Hoppa yfir valmynd
28. september 2012 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 61/2012, úrskurður 28. september 2012

Mál nr. 61/2012                    Eiginnafn:     Katerína

 

Hinn 28. september kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 61/2012 en erindið barst nefndinni 26. september.

Eiginnafnið Katerína (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Katerínu og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Katerína (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum