Hoppa yfir valmynd
18. september 2017 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Ráðstefna um heimilisofbeldi 4. október

Jafnréttisstofa boðar til ráðstefnu um heimilisofbeldi 4. október næstkomandi. Fjallað verður um reynslu af þverfaglegri samvinnu í heimilisofbeldismálum og um þá jaðarhópa sem eru í mestri hættu á að verða þolendur heimilisofbeldis.

Byggjum brýr, brjótum múra er yfirskrift ráðstefnunnar sem er liður í viðamiklu samstarfsverkefni sem Jafnréttisstofa vinnur að með ýmsum aðilum á grundvelli styrks frá Evrópusambandinu. Að samstarfinu koma Akureyrarbær, Reykjavíkurborg, Ríkislögreglustjóri, Lögreglan á Norðurlandi eystra og ráðuneyti dóms- og velferðarmála. Þetta er fyrsta ráðstefnan af þremur sem haldnar verða í tengslum við verkefnið. 

Á ráðstefnunni 4. október verður sjónum annars vegar beint að reynslu af þverfaglegri samvinnu í heimilisofbeldismálum og hins vegar þeim jaðarhópum sem eru í mestri hættu á að verða þolendur heimilisofbeldisbrota.

Hér á landi hefur mikið verið litið til Noregs í þróun þverfaglegrar samvinnu gegn heimilisofbeldi. Meðal frummælenda verður Sissel Meling, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni í Noregi og verkefnastjóri hjá SARA sem heldur erindið: Intimate partner violence risk assessment. Working methods and experiences from the South West police district, Norway.

Peter Neyrod er fyrrum lögreglumaður og nú fræðimaður sem skoðar eðli og umfang heimilisofbeldis. Peter er lektor í gagnreyndri löggæslu við Afbrotafræðistofnun Cambridge háskóla. Peter vinnur að matsrannsókn á samvinnu gegn heimilisofbeldi í Bretlandi og hefur mikla reynslu af skimun fyrir heimilisofbeldi. Um þetta mun hann fjalla í erindi sínu á ráðstefnunni undir yfirskriftinni: Policing domestic violence: the lessons from frontline research for better screening, assessment and intervention.

Aðgangur og hádegisverður er þátttakendum að kostnaðarlausu.

Ráðstefnan fer fram í Þjóðminjasafni Íslands þann 4. október kl. 10 til 16.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum