Hoppa yfir valmynd
1. nóvember 2017 Innviðaráðuneytið

Áætluð tekjujöfnunarframlög 2017

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um áætlaða úthlutun tekjujöfnunarframlaga ársins 2017.

Ráðherra hefur samþykkt tillöguna á grundvelli 12. gr. reglugerðar um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, nr. 960/2010. Að teknu tilliti til ráðstöfunarfjármagns sjóðsins nemur áætluð heildarfjárhæð framlaganna 1.250 m.kr. og tekur jöfnunin mið af 96,45% af meðaltekjum á íbúa í viðkomandi viðmiðunarflokki framlaganna.

Við útreikning framlaganna er gengið út frá hámarkstekjumöguleikum sveitarfélaga af útsvari og fasteignaskatti. Einungis kemur til greiðslu framlags hafi sveitarfélög fullnýtt heimild sína til álagningar útsvars.

Hinn 30. október komu ¾ hlutar af áætluðum framlögum til greiðslu samtals 937,5 m.kr. Uppgjör framlaganna fer fram í desember á grundvelli leiðréttrar skrár um álagðar skatttekjur sveitarfélaga.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum