Hoppa yfir valmynd
16. desember 2021 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 661/2021 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Þann 16. desember 2021 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 661/2021

í stjórnsýslumáli nr. KNU21110027

 

Beiðni [...] um endurupptöku

 

I.       Málsatvik

Þann 29. apríl 2021 staðfesti kærunefnd útlendingamála ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 26. janúar 2021, um að taka umsókn einstaklings er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari Palestínu (hér eftir kærandi), um alþjóðlega vernd á Íslandi ekki til efnismeðferðar og endursenda hann til Grikklands. Niðurstaða kærunefndar var birt kæranda þann 3. maí 2021.

Þann 5. nóvember 2021 barst kærunefnd beiðni kæranda um endurupptöku. Dagana 8. og 24. nóvember 2021 bárust upplýsingar frá stoðdeild ríkislögreglustjóra og Útlendingastofnun um málsmeðferð í máli kæranda.

Beiðni kæranda um endurupptöku máls hans byggir á 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

II.        Málsástæður og rök kæranda

Kærandi vísar til þess að hann hafi lagt fram umsókn um alþjóðlega vernd þann 24. október 2020 og byggir beiðni um endurupptöku á því að þar sem 12 mánuðir séu nú liðnir frá umsókn hans og tafir á meðferð málsins séu ekki á hans ábyrgð skuli taka umsókn hans um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Í greinargerð er þá vísað til þess að kærandi hafi búið í búsetuúrræði Útlendingastofnunar. Þann 8. júlí 2021 hafi hann tilkynnt stofnuninni að hann væri að flytja til íslenskrar eiginkonu sinnar. Kærandi vísar til hjúskaparvottorðs, dags. 14. maí 2021, um hjónaband kæranda og eiginkonu hans. Kærandi hafi upplýst lögreglu um hjúskap sinn sem hafi í kjölfarið fellt niður fyrirhugaðan flutning hans frá landinu. Kærandi vísar til þess að hann beri enga ábyrgð á þeim takmörkunum og þeirri óvissu sem Covid-19 faraldurinn hefur valdið. Til hafi staðið að flytja kæranda til Grikklands að undangenginni líkamsrannsókn. Eðli málsins samkvæmt þurfi ríkar kröfur að gera til nauðsynja og lögmætis líkamsrannsókna en strangt bann sé lagt við þeim í 2. mgr. 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 nema liggi fyrir dómsúrskurður eða sérstök lagaheimild. Ljóst sé að engin sérstök lagaheimild var eða er til staðar til að framkvæma þessar líkamsrannsóknir. Kærandi telur að stjórnvöld hafi ekki fullnýtt þá möguleika sem þau hafi og bar skylda til að beita til að þvinga kæranda til að undirgangast líkamsrannsókn. Þá hafi honum ekki verið veitt tækifæri til sjálfviljugrar brottfarar en kæranda hafi jafnframt ekki borið skylda til að vinna með íslenskum stjórnvöldum við flutning til ríkis þar sem hann telji líf sitt vera í hættu. Með vísan til framangreinds er gerð sú krafa að mál hans verði endurupptekið og Útlendingastofnun verði gert að taka umsókn hans um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar.

III.       Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 24. gr. stjórnsýslulaga á aðili máls rétt á því að mál sé tekið upp á ný ef ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin.

Í 1. mgr. 40. gr. laga um útlendinga kemur fram að flóttamaður skv. 37. gr. laganna, sem er hér á landi eða kemur hér að landi, hafi samkvæmt umsókn rétt á að fá hér alþjóðlega vernd. Stjórnvöldum sé þó heimilt, á grundvelli a-, b- og c-liðar 1. mgr. 36. gr. laganna, að taka umsókn ekki til efnismeðferðar við þær aðstæður sem tilgreindar séu í umræddum stafliðum.

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar séu ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skuli taka hana til efnismeðferðar.

Af orðalagi 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga leiðir að umrætt 12 mánaða tímabil hefst þegar umsækjandi leggur fyrst fram umsókn um alþjóðlega vernd hjá stjórnvöldum. Þá hefur í úrskurðum kærunefndar verið lagt til grundvallar að tímabilinu ljúki þegar endanleg niðurstaða stjórnvalda er framkvæmd með flutningi umsækjanda til viðtökuríkis eða þegar kærandi fer úr landi sjálfviljugur eftir að ákvörðun í máli hans hefur verið tekin.

Kærunefnd telur að túlka beri 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga á þann hátt að þótt 12 mánaða fresturinn sé liðinn verði umsókn ekki tekin til efnismeðferðar af þeim sökum ef tafir á málsmeðferð eða flutningi verði fyrst og fremst raktar til athafna eða athafnaleysis umsækjanda sem hann ber sjálfur ábyrgð á, nema þær tafir hafi verið óverulegar og ljóst er að hægt hefði verið að flytja kæranda áður en 12 mánaða fresturinn var liðinn.

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 24. október 2020 og rann því umræddur 12 mánaða frestur út á miðnætti þann 24. október 2021. Kemur því til skoðunar hvort tafir á afgreiðslu umsóknar kæranda séu á ábyrgð hans sjálfs, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Í upplýsingum sem kærunefnd bárust frá Útlendingastofnun, dags. 8. nóvember 2021, varðandi fyrirspurn um tafir á málsmeðferð og flutning kæranda, kemur fram að samkvæmt skráningum stofnunarinnar sé ekkert sem bendi til þess að kærandi hafi tafið mál sitt. Það sé því mat hennar að kærandi hafi ekki tafið mál sitt. Í upplýsingum sem bárust frá stoðdeild ríkislögreglustjóra, dags. 24. nóvember 2021, kemur fram að verkbeiðni hafi borist stoðdeild þann 11. maí 2021 og að þann 13. júní 2021 hafi verið haft samband við kæranda og hann beðinn um að mæta á fund stoðdeildar þann 14. júní 2021. Kærandi hafi mætt í viðtal hjá stoðdeild og honum tilkynnt um fyrirhugaðan flutning til Grikklands. Kærandi hafi greint frá því að þar sem hann væri giftur íslenskum ríkisborgara þá ætlaði hann ekki að fara til Grikklands og lagði fram hjúskaparvottorð því til stuðnings. Stoðdeild hafi leiðbeint kæranda um að leggja fram umsókn um dvalarleyfi á grundvelli hjúskapar hjá Útlendingastofnun. Af svari stoðdeildar má ráða að ekki hafi verið gerðar frekari tilraunir af hennar hálfu við að undirbúa flutning á kæranda og framkvæmdin því ómarkviss af hálfu stoðdeildar.

Samkvæmt framangreindum upplýsingum frá stoðdeild ríkislögreglustjóra og Útlendingastofnun ber kærandi ekki ábyrgð á þeim töfum sem hafa orðið á málsmeðferð og flutningi hans. Að auki hefur kærunefnd farið yfir málsmeðferð í máli kæranda og er að mati kærunefndar ekkert sem bendir til þess að kærandi verði talinn bera ábyrgð á töfum á afgreiðslu umsóknar sinnar, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Í ljósi framangreinds og samfelldrar dvalar kæranda hér á landi síðan hann lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd þann 24. október 2020, er fallist á að atvik hafi breyst verulega í máli kæranda á þann hátt að hann eigi rétt á endurupptöku á máli sínu, sbr. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga. Það er jafnframt niðurstaða kærunefndar að fella ákvörðun Útlendingastofnunar úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

 

Úrskurðarorð:

 

Fallist er á beiðni kæranda um endurupptöku á máli hans.

Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi og lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til efnismeðferðar.

 

The appellant‘s request for re-examination of the case is granted.

The decision of the Directorate of Immigration is vacated. The Directorate shall examine the merits of the appellant‘s application for international protection in Iceland.

 

Tómas Hrafn Sveinsson

 

Sandra Hlíf Ocares                                                      Bjarnveig Eiríksdóttir


 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum