Hoppa yfir valmynd
1. júní 2022 Utanríkisráðuneytið

Úkraína: Rúmlega fimm milljónir barna þurfa mannúðaraðstoð

Ljósmynd: UNICEF - mynd

„Nú í vikunni eru þau sorglegu tímamót að 100 dagar eru liðnir frá því að stríðið í Úkraínu hófst,“ segir í frétt frá UNICE, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna. „Á þeim tíma hafa næstum tvö af hverjum þremur börnum landsins neyðst til að flýja heimili sín, að minnsta kosti 262 börn hafa verið drepin og yfir 400 særst alvarlega. Hundruð skóla og meira en 250 heilsugæslustöðvar hafa eyðilagst í árásunum.“ 

UNICEF áætlar að ríflega 5 milljónir barna þurfi nú á mannúðaraðstoð að halda, þar af þrjár milljónir barna innan Úkraínu. Samkvæmt tölum frá Mannréttindaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna (OHCHR) eru að meðaltali tvö börn drepin á hverjum degi í Úkraínu, aðallega vegna sprengjuárása á þéttbýliskjarna.  Aðstæður barna í austur- og suðurhluta Úkraínu þar sem bardagar hafa harðnað versna með hverjum deginum sem líður.  

Ítrekað ákall um vopnahlé 

„Þetta eru ömurleg tímamót. Hundrað dagar af stríði þar sem lífi milljóna barna hefur verið splundrað og heimili og skólar lagðir í rúst. Börn þurfa vopnahlé og frið og brýna aðstoð til að vinna úr áföllum sínum. Án tafarlauss vopnahlés munu börn frá Úkraínu halda áfram að þjást og afleiðingar stríðsins munu einnig halda áfram að hafa skelfilegar afleiðingar fyrir börn í neyð um allan heim,“ segir Steinunn Jakobsdóttir, kynningarstjóri UNICEF á Íslandi.   

UNICEF varar við þeim skelfilegu afleiðingum sem stríðið hefur á öryggi barna. Börn sem eru á flótta undan stríði eru í verulegri hættu á að verða viðskila við fjölskyldur sínar og eiga hættu á að verða fyrir ofbeldi, misnotkun og mansali. Flest barna á flótta hafa orðið fyrir djúpum áföllum og þurfa tafarlaust vernd, stöðugleika og sálrænan stuðning.  

UNICEF hefur um árabil verið á vettvangi í Úkraínu og veitt þar nauðsynlega mannúðaraðstoð í austurhluta landsins. UNICEF er nú á vettvangi í Úkraínu og nágrannaríkjum og vinnur nú ásamt samstarfsaðilum við að aðstoða börn og fjölskyldur þeirra að komast í öruggt skjól, tryggja aðgengi að hreinu vatni og hreinlætisaðstöðu, heilsugæslu, næringu, sálfræðiþjónustu, fjárhagsaðstoð og menntun.  

UNICEF ítrekar enn á ný ákall um tafarlaust vopnahlé í Úkraínu og krefst þess að virtar séu alþjóðlegar skuldbindingar um að vernda börn og tryggja að hjálparsamtök geti umsvifalaust fengið fullan aðgang að þeim svæðum þar sem börn eru í neyð og þurfa hjálp.  

Neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi í fullum gangi 

UNICEF á Íslandi hóf neyðarsöfnun fyrir börn frá Úkraínu í febrúar og hefur henni verið mjög vel tekið.  „Við erum full þakklætis yfir öllum þeim stuðningi sem almenningur og fyrirtæki á Íslandi hafa sýnt í verki síðustu 100 dagana. Það hafa verið fjölmargar skólasafnanir, styrktarsýningar og tónleikar, börn hafa haldið tombólu og selt listaverk fyrir jafnaldra sína í Úkraínu svo dæmi séu tekin. Þessi mikli stuðningur frá Íslandi hefur meðal annars nýst í að koma upp barnvænum svæðum þar sem börn og fjölskyldur þeirra á flótta fær aðstoð, nauðsynlega þjónustu og ráðgjöf,“ segir Steinunn.

Neyðarsöfnunin er enn í fullum gangi og hægt er að leggja henni lið hér.  

Myndin er af Sofiya og Liza sem flúðu stríðið ásamt kennurum sínum og komu til Búkarest til að finna öruggari stað til að búa á. Fjölskyldur þeirra eru enn í Odessa og þær bíða eftir að komast aftur til foreldra sinna um leið og óhætt verður að snúa heim. Nú ganga þær í skóla í Búkarest, þar sem úkraínskir kennarar hafa skipulagt námskeið og skólatíma fyrir börn á flótta frá Úkraínu.

Nánar á vef UNICEF

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

16. Friður og réttlæti
4. Menntun fyrir öll
3. Heilsa og vellíðan

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum