Hoppa yfir valmynd
28. október 2015 Innviðaráðuneytið

Áætluð framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga árið 2016

Innanríkisráðherra hefur samþykkt eftirfarandi tillögur ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um áætlaðar úthlutanir framlaga á árinu 2016.

Framlög til jöfnunar á tekjutapi vegna fasteignaskatts 2016

Ráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar um áætlaða heildarúthlutun framlaga vegna lækkunar tekna af fasteignaskatti á árinu 2016, sbr. reglugerð, nr. 80/2001 með síðari breytingum. Á grundvelli frumvarps til fjárlaga fyrir árið 2016 nemur áætlað ráðstöfunarfjármagn sjóðsins til greiðslu framlaganna 3.812,7 m.kr. Jöfnunarsjóður greiðir sveitarfélögum framlög fyrirfram sem nema 60% af áætluðum framlögum ársins eða um 2.287,6 m.kr. Greiðslan er innt af hendi með fimm jöfnum greiðslum mánuðina febrúar til júní.

Uppgjör framlaganna á árinu 2016 fer fram mánuðina, júlí, ágúst og september á grundvelli upplýsinga frá Þjóðskrá Íslands um álagningarstofna fasteignaskatts frá 31. desember 2015, upplýsinga um álagningarhlutföll fasteignaskatts á árinu 2016 og upplýsinga um veitta afslætti sveitarfélaga af fasteignaskatti á árinu 2016.

Útgjaldajöfnunarframlög

Ráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar um áætlaða heildarúthlutun útgjaldajöfnunarframlaga á árinu 2016, sbr. 13. gr. reglugerðar, nr. 960/2010, að fjárhæð 6.625 m.kr.

Til úthlutunar nú koma 6.050 m.kr. samkvæmt A – hluta framlaganna og 575 m.kr. samkvæmt B – hluta framlaganna vegna skólaaksturs úr dreifbýli eða samtals 6.625 m.kr. Í desember koma til úthlutunar 175 m.kr. til viðbótar vegna skólaaksturs úr dreifbýli á grundvelli umsókna sveitarfélaga vegna íþyngjandi kostnaðar við aksturinn á árinu.

Áætlunin verður tekin til endurskoðunar í febrúar 2016 á grundvelli íbúafjölda 1. janúar 2016 og endanlegs álagningarstofns útsvars fyrir árið 2014.

Framlögin verða greidd til sveitarfélaga mánaðarlega en 10 prósentum er þó haldið eftir af áætluðum framlögum til að mæta því ef ráðstöfunarfjármagn sjóðsins verður minna eða útgjöld meiri en áætlað var. Uppgjör framlaganna fer fram í desember 2016.

Almenn jöfnunarframlög til reksturs grunnskóla

Ráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar um áætlaða heildarúthlutun almennra jöfnunarframlaga til reksturs grunnskóla á árinu 2016, sbr. 3. gr. reglugerðar nr. 351/2002, að fjárhæð samtals 6.767 m.kr. Þar af eru 60 m.kr. vegna áætlaðs uppgjörs framlaga ársins 2014.

Áætlunin verður tekin til endurskoðunar í febrúar 2016 á grundvelli íbúafjölda 1. janúar 2016, endanlegs álagningarstofns útsvars vegna ársins 2014 og endurskoðunar á áætluðum útsvarstekjum sveitarfélaga á árinu 2015.

Framlögin koma til greiðslu mánaðarlega og taka mið af innkomnum tekjum sjóðsins af 0,77% hlutdeild hans í staðgreiðsluskilum viðkomandi mánaðar.

Framlög vegna sérþarfa fatlaðra nemenda

Ráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar um áætlaða úthlutun framlaga vegna sérþarfa fatlaðra nemenda á árinu 2016, sbr. 4. gr. reglugerðar nr. 351/2002, að fjárhæð 1.908,6 m.kr. Þar af nemur framlag til Reykjavíkurborgar vegna reksturs sérskóla og sérdeilda 1.148,0 m.kr. Áætlunin verður tekin til endurskoðunar í febrúar 2016

Framlögin eru greidd mánaðarlega með jöfnum greiðslum.

Framlög vegna nýbúafræðslu

Ráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar um áætlaða úthlutun framlaga vegna sérstakrar íslenskukennslu nýbúa á árinu 2016, sbr. 5. gr. reglugerðar nr. 351/2002, að fjárhæð 256,9 m.kr. Áætlunin verður tekin til endurskoðunar í febrúar 2016.

Framlögin eru greidd mánaðarlega með jöfnum greiðslum.

Framlög vegna almennra og sérstakra húsaleigubóta


Beðið verður með birtingu á tillögum ráðgjafarnefndar um áætluð framlög vegna almennra og sérstakra húsaleigubóta á árinu 2016 þar sem breytingar kunna að verða um áramótin á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga hvað bæturnar varðar.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum