Hoppa yfir valmynd
22. janúar 2020 Utanríkisráðuneytið

Aukinn ójöfnuður víðast hvar í heiminum

Fátækrahverfi í Kampala, Úganda. Ljósmynd: gunnisal - mynd

Ójöfnuður fer vaxandi í samfélögum rúmlega 70% jarðarbúa. Sameinuðu þjóðirnar segja í nýrri skýrslu að ójöfnuður geti kynt undir ósætti og hann hamli efnahagslegri og félagslegri þróun. „Ójöfnuður er hins vegar langt því frá óhjákvæmilegur og hægt er að takast á við hann á landsvísu og á alþjóðavettvangi,“ segir í skýrslunni: The World Social Report 2020 frá efnahags- og félagsmálastofnun Sameinuðu þjóðanna (UN DESA).

Skýrslan sýnir að tekjuójöfnuður hefur aukist í flestum þróuðum ríkjum og nokkrum meðaltekjuríkjum, meðal annars í Kína, sem er það hagkerfi sem vex hraðast.

Undirliggjandi rannsóknir skýrslunnar sýna að auðugasta fólkið í heiminum, eitt prósent jarðarbúa, telst vera stóru sigurvegararnir í breyttu hagkerfi heimsins. Hlutdeild þess í tekjum jókst á tímabilinu frá 1990 til 2015 á sama tíma og 40 prósent fátækasta fólksins tóká sig tekjuskerðingu.

 

Í skýrslunni segir að ein af afleiðingum ójöfnuðar innan samfélaga sé hægari hagvöxtur. „Í samfélögum ójöfnuðar þar sem mikill munur er til dæmis á menntun og heilbrigðisþjónustu er mikil hætta á áð fólk festist í fátækt kynslóð fram af kynslóð,“ segir í skýrslunni. Þar kemur enn fremur fram að munurinn á meðaltekjum milli þjóða fari minnkandi en engu að síður sé himinn og haf á milli ríkustu og fátækustu heimshlutanna. Þannig séu til dæmis meðaltekjur í Norður-Ameríku sextán sinnum hærri en íbúa í sunnanverðri Afríku. Þá kemur fram í skýrslunni að hagvöxtur sé mestur í Kina og í öðrum ríkjum Asíu.

Í annarri skýrslu frá Sameinuðu þjóðunum, frá skrifstofu um ástand og horfur í efnahagsmálum (WESP), segir að hagvöxtur í heiminum hafði aðeins verið 2,3 prósent á nýliðnu ári, sá minnsti í áratug.

„Áframhaldandi þróttleysi í efnahagsmálum í heiminum gætu haft alvarlegar afleiðingar fyrir sjálfbæra þróun, þar á meðal heimsmarkmiðin og stefnumið um að uppræta fátækt og skapa sómasamleg störf fyrir alla. Á sama tíma er ójöfnuður víðast hvar og loftslagsbreytingar olía á eld óóánægju í mörgum heimshlutum,“ segir í skýrslunni.

Skýrsla DESA

Skýrsla WESP

Frétt UNRIC

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

10. Aukinn jöfnuður
17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum