Hoppa yfir valmynd
25. janúar 2017 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 100/2016 Úrskurður 6. janúar 2017

Mál nr. 100/2016                   Millinafn:       Mordal

 


Hinn 6. janúar 2017 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 100/2016 en erindið barst nefndinni 19. desember 2016:

Millinafnið Mordal er dregið af íslenskum orðstofni, hefur ekki nefnifallsendingu og hefur hvorki unnið sér hefð sem eiginnafn kvenna né sem eiginnafn karla. Nafnið er ekki heldur ættarnafn í skilningi 7. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn. Millinafnið Mordal uppfyllir þannig ákvæði  6. gr. fyrrnefndra laga.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið Mordal er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum