Hoppa yfir valmynd
11. júní 2019 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 338/2019 - Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 11. júlí 2019 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 338/2019

í stjórnsýslumáli nr. KNU19040110

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 24. apríl 2019 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fæddur [...], og vera ríkisborgari [...] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 5. apríl 2019, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa honum frá landinu.

Þess er krafist að hin kærða ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að stofnuninni verði gert að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd á Íslandi til efnismeðferðar, í fyrsta lagi á grundvelli 3. mgr. 36. gr., sbr. 1. mgr. 42. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, og í öðru lagi á grundvelli 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 19. desember 2018. Kærandi framvísaði dvalarleyfisskírteini frá Grikklandi þar sem fram kemur að hann sé handhafi alþjóðlegrar verndar í Grikklandi og að hann hafi gilt dvalarleyfi þar í landi til 25. apríl 2021. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun, m.a. þann 28. febrúar 2019, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað þann 5. apríl 2019 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 9. apríl 2019 og kærði kærandi ákvörðunina þann 24. apríl 2019 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 7. maí 2019 ásamt fylgigögnum. Þann 11. júní bauð kærunefnd kæranda að leggja fram uppfærðar heilsufarsupplýsingar. Í tölvupósti frá talsmanni kæranda, dags. 18. júní sl., kom fram að frekari upplýsinga væri ekki að vænta.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kom fram að kæranda hefði verið veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi. Umsókn hans um alþjóðlega vernd yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Grikklands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá hefði kærandi ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður væru fyrir hendi þannig að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hann fluttur til Grikklands.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur m.a. fram að hann hafi í viðtali hjá Útlendingastofnun mótmælt því að vera sendur aftur til Grikklands. Kærandi hafi aðeins fengið húsaskjól og framfærslu frá yfirvöldum síðustu sex mánuðina áður en hann hafi yfirgefið Grikkland. Því hafi hann fyrst um sinn verið heimilislaus. Þá hafi hann verið í fangelsi í fjóra mánuði þar sem hann hafi ekki getað sannað á sér deili. Kærandi hafi þá lýst árásum sem hann hafi orðið fyrir í Grikklandi en sökum þess upplifi hann sig ekki öruggan þar í landi. Þá greini kærandi frá því að hann hafi ekki fengið nauðsynlega geðheilbrigðisþjónustu í Grikklandi þrátt fyrir að hann hafi þjáðst af djúpu þunglyndi. Kveði kærandi andlega heilsu sína vera mjög slæma og þegar honum líði sem verst [...]. Hann sé mjög stressaður og glími við svefnerfiðleika. Þá kveði kærandi að honum hafi verið [...] auk þess sem hann hafi fengið vægt hjartaáfall sem táningur.

Kærandi telur augljóst að hann sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga, svo sem Útlendingastofnun hafi lagt til grundvallar í máli hans. Vísar kærandi í því sambandi m.a. til framlagðra heilsufarsgagna, en af þeim verði ráðið að kærandi hafi m.a. glímt við kvíðaröskun, eftirstöðvar [...] og geðlægðarlotu. Þá hafi kærandi m.a. greint sálfræðingi frá því að hann hafi margsinnis [...].

Í greinargerð sinni gerir kærandi athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar í máli hans. Telur kærandi að honum muni ekki standa til boða fullnægjandi heilbrigðisþjónusta, félagslegar bætur eða aðgangur að húsnæði þrátt fyrir staðhæfingar stofnunarinnar þess efnis í hinni kærðu ákvörðun. Vísi kærandi í því sambandi til alþjóðlegra skýrslna og heimilda þess efnis. Þá telji kærandi nægilega sýnt fram á að honum verði það ómögulegt að verða sér úti um atvinnu í Grikklandi, m.a. vegna þeirrar alvarlegu mismununar sem þar þrífist gagnvart þeim sem tala ekki grísku og vegna fordóma grísks samfélags. Í greinargerð kæranda er þá gerð grein fyrir aðstæðum, aðbúnaði og réttarstöðu þeirra sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi og er vísað í því sambandi til fjölda skýrslna alþjóðlegra stofnana og frjálsra félagasamtaka, m.a. til skýrslu mannréttindafulltrúa Evrópuráðsins frá 6. nóvember 2018. Þar komi fram að aðbúnaður umsækjenda um alþjóðlega vernd í flóttamannabúðum sé mjög slæmur, plássleysi sé mikið og skortur sé á nauðsynlegri heilbrigðis- og félagslegri þjónustu. Þá sé aðgengi að atvinnu í Grikklandi takmarkað og mikið um fordóma í garð flóttamanna. Kærandi bendir á að íslensk stjórnvöld hafi ekki sent umsækjendur um alþjóðlega vernd til Grikklands síðan í október 2010 á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar og telur að heimildir beri með sér að staða einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi sé síður en svo betri en staða umsækjenda um alþjóðlega vernd þar í landi. Þá kveði kærandi að einstaklingar með alþjóðlega vernd, sem sendir séu aftur til Grikklands, eigi á hættu að dveljast á götunni án þjónustu. Kærandi fullyrðir að endursendingar einstaklinga sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi frá öðrum Evrópuríkjum hafi verið stöðvaðar og vísar því til stuðnings til dóms stjórnsýsludómstóls í Madgeburg í Þýskalandi.

Kröfu sína um efnismeðferð byggir kærandi í fyrsta lagi á því að ótækt sé að beita heimild a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga þar sem hann njóti verndar 1. mgr. 42. gr., sbr. 3. mgr. 36. gr. laganna. Kærandi bendi á að íslenska ríkið sé bundið af grundvallarreglunni um non-refoulement þar sem lagt sé bann við því að senda einstakling þangað sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu. Með 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga hafi verið áréttaður sá vilji löggjafans að við möguleg brot gegn grundvallarreglunni með endursendingu til annars Evrópuríkis skuli taka umsóknir um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar. Kærandi telji að túlkun íslenskra stjórnvalda á dómum Mannréttindadómstóls Evrópu sé röng og að með núverandi framkvæmd firri þau sig ábyrgð skv. framangreindri grundvallarreglu langt umfram efni. Kærandi bendir á nánar tilgreinda dóma Mannréttindadómstólsins, máli sínu til stuðnings, og telur að við endursendingu hans til Grikklands muni íslensk stjórnvöld gerast brotleg við grundvallarregluna um non-refoulement. Telur kærandi að við endursendingu til Grikklands muni lífsgæði hans ekki aðeins versna verulega heldur muni lífskjör hans ekki ná því lágmarki sem 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu kveði á um. Kærandi kveði að þörf hans fyrir mannúðarvernd hér á landi sé sérstaklega brýn og að fyrir hendi séu sannfærandi mannúðarástæður. Telji kærandi því að íslenskum stjórnvöldum sé skylt að taka mál hans til efnismeðferðar á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kröfu sína um efnismeðferð byggir kærandi í öðru lagi á því að uppi séu sérstakar ástæður í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og vísar í því sambandi til lagaáskilnaðarreglu 2. málsl. 2. mgr. 66. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 sem setji stjórnvöldum afar þröngar skorður við setningu stjórnvaldsfyrirmæla vegna meðferðar umsókna um alþjóðlega vernd. Kærandi telji að reglugerð nr. 276/2018, um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, brjóti gegn lögmætisreglunni. Þar sé að finna skilyrði vegna sérstakra ástæðna sem ekki hafi stoð í settum lögum og önnur sem beinlínis gangi gegn ákvæðum laga um útlendinga. Þá vísar kærandi til lögskýringargagna máli sínu til stuðnings og kveður að stjórnvöld hér á landi hafi við túlkun sína á hugtakinu sérstakar ástæður horft í of ríkum mæli til mannréttindasáttmála Evrópu og notað dómafordæmi alþjóðadómstóla til að skerða réttindi umsækjenda um alþjóðlega vernd. Í ljósi markmiðs laga um útlendinga, sbr. 4. mgr. 2. gr. laganna, um að tryggja beri mannúðlega meðferð stjórnvalda í málefnum útlendinga hér á landi, hafni kærandi því að við mat á sérstökum ástæðum hafi sjónarmið um skilvirkni umsóknarferilsins og mikilvægi samvinnu aðildarríkja Dyflinnarsamstarfsins nokkurt vægi. Þá bendi kærandi á að hvergi í lögskýringargögnum sé að finna kröfur um hátt alvarleikastig erfiðleika, alvarlega mismunun, verulegar og óafturkræfar neikvæðar afleiðingar á andlega eða líkamlega heilsu eða að meðferð sjúkdóms sé aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki. Þessar kröfur hafi enga stoð í lögum og gangi gegn lögmætisreglunni. Kærandi telur að alvarleg heilsufarsvandamál hans gefi til kynna að hann sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu. Áréttar kærandi að að mati sálfræðings sé hann mjög veikur en af gögnunum megi sjá að hann hafi tekið nauðsynlegri meðferð sinni hér á landi vel. Það sé því kæranda afar mikilvægt að ekki verði rof á þessari meðferð. Þá muni hann eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki, m.a. vegna þeirrar kerfislægu og alvarlegu mismununar sem þar þrífist gagnvart flóttafólki, og því sé íslenskum stjórnvöldum skylt að taka umsókn hans til efnislegrar meðferðar hér á landi.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 36. gr. er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd eða annars konar vernd í öðru ríki eða ef hann, eftir að hafa dvalist í ríki þar sem hann þurfti ekki að sæta ofsóknum, gat óskað eftir því að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og, ef hann var talinn flóttamaður, fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málsins er kærandi með alþjóðlega vernd í Grikklandi og hefur gilt dvalarleyfi þar í landi til 25. apríl 2021. Að mati kærunefndar felur sú vernd sem kærandi nýtur í Grikklandi í sér virka alþjóðlega vernd í skilningi a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi [...] einstæður karlmaður. Kærandi hefur m.a. greint frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að andleg heilsa hans hafi verið mjög slæm og þegar honum hafi liðið sem verst hafi hann skaðað sjálfan sig. Þá greindi kærandi frá því að hann hafi verið [...], en auk þess hafi hann fengið vægt hjartaáfall á táningsaldri.

Af framlögðum heilsufarsgögnum verður ráðið að kærandi hafi verið færður til bráðaþjónustu geðsviðs á Landspítala [...]. Var kærandi þar greindur með eftirstöðvar [...] og í geðlægðarlotu. Kærandi hafi þá leitað í tvígang aftur á bráðaþjónustu geðsviðs þar sem hann hafi m.a. verið metinn [...]. Hafi hann fengið meðferð við veikindum sínum, m.a. hafi honum verið ávísað viðeigandi lyfjum. Þá hafi kærandi neitað að hafa áform um sjálfsvíg og mat geðlæknir að engin geðrofseinkenni hafi komið fram hjá kæranda. Geðlæknir hafi þó talið rétt að reyna lyfjameðferð vegna kvíða og hugsanlegrar áfallastreituröskunar og hafi kæranda verið ávísað viðeigandi lyfjum vegna þess.

Í komunótum frá Göngudeild sóttvarna kemur m.a. fram að yfirlæknir Göngudeildar hafi [...] metið að kærandi væri ekki í bráðri sjálfsvígshættu. Þá kemur fram að kærandi hafi hitt sálfræðing á Göngudeild í tvígang, þann [...] þar sem hann hafi lýst andlegri vanlíðan sinni. Kærandi hafi þá fengið nýjan tíma hjá umræddum sálfræðingi [...]. Frekari upplýsingar um heilsufar kæranda hafa ekki verið lagðar fram.

Að mati kærunefndar er ljóst, m.a. með vísan til fyrirliggjandi heilsufarsgagna, að veikindi kæranda séu þess eðlis að hann hafi sérþarfir sem taka hefur þurft tillit til við meðferð málsins, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður í Grikklandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Grikklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • 2018 – Country Reports on Human Rights Practices – Greece (United States Department of State, 13. mars 2019);
  • Amnesty International Report 2017/18 – Greece (Amnesty International, 22. febrúar 2018);
  • Asylum Information Database, National Country Report: Greece (European Council on Refugees and Exiles, 29. mars 2019);
  • Commissioner for Human Rights: Report of the Commissioner for Human Rights of the Council of Europe, Dunja Mijatovic, following her visit to Greece from 25 to 29 June 2018 (Council of Europe, 6. nóvember 2018);
  • ECRI Report on Greece (fifth monitoring cycle) (European Commission against Racism and Intolerance, 24. febrúar 2015);
  • EU/Greece: Pressure to Minimize Number of Migrants Identified as ´vulnerable´ (Human Rights Watch, 1. júní 2017);
  • Freedom in the World 2018 – Greece (Freedom House, 1. ágúst 2018);
  • Greece as a Country of Asylum – UNHCR‘s Recommendations (UNHCR, 6. apríl 2015);
  • Migration Flows and Refugee Protection – Administrative challenges and human rights issues (The Greek Ombudsman, apríl 2017);
  • Petition to the European Parliament – Regarding degrading reception conditions and EU funding in Greece (Solidarity Now, mars 2017);
  • Reports of the Special Rapporteur on the human rights of migrants on his mission to Greece, (United Nations, General Assembly, 24. apríl 2017);
  • State of the World‘s Minorities and Indigenous Peoples 2016 – Greece (Minority Rights Group International, 12. júlí 2016);
  • UNHCR observations on the current asylum system in Greece (UNHCR, desember 2014);
  • Upplýsingar af vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal): https://e-justice.europa.eu, og
  • World Report 2019 – European Union (Human Rights Watch, 17. janúar 2019).

Af framangreindum gögnum má sjá að grísk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna þar í landi. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur m.a. bent á þau neikvæðu áhrif sem efnahagur Grikklands hefur haft á aðstæður einstaklinga sem hafa hlotið alþjóðlega vernd þar í landi og möguleika þeirra á að aðlagast grísku samfélagi. Að mati kærunefndar er ljóst af framangreindum gögnum að þeir einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi lifa oft á jaðri samfélagsins og búa í sumum tilvikum við félagslega einangrun. Einstaklingar með alþjóðlega vernd eiga hins vegar sama rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar og í dvalarleyfi þeirra felst jafnframt sjálfkrafa aðgangur að vinnumarkaði. Þá veita frjáls félagasamtök einstaklingum með alþjóðlega vernd aðstoð við að kynna sér réttindi sín í Grikklandi.

Einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi eiga rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu, þ. á m. nauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu og lyfjum. Samkvæmt þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Grikklandi hefur bág fjárhagsstaða gríska ríkisins haft mikil áhrif á heilbrigðiskerfi landsins og hefur kostnaðarþátttaka almennings aukist við kaup á lyfjum og þjónustu. Þannig geti verið vandkvæðum bundið að sækja sér heilbrigðisþjónustu í Grikklandi og þá sérstaklega sérhæfða heilbrigðisþjónustu, m.a. vegna skorts á fjármagni og starfsfólki. Á þetta jafnt við um alla borgara Grikklands, bæði gríska ríkisborgara og aðra sem hafa rétt til dvalar í ríkinu.

Sem fyrr segir eiga einstaklingar með alþjóðlega vernd sama rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar en aðgengi þeirra að húsnæði er háð sömu skilyrðum og takmörkunum og aðgengi annarra ríkisborgara þriðju ríkja með löglega dvöl í Grikklandi. Fá gistiskýli eru í boði fyrir heimilislausa auk þess sem ekkert húsnæði er til staðar sem einungis er ætlað einstaklingum með alþjóðlega vernd. Erfitt getur reynst að fá pláss í gistiskýlum þar sem aðsóknin er mikil og eru dæmi um að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafist við í yfirgefnum húsum við mjög bágar aðstæður. Á þetta einnig við um einstaklinga sem hafa verið sendir til Grikklands frá öðrum Evrópuríkjum.

Í framangreindum gögnum kemur fram að grísk yfirvöld veiti einstaklingum með alþjóðlega vernd sem búa undir fátæktarmörkum fjárhagsaðstoð í formi mánaðarlegra greiðslna. Einstaklingar sem hyggjast nýta sér úrræðið þurfa að uppfylla ýmis skilyrði og má sem dæmi nefna að þeir þurfa að hafa kennitölu, skattnúmer, gilt dvalarleyfi og bankareikning. Þá þurfa þeir m.a. að framvísa leigusamningi í þeim tilvikum þegar þeir búa í leiguhúsnæði og í tilviki heimilislausra einstaklinga þurfa þeir að framvísa vottorði um heimilisleysi frá gistiskýlinu eða sveitarfélaginu þar sem þeir búa. Þá kemur fram í fyrrnefndum gögnum að engin sérúrræði eru til staðar varðandi félagsþjónustu fyrir fólk í viðkvæmri stöðu, s.s. þolendur pyndinga.

Í framangreindri skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins kemur fram að dæmi séu um að flóttafólk sé beitt ofbeldi, þ. á m. af hendi grísku lögreglunnar. Þá kemur fram að þarlend lög og stjórnarskrá leggi bann við pyndingum og annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Enn fremur séu ofbeldisbrot rannsökuð af grísku lögreglunni en embætti umboðsmanns rannsaki meint brot lögreglu. Af framangreindri skýrslu verður ráðið að ýmsir annmarkar séu á dómskerfi landsins en sjálfstæði dómstóla sé tryggt í framkvæmd, svo og réttindi brotaþola og sakborninga. Þá kemur fram á vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal) að útlendingar í Grikklandi sem séu þolendur glæpa og tali hvorki né skilji grísku eigi rétt á túlkaþjónustu og upplýsingum um mál þeirra á tungumáli sem þeir skilji.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laganna kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun aðildarríkis um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið byggt á því að sú meðferð sem einstaklingur á von á við brottvísun eða frávísun verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til að ákvörðunin verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars. Við mat á umræddu alvarleikastigi hefur dómstólinn jafnframt litið til annarra þátta, t.d. hvort einstaklingurinn er í viðkvæmri stöðu, sbr. t.d. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Khlaifia o.fl. gegn Ítalíu (nr. 16483/12) frá 15. desember 2016.

Í ákvörðun í máli Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013 kemur m.a. fram að það eitt að efnahagsstaða einstaklings versni við brottvísun eða frávísun frá aðildarríki nái ekki alvarleikastigi 3. gr. mannréttindasáttmálans. Þá verði greinin ekki túlkuð þannig að í henni felist skylda aðildarríkja til að sjá einstaklingum sem njóta alþjóðlegrar verndar fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum. Dómstóllinn áréttaði jafnframt að einstaklingur sem stendur til að vísa brott geti ekki gert kröfu um áframhaldandi dvöl í ríki í því skyni að njóta þar heilbrigðis- eða félagsþjónustu. Veruleg skerðing lífsgæða sé ekki nægjanleg til að valda broti á 3. gr. mannréttindasáttmálans nema sérstaklega sannfærandi mannúðarástæður mæltu gegn endursendingu.

Með vísan til framangreinds tekur kærunefnd ekki undir þá málsástæðu kæranda að aðstæður hans í Grikklandi, að því leyti sem þær snúa að aðgangshindrunum að atvinnu- og húsnæðismarkaði, heilbrigðisþjónustu og félagslegri aðstoð, séu þess eðlis að flutningur hans til Grikklands myndi fela í sér brot á grundvallarreglu þjóðaréttar um non-refoulement. Með vísan til umfjöllunar um aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar í Grikklandi er það niðurstaða kærunefndar að synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi leiði ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þar sem kærandi nýtur alþjóðlegrar verndar í Grikklandi telur kærunefnd að tryggt sé að hann verði ekki sendur áfram til annars ríkis þar sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Áður hefur verið greint frá aðstæðum kæranda. Hefur kærandi m.a. borið fyrir sig að sérstakar ástæður eigi við í máli hans þar sem hann verði fyrir mismunun í Grikklandi og staða hans þar sé verulega síðri en almennings. Þá sé hann í viðkvæmri stöðu og skortur sé á viðhlítandi geðheilbrigðisþjónustu, og annarri félagslegri þjónustu, honum til handa í Grikklandi. Kærandi hafi þá einnig borið fyrir sig að hafa orðið fyrir árásum í Grikklandi og upplifi hann sig því ekki öruggan þar í landi.

Þrátt fyrir aðgangshindranir sem lýst hefur verið hér að framan hefur kærandi heimild til að stunda atvinnu í Grikklandi og á rétt á félagslegri aðstoð til jafns við gríska ríkisborgara. Samkvæmt framburði kæranda sjálfs naut hann félagslegar aðstoðar í Grikklandi í formi peningagreiðslna síðustu sex mánuðina áður en hann yfirgaf landið. Þá verður ráðið af framangreindum gögnum að kærandi geti leitað ásjár grískra yfirvalda, verði hann fyrir mismunun á grundvelli kynþáttar þar í landi. Má jafnframt ráða af fyrirliggjandi gögnum að óttist kærandi um öryggi sitt í Grikklandi geti hann leitað til lögreglu eða annarra þar til bærra stjórnvalda sökum þess. Að mati kærunefndar bera gögn málsins því ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að hann geti af sömu ástæðu vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga.

Svo sem áður hefur komið fram þá hefur kærandi glímt við andleg veikindi og m.a. leitað sér heilbrigðisþjónustu á geðsviði Landspítala. Þá hefur hann verið í lyfjameðferð vegna veikinda sinna. Af framburði kæranda svo og af gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Grikklandi, verður ráðið að kærandi eigi rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu, þ. á m. geðheilbrigðisþjónustu og nauðsynlegum lyfjum. Í ljósi fyrirliggjandi upplýsinga telur kærunefnd ekki forsendur til annars en að leggja til grundvallar við úrlausn málsins að kærandi geti fengið viðhlítandi aðstoð í Grikklandi vegna heilsufarsvandamála sinna. Því telur kærunefnd gögn málsins ekki benda til þess að kærandi glími við mikil og alvarleg veikindi sem meðferð er aðgengileg við hér á landi en ekki í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá er það mat nefndarinnar að ekki sé fyrir hendi ástæða í máli kæranda er varðar heilsufar hans sem sé svo einstaklingsbundin og sérstök að ekki verði framhjá henni litið, sbr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga.

Það er jafnframt mat kærunefndar að málsástæður kæranda að öðru leyti verði ekki taldar til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 28. febrúar 2019 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 19. desember 2018.

Athugasemdir kæranda við ákvörðun Útlendingastofnunar

Svo sem fram hefur komið gerir kærandi athugasemdir við trúverðugleikamat í hinni kærðu ákvörðun Útlendingastofnunar. Þá telur kærandi m.a. að reglugerð nr. 276/2018 eigi sér ekki lagastoð og gangi gegn lögmætisreglunni.

Tilvitnuð ákvæði reglugerðar nr. 276/2018 eru sett með stoð í 4. mgr. 36. gr. laga um útlendinga þar sem segir að ráðherra hafi heimild til að setja reglugerð um framkvæmd 36. gr. laganna. Löggjafinn hefur því framselt ráðherra vald til að útfæra framangreind ákvæði nánar og ljóst að reglugerðina skortir ekki lagastoð. Eins og að framan greinir hefur kærunefnd lagt einstaklingsbundið mat á umsókn kæranda og komist að niðurstöðu um að synja honum um efnismeðferð með vísan til ákvæða laga um útlendinga eins og þau hafa verið útfærð í reglugerð um útlendinga. Er niðurstaða í málinu byggð á túlkun kærunefndar á framangreindum ákvæðum og sjónarmiðum sem nefndin telur málefnaleg eins og að framan hefur verið lýst.

Kærunefnd hefur þá farið yfir hina kærðu ákvörðun og telur ekki tilefni til þess að gera athugasemdir við hana. Kærunefnd hefur endurskoðað alla þætti málsins og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun.

Frávísun

Kærandi kveðst hafa komið hingað til lands þann 18. desember 2018. Samkvæmt gögnum málsins sótti hann um alþjóðlega vernd þann 19. desember 2018. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn hans um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

Hjörtur Bragi Sverrisson

Árni Helgason                                               Þorbjörg Inga Jónsdóttir

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum