Hoppa yfir valmynd
5. júlí 2016 Dómsmálaráðuneytið

Úrskurður nr. 249/2016

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 5. júlí 2016 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 249/2016

í stjórnsýslumáli nr. KNU16020021

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 16. febrúar 2016 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari [...] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 10. febrúar 2016, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um hæli á Íslandi og endursenda hann til Svíþjóðar.

Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka umsókn hans um hæli til efnislegrar meðferðar, sbr. 2. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga nr. 96/2002, sbr. 1. mgr. 17. gr. Dyflinnarreglugerðar.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 1. mgr. 30. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests, sbr. 3. mgr. 30. gr. sömu laga.

II. Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um hæli á Íslandi þann 24. nóvember 2015. Við leit að fingraförum kæranda í svokölluðum Eurodac gagnagrunni, þann sama dag, kom í ljós að fingraför hans höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Svíþjóð. Þann 9. desember 2015 var beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hans um hæli beint til yfirvalda í Svíþjóð, sbr. b-lið 1. mgr. 18. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Þann 11. desember 2015 barst svar frá sænskum yfirvöldum þess efnis að þau samþykktu viðtöku kæranda á grundvelli d-liðar 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Útlendingastofnun ákvað þann 10. febrúar 2016 að taka ekki umsókn kæranda um hæli hér á landi til efnismeðferðar og að hann skyldi endursendur til Svíþjóðar. Kærandi kærði ákvörðunina við birtingu þann 16. febrúar 2016 til kærunefndar útlendingamála auk þess að óska eftir frestun réttaráhrifa á hinni kærðu ákvörðun á meðan mál hans væri til meðferðar. Fallist var á frestun réttaráhrifa á meðan málið væri til kærumeðferðar með bréfi kærunefndar, dags. 19. febrúar 2016. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 4. mars 2016. Með bréfi kærunefndar, dags. 30. maí 2016, var kæranda boðið að koma í viðtal hjá kærunefnd, sbr. 5. mgr. 3. gr. b laga um útlendinga, en hann mætti ekki til viðtals.

Kæra þessi hefur hlotið hefðbundna málsmeðferð, gagnaöflun er lokið og er málið hér með tekið til úrskurðar.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar var sú að hælisumsókn kæranda yrði ekki tekin til efnismeðferðar hér á landi og hann skyldi endursendur til Svíþjóðar. Lagt var til grundvallar að Svíþjóð virði ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu og flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna, þar með talið bann við endursendingu til ríkis þar sem líf og frelsi kæranda kynni að vera í hættu (non-refoulement). Því fæli flutningur kæranda til Svíþjóðar ekki í sér brot gegn 1. mgr. 45. gr. laga um útlendinga. Þá var talið að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að ástæða væri til að beita ákvæði 2. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga. Aðstæður kæranda féllu ekki undir 16. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar og væru ekki slíkar að ástæða væri til að beita 1. mgr. 17. gr. reglugerðarinnar í málinu.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að kærandi vilji ekki fara aftur til Svíþjóðar af því að hann kveðst viss um að sænsk stjórnvöld muni senda hann til [...]. Hann hafi tvisvar sinnum sótt um hæli í Svíþjóð en fengið synjun í bæði skiptin.

Kærandi vísar til þess að fordæmalaus fjöldi hafi sótt um hæli í Svíþjóð og mikið álag sé á sænska hæliskerfinu, enda taki Svíþjóð hlutfallslega við flestum hælisleitendum af öllum Evrópuríkjum. Í nóvember sl. hafi verið tekið upp tímabundið eftirlit á landamærum landsins vegna hins mikla álags. Þá er einnig vísað til samþykktra tillagna framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins (ESB) um aðgerðir til að takast á við innstreymi flóttamanna til Evrópu. Í greinargerð kæranda kemur fram að sænsk stjórnvöld hafi lagt fram beiðni til framkvæmdastjórnar ESB um að önnur ríki sambandsins létti af þeim byrðum líkt og fallist hefur verið á í tilvikum Grikklands og Ítalíu. Þá er á því byggt að útlendingahatur hafi gert vart við sig í meira mæli en áður í Svíþjóð. Undanfarið hafi til að mynda verið kveikt ítrekað í húsnæði hælisleitenda víðs vegar um landið.

Kærandi byggir einnig á því að ekki þurfi að vera um kerfisbundinn galla að ræða í viðtökuríki til þess að unnt sé að koma í veg fyrir endursendingu hælisleitanda á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Kærandi vísar í niðurstöðu Hæstaréttar Bretlands frá 2014 og ályktar að ef um sé að ræða kerfisbundinn galla í hæliskerfi viðkomandi ríkis þá skuli hafa slíkt til hliðsjónar, en það geti ekki verið úrslitaatriði um endursendingu hælisleitenda.

Kærandi hafi tvisvar sinnum sótt um alþjóðlega vernd í Svíþjóð en verið hafnað í bæði skiptin, fyrst árið 2008 og síðan árið 2014. Kærandi kveðst vera [...]. Hann hafi flúið af ótta við að verða [...] vegna sambands hans við [...] stúlku. Fjölskylda stúlkunnar hafi verið valdamikil og haft ítök meðal yfirvalda á svæðinu. Fjölskyldan hafi verið [...]. Kærandi kvaðst ekki geta leitað verndar [...] eða [...] yfirvalda vegna þessa.

Í greinargerð kæranda er bent á að í niðurstöðum sænskra stjórnvalda og dómstóla komi hvergi fram umfjöllun um ástand eða stöðu mála í [...] og hvort og þá hvaða þýðingu uppruni kæranda hafi í málinu. Þá er í greinargerð kæranda vísað til skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um endursendingar til [...] frá október 2014. Þar komi fram að ástandið í [...] sé bæði hættulegt og óstöðugt. Stofnunin hafi mælst til þess að ríki sendi ekki einstaklinga frá [...] til baka nema að ástandið í landinu breytist umtalsvert og unnt verði að tryggja öryggi þeirra. Með endursendingu til Svíþjóðar taki íslensk stjórnvöld þannig ábyrgð á því að kæranda verði vísað aftur til [...]. Slík ákvörðun væri að mati kæranda ólögmæt með vísan í 45. gr. laga um útlendinga nr. 96/2002.

Að mati kæranda sé ljóst að ekki sé óhætt að senda hann til Svíþjóðar þar sem að sænsk stjórnvöld hafi ekki metið sjálfstætt þá hættu sem kæranda stafar af endursendingu til [...]. Hann sé búinn að fara með mál sitt í gegnum bæði stjórnsýslu- og dómskerfið í Svíþjóð. Tekið er fram í greinargerð kæranda að útlendingastofnun Svíþjóðar hafi lagt fyrir sænsku lögregluna að framkvæma flutning á kæranda til [...] og því sé ekki hægt að ætla að kærandi hljóti sanngjarna málsmeðferð í Svíþjóð.

Kærandi byggi á því að það sé óeðlilegt og ósanngjarnt að beita ákvæðum Dyflinnarreglugerðarinnar í máli hans með hliðsjón af framangreindu og senda kæranda til Svíþjóðar til þess að sækja um hæli í þriðja skiptið eða óska eftir endurupptöku á máli sínu.

Í greinargerð kæranda er vísað til d-liðar 1. mgr. og 2. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga og lögskýringagagna að baki þeim. Þá er vísað til þess að ákvæði 1. mgr. 46. gr. a kveði á um heimild til að synja um efnismeðferð en ekki skyldu og að ákvæði 2. mgr. ákvæðisins geri kröfu um að mat fari fram í hverju tilviki fyrir sig hvort sérstakar ástæður mæli með því að umsókn verði tekin til efnismeðferðar.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Afmörkun úrlausnarefnis

Fyrir liggur í máli þessu að sænsk stjórnvöld hafa samþykkt viðtöku á kæranda á grundvelli d-liðar 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar.

Úrlausnarefni kærumáls þessa er að skera úr um hvort Útlendingastofnun hafi tekið rétta ákvörðun þegar ákveðið var að taka ekki umsókn kæranda um hæli til efnismeðferðar og vísa honum til Svíþjóðar. Úrlausnarefni málsins er afmarkað við það hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn kæranda um alþjóðlega vernd og skuli taka hana til efnislegrar meðferðar.

Lagarammi

Í máli þessu gilda aðallega ákvæði laga um útlendinga nr. 96/2002, með síðari breytingum, ákvæði reglugerðar nr. 53/2003 um útlendinga, með áorðnum breytingum og ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Auk þess ber að taka mið af ákvæðum Dyflinnarreglugerðarinnar en Ísland skuldbatt sig til að fylgja henni með samningi Íslands, Noregs og Evrópusambandsins frá 19. janúar 2001, um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um hæli sem lögð er fram í aðildarríki eða á Íslandi eða í Noregi. Í III. kafla hennar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á hælisumsókn. Jafnframt ber að líta til annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Í d-lið 1. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga kemur fram að stjórnvöld geti, með fyrirvara um ákvæði 45. gr. laganna, synjað að taka til efnismeðferðar hælisumsókn ef krefja megi annað ríki sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar um að taka við umsækjanda (Dyflinnarmál). Þó kemur fram í 2. mgr. 46. gr. a sömu laga að ekki skuli endursenda flóttamann til annars ríkis hafi hann slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða sérstakar ástæður mæli annars með því. Samkvæmt 1. mgr. 45. gr. laga um útlendinga má einnig ekki senda útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir sem gætu leitt til þess að hann skuli teljast flóttamaður eða ef ekki er tryggt að hann verði ekki sendur til slíks svæðis. Samsvarandi verndar skal útlendingur njóta sem vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Við mat á því hvort beita skuli þessum ákvæðum í Dyflinnarmálum þarf einkum að kanna hvort aðstæður hælisleitenda í því ríki, sem endursenda á hælisleitanda til samkvæmt Dyflinnarreglugerðinni, kunni að brjóta gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Sé svo er óheimilt að senda hælisleitandann þangað og skal þá taka hælisumsókn viðkomandi til efnismeðferðar hér, sbr. einnig undanþágureglu 1. mgr. 17. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Eftir atvikum þarf enn fremur að skoða hvort slíkur ágalli sé á málsmeðferð þess ríkis, sem endursenda á til, að það brjóti í bága við 13. gr. mannréttindasáttmálans.

Aðstæður hælisleitenda í Svíþjóð

Samkvæmt framkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu í málum er varða Grikkland og Ítalíu getur sú staða komið upp að óheimilt sé að endursenda hælisleitendur til einstakra ríkja vegna ástands í viðkomandi móttökuríki. Aðildarríki mannréttindasáttmálans verða að vera meðvituð um alvarlega galla sem kunna að vera á meðferð hælisumsókna eða móttöku hælisleitenda í því aðildarríki sem endursenda skal til á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Verður því að skoða aðstæður hælisleitenda og málsmeðferð í Svíþjóð.

Kærunefnd útlendingamála hefur m.a. farið yfir eftirfarandi skýrslur og gögn um aðstæður og málsmeðferð í Svíþjóð:

  • Asylum Information Database, Country Report: Sweden (European Council on Refugees and Exiles, desember 2015);

  • Sweden 2015 Human Rights Report (United States Department of State, 13. apríl 2016);

  • Observations by the United Nations High Commissioner for Refugees Regional Representation for Northern Europe on the draft law proposal on restrictions of the possibility to obtain a residence permit in Sweden ("Begränsningar av möjligheten att få uppehållstillstånd i Sverige – utkast till lagrådsremiss") (UN High Commissioner for Refugees, 10. mars 2016);

  • Amnesty International Report 2015/16 - Sweden (Amnesty International, 24. febrúar 2016);

  • dómur Mannréttindadómstóls Evrópu í máli nr. 43611/11 F.G. gegn Svíþjóð, dags. 23. mars 2016;

  • upplýsingar og tölfræði af vefsíðu sænsku Útlendingastofnunarinnar (www.migrationsverket.se).

Athugun kærunefndar á aðstæðum hælisleitenda í Svíþjóð hefur ekki leitt í ljós gögn sem gefa tilefni til að líta svo á að aðstæður eða móttökuskilyrði hælisleitenda þar í landi séu þess eðlis að hætta sé á að endursending kæranda til Svíþjóðar brjóti í bága við 1. mgr. 45. gr. laga um útlendinga eða 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þá benda öll gögn til þess að kæranda séu tryggð úrræði til að leita réttar síns í Svíþjóð bæði fyrir landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Ennfremur er haft til hliðsjónar að Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur ekki lagst gegn endursendingu hælisleitenda til Svíþjóðar á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar.

Sérstök tengsl við landið eða aðrar sérstakar ástæður skv. 2. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga nr. 96/2002

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 28. janúar 2016 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga. Þá benda gögn ekki til þess að aðstæður hans séu að öðru leyti svo sérstakar að ákvæði 2. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga eigi við. Verður því ekki talið að ástæða sé til að taka mál kæranda til efnismeðferðar á grundvelli sérstakra tengsla við Ísland eða annarra sérstakra ástæðna, sbr. framangreint ákvæði.

Samantekt

Í máli þessu hafa sænsk stjórnvöld fallist á að taka við kæranda og umsókn hans um hæli á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls ofangreinds er fallist á að Útlendingastofnun hafi verið rétt að synja um efnismeðferð á umsókn kæranda um hæli hér á landi og ákveða að senda kæranda til Svíþjóðar með vísan til d-liðar 1. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga.

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið er það niðurstaða kærunefndar útlendingamála að staðfesta beri ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 33. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá því að beiðni um það er synjað. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því ákvörðun var tekin.

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Hjörtur Bragi Sverrisson, formaður

Pétur Dam Leifsson Anna Valbjörg Ólafsdóttir

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum