn um greiðslur atvinnuleysistrygginga þann 22. júní 2020, en stofnunin hafi ekki getað vitað að hann væri án atvinnu fyrr en á þeim tíma. Kærandi eigi því ekki rétt á greiðslum atvinnuleysisbóta fyrir þann tíma, sbr. 1. mgr. 9. gr. og 1. mgr. 29. gr. laga nr. 54/2006. Þá bendir Vinnumálastofnun á að algengt sé að fólk hefji umsóknarferli án þess að ljúka við umsókn, til að mynda til að kynna sér efni hennar eða umsóknarferlið vegna hugsanlegs atvinnumissis. Þá komi skilmerkilega fram í umsóknarviðmóti stofnunarinnar að ljúka þurfi við umsókn innan tilskilins tíma og senda hana inn svo að unnt sé að taka hana til afgreiðslu. Það sé mat stofnunarinnar að það ætti ekki að leynast neinum hvort hann hafi lokið við og sent inn umsókn um atvinnuleysisbætur til stofnunarinnar.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að synja beiðni kæranda um greiðslu atvinnuleysisbóta afturvirkt frá 1. júní 2020.

Í 9. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar er fjallað um umsókn um atvinnuleysisbætur og er 1. mgr. lagagreinarinnar svohljóðandi:

Launamönnum og sjálfstætt starfandi einstaklingum er heimilt að sækja um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar þegar þeir verða atvinnulausir. Umsóknin skal vera skrifleg á þar til gerðum eyðublöðum og henni skal meðal annars fylgja vottorð fyrrverandi vinnuveitanda, staðfesting um stöðvun rekstrar og önnur nauðsynleg gögn að mati Vinnumálastofnunar. Í umsókn skulu koma fram allar þær upplýsingar er varða vinnufærni umsækjanda og þær rökstuddar fullnægjandi gögnum.

Í 1. mgr. 29. gr. laga nr. 54/2006 kemur fram að sá sem teljist tryggður samkvæmt lögunum geti átt rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samfellt í þrjú ár frá þeim degi er Vinnumálastofnun hafi tekið við umsókn hans um atvinnuleysisbætur nema annað leiði af lögunum. Í athugasemdum við 29. gr. frumvarps þess sem varð að lögum um atvinnuleysistryggingar kemur fram að miðað sé við að það tímabil sem atvinnuleysisbætur séu greiddar hefjist þegar Vinnumálastofnun móttaki umsókn um atvinnuleysisbætur.

Kærandi opnaði umsókn um atvinnuleysisbætur þann 4. júní en lauk ekki við gerð hennar. Þegar kæranda varð það ljóst, eða 22. júní 2020, gerði hann nýja umsókn og sendi inn til stofnunarinnar. Því er ljóst að Vinnumálastofnun tók við umsókn kæranda 22. júní 2020 og á hann því ekki rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrir þann tíma, sbr. 1. mgr. 9. gr. og 1. mgr. 29. gr. laga nr. 54/2006. Ákvæði 1. mgr. 9. gr. og 1. mgr. 29. gr. laganna eru fortakslaus að þessu leyti. Hin kærða ákvörðun er því staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 13. ágúst 2020, um að synja beiðni A, um greiðslu atvinnuleysisbóta frá 1. júní 2020, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

                                                                                                                                                                                             Kári Gunndórsson

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum