Hoppa yfir valmynd
1. september 2022 Utanríkisráðuneytið

Þrjár milljónir barna í neyð vegna hamfaraflóða í Pakistan

Ljósmynd: UNICEF - mynd

Rúmlega þrjár milljónir barna þurfa mannúðaraðstoð og eru í aukinni hættu vegna vatnsborinna sjúkdóma, vannæringar og drukknunar í hamfaraflóðunum í Pakistan. UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, vinnur með stjórnvöldum og samstarfsaðilum við að bregðast við nauðsynlegum þörfum barna og fjölskyldna þeirra á hamfarasvæðum.

Samkvæmt frétt frá UNICEF hafa 33 milljónir íbúa Pakistan, þar af 16 milljónir barna, orðið fyrir áhrifum gríðarþungra monsúnrigninga í ár sem fylgt hafa hamfaraflóð og skriðuföll. Rúmlega 1.100 manns, þar af yfir 350 börn, hafa látið lífið og vel á annað þúsund manns slasast. Hátt í 300 þúsund heimili eru gjöreyðilögð og hátt í 700 þúsund heimili hafa skemmst. Stórfljót hafa flætt yfir bakka sína, stíflur sömuleiðis og heimili, sveitabæir og innviðir á borð við vegi, brýr, skóla, sjúkrahús og heilsugæslur hafa orðið fyrir skemmdum.

„Þegar hörmungar sem þessar gerast eru það alltaf börnin sem eru verða verst úti,“ segir Abdullah Fadil, fulltrúi UNICEF í Pakistan. „Þessi hamfaraflóð hafa haft skelfilegar afleiðingar fyrir börn og fjölskyldur þeirra.“

„Til að útskýra hversu mikil rigning hefur fylgt monsúntímabilinu nú þá er hún þrefalt meiri en 30 ára meðaltal á landsvísu og rúmlega fimmfalt yfir 30 ára meðaltali í ákveðnum héruðum. Líkt og greint hefur verið frá í fréttum hafa stjórnvöld í Pakistan lýst yfir neyðarástandi,“ segir í frétt UNICEF.         

UNICEF er á vettvangi
Fjáröflunarákall UNICEF, sem hluti af neyðarákalli Sameinuðu þjóðanna vegna ástandsins, hljóðar upp á 37 milljónir Bandaríkjadala til að ná til barna og fjölskyldna þeirra á næstu mánuðum með sjúkragögn, nauðsynleg lyf, bóluefni, mæðraverndarpakka, hreint og öruggt drykkjarvatn, hreinlætisbúnað og næringarfæði, auk þess sem komið verður upp tímabundnum skólastofum og námsgögn útveguð.

Samkvæmt loftslagsáhættumati UNICEF (Children‘s Climate Risk Index (CCRI)), er Pakistan viðkvæmt svæði þar sem börn eru álitin í gríðarmikilli áhættu vegna áhrifa loftslagsbreytinga. Pakistan er í 14. sæti af 163 löndum á áhættumatslista stofnunarinnar.  

Stuðningur Heimsforeldra skiptir sköpum í veita UNICEF svigrúm til að bregðast skjótt við neyðarástandi sem þessu um allan heim. 

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

13. Aðgerðir í loftslagsmálum
3. Heilsa og vellíðan

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum