Hoppa yfir valmynd
24. febrúar 2022 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 69/2022 Úrskurður

 KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 24. febrúar 2022 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 69/2022

í stjórnsýslumáli nr. KNU21120063

 

Kæra [...]

og barns hennar

á ákvörðunum

Útlendingastofnunar

 

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 30. desember 2021 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fædd [...] og vera ríkisborgari Palestínu (hér eftir kærandi), ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 14. desember 2021, um að taka ekki til efnismeðferðar umsóknir kæranda og barns hennar, [...], fd. [...], ríkisborgara Palestínu (hér eftir A), um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa þeim frá landinu.

Þess er krafist að hinar kærðu ákvarðanir verði felldar úr gildi og að lagt verði fyrir Útlendingastofnun að taka umsóknir kæranda og barns hennar um alþjóðlega vernd á Íslandi til efnismeðferðar, aðallega á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sbr. 1. mgr. 42. gr. sömu laga en til vara á grundvelli 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og 32. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 276/2018 um breytingu á reglugerð nr. 540/2017. Til þrautavara er þess krafist að hinar kærðu ákvarðanir verði felldar úr gildi og að lagt verði fyrir Útlendingastofnun að taka umsóknir kæranda og barns hennar um alþjóðlega vernd á Íslandi til meðferðar á ný á grundvelli 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreindar ákvarðanir eru kærðar á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og bárust kærurnar fyrir lok kærufrests.

II.        Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi hinn 9. ágúst 2021. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum hinn 19. ágúst 2021 kom í ljós að fingraför hennar höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Grikklandi og að henni hefði verið veitt alþjóðleg vernd þar í landi hinn 1. apríl 2020. Með umsókn framvísaði kærandi grísku dvalarleyfisskírteini með gildistíma frá 31. júlí 2020 til 30. júlí 2023 og flóttamannavegabréfi gefnu út af grískum stjórnvöldum með gildistíma til 22. mars 2026 og f.h. A með gildistíma til 22. mars 2024. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun, m.a. hinn 22. september 2021, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað hinn 14. desember 2021 að taka ekki umsóknir kæranda og barns hennar um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að þeim skyldi vísað frá landinu. Ákvarðanirnar voru birtar fyrir kæranda hinn 16. desember 2021 og kærði hún ákvarðanirnar hinn 30. desember 2021 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd hinn 13. janúar 2022, ásamt fylgigögnum. Þá bárust frekari gögn hinn 8. febrúar 2022.

III.       Ákvarðanir Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kæranda hafi verið veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi. Umsókn hennar um alþjóðlega vernd yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda og barns hennar til Grikklands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá taldi Útlendingastofnun að kærandi og barn hennar hefðu ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að þær fengju hér vernd eða að sérstakar ástæður mæltu annars með því að taka bæri umsóknir kæranda og barns hennar til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda og barni hennar var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldu þau flutt til Grikklands.

Í ákvörðun Útlendingastofnunar í máli barnsins A kom fram að það væri niðurstaða stofnunarinnar, með vísan til niðurstöðu í máli móður hennar, að gættum ákvæðum samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, laga um útlendinga og barnaverndarlaga nr. 80/2002, að henni væri ekki stefnt í hættu með því að fylgja móður sinni til Grikklands.

IV.       Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda vísar hún til greinargerðar sinnar til Útlendingastofnunar hvað málavexti varðar. Þar kemur m.a. fram að aðstæður hennar í Grikklandi hafi verið slæmar og þær hafi versnað til muna í kjölfar þess að þeim hafi verið veitt alþjóðleg vernd þar í landi. Kærandi hafi greint frá því að ómögulegt hafi verið að uppfylla skilyrði fyrir því að fá aðstoð HELIOS auk þess sem hún hafi hvorki verið með skattnúmer né verið fær um að vinna þar sem hún hafi þurft að annast dóttur sína. Kærandi hafi greint frá því að stjórnvöld hafi ekki veitt henni neina félagslega aðstoð í Grikklandi. Kærandi hafi þurft að þiggja matargjafir frá hjálparsamtökum auk þess sem aðgangur að heilbrigðisþjónustu hafi verið takmarkaður. Kærandi hafi ekki búið við öryggi og hún upplifað fordóma.

Kærandi gerir athugasemd við það að ekki sé að finna heildstætt mat á einstaklingsbundnum aðstæðum hennar og A í ákvörðunum Útlendingastofnunar. Þá hafi ekki verið lagt mat á trúverðugleika frásagnar kæranda eða tekin afstaða til trúverðugleika hennar. Þá gerir kærandi einnig athugasemd við umfjöllun Útlendingastofnunar um þá heilbrigðis- og félagsþjónustu, atvinnumöguleika og húsnæði sem henni standi til boða í Grikklandi. Þá sé enga umfjöllun að finna um barnaverndarkerfið í Grikklandi. Kærandi vísar til þess að heimildir beri með sér að þeir sem hafi hlotið alþjóðlega vernd í Grikklandi verði fyrir alvarlegri mismunun af hálfu grískra stjórnvalda og séu á margvíslegan hátt útilokaðir frá nauðsynlegri skráningu í Grikklandi. Þá gerir kærandi athugasemd við það mat Útlendingastofnunar að henni standi raunhæf úrræði til boða vegna kynþáttafordóma og mismununar. Kærandi vísar í greinargerð sinni til fjölmargra heimilda sem hún telur að gefi til kynna að raunveruleg staða flóttafólks í Grikklandi sé önnur en Útlendingastofnun leggi til grundvallar í máli hennar. Þær heimildir sem kærandi hafi vísað til hafi aðra sögu að segja og vísar kærandi m.a. til ýmissa skýrslna máli sínu til stuðnings auk ummæla mannréttindafulltrúa Evrópuráðsins. Jafnframt telur kærandi túlkun Útlendingastofnunar á barnaverndarlögum og barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna vera ranga auk þess sem hún telur að nálgun stofnunarinnar á hagsmunamati barnsins vera rangt. Kærandi vísar til þess að endursending þeirra til Grikklands sé A augljóslega ekki fyrir bestu. Kærandi gerir þá athugasemd við skort á umfjöllun Útlendingastofnunar í hinni kærðu ákvörðun um stöðu kvenna í Grikklandi. Kærandi telur að miklar líkur séu á að hún og A verði fyrir ofbeldi í Grikklandi vegna kyns þeirra og stöðu þeirra sem flóttakvenna. Þá vísar kærandi til úrskurðar kærunefndar í máli nr. KNU21060020 frá 7. október 2021 og telur að Útlendingastofnun hafi ekki rökstutt nægilega í ákvörðun sinni hvers vegna málin séu ekki sambærileg. Kærandi vísar til þess að hún sé þolandi heimilisofbeldis og hafi þurft að flýja heimili sitt og leita skjóls í Kvennaathvarfinu. Kærandi telur að staða mæðgnanna sé sambærileg stöðu kæranda í framangreindum úrskurði hvað varðar heilsufar og þörf fyrir stuðning. Kærandi vísar til þess að heimildum beri saman um að erlendum konum skorti upplýsingar um rétt sinn hér á landi auk þess sem yfirgnæfandi líkur séu á að þær kæri ekki ofbeldismenn sína. Þá séu þær berskjaldaðar, félagslega einangraðar, með veikt bakland og takmarkaða tungumálakunnáttu. Kærandi vísar til jafnræðisreglu stjórnsýsluréttarins og telur að leggja beri framangreindan úrskurð kærunefndar til grundvallar ákvarðanatöku í málinu.

Kærandi gerir þá athugasemd við túlkun og umfjöllun Útlendingastofnunar á grundvallarreglunni um bann við endursendingu (non-refoulement). Kærandi er ósammála mati stofnunarinnar og vísar til þess að íslensk stjórnvöld hafi ekki sent umsækjendur um alþjóðlega vernd til Grikklands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar frá því í október 2010. Jafnframt gerir kærandi athugasemd við það að ekki sé að finna umfjöllun um dóm Mannréttindadómstóls Evrópu frá 2011 í máli M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi auk þess sem ekki sé að finna umfjöllun um það hvers vegna stofnunin telji dóminn ekki hafa þýðingu við ákvarðanatöku í málinu. Þá vísar kærandi jafnframt til dóms Mannréttindadómstóls Evrópu í máli N.H. og fl. gegn Frakklandi. Kærandi telur í ljósi frásagnar sinnar af aðstæðum sínum í Grikklandi og fjölmargra heimilda sem beri saman um óviðunandi aðstæður flóttafólks í Grikklandi, að endursending kæranda og A til Grikklands feli í sér verulega hættu á því að þær verði fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð og því skuli umsóknir þeirra teknar til efnismeðferðar.

Til vara krefst kærandi þess að málin verði tekin til efnismeðferðar vegna sérstakra ástæðna, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga séu sett fram almenn viðmið sem taka skuli tillit til við mat á því hvort taka megi umsókn til efnismeðferðar hér á landi á grundvelli sérstakra ástæðna. Kærandi andmælir mati Útlendingastofnunar á því að ekki séu uppi sérstakar ástæður í málinu. Kærandi sem sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu muni sæta hindrunum við aðgang að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, félagsþjónustu, barnavernd, húsnæði, atvinnuþátttöku og menntun á grundvelli kynþáttar og kyns auk þess sem þær megi vænta þess að staða þeirra verði verulega síðri en staða almennings í Grikklandi. Kærandi telur því að hún uppfylli þau skilyrði sem sett séu fram í framangreindri reglugerð. Þá vísar kærandi jafnframt til þess að staða flóttafólks í Grikklandi sé erfiðari en áður vegna áhrifa Covid-19 faraldursins.

Til þrautavara krefst kærandi þess að hinar kærðu ákvarðanir verði felldar úr gildi og að lagt verði fyrir Útlendingastofnun að taka umsóknir kæranda og barns hennar til meðferðar á ný á grundvelli 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga. Kærandi telur að ákvarðanir Útlendingastofnunar séu haldnar svo alvarlegum ágöllum líkt og að framan greinir og að ekki verði komist hjá því að fella þær úr gildi og fela stofnuninni að taka mál þeirra til nýrrar meðferðar. Kærandi telur að mat Útlendingastofnunar á raunverulegri stöðu mæðgnanna sé byggt á ónægum og ófullnægjandi upplýsingum auk þess sem ekki hafi farið fram einstaklingsbundið mat á stöðu kæranda og A.

Þá gerir kærandi kröfu um að kærunefnd hlutist til um að mat verði framkvæmt á andlegu heilsufari hennar en slíkt kunni að hafa þýðingu þegar tekin sé ákvörðun um það hvort sérstakar ástæður mæli með því að umsókn sé tekin til efnismeðferðar samkvæmt 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

V.        Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Réttarstaða barns kæranda

Í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga segir að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með það sem því sé fyrir bestu að leiðarljósi, því tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í málum sem það varði og að tekið sé tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við ákvörðun sem sé háð mati stjórnvalds skuli huga að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska og möguleika þess til að sameinast fjölskyldu sinni. Í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra skal það almennt viðurkennt að hagsmunum barns sé best borgið með því að tryggja fjölskylduna sem heild og rétt hennar til að vera saman.

Kærunefnd hefur farið yfir gögn málanna þ. á m. viðtal við kæranda hjá Útlendingastofnun og læknisfræðileg gögn þar sem m.a. kemur fram að A eigi í nánum tengslum við móður sína. Það er því mat nefndarinnar að ekkert í gögnum málsins bendi til annars en að hagsmunum A sé best borgið með því að tryggja rétt fjölskyldunnar til að vera saman og að réttarstaða A verði ákvörðuð í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar. Barnið A er í fylgd móður sinnar og verður því tekin afstaða til mála fjölskyldunnar í einum úrskurði.

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 36. gr. er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd eða annars konar vernd í öðru ríki eða ef hann, eftir að hafa dvalist í ríki þar sem hann þurfti ekki að sæta ofsóknum, gat óskað eftir því að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og, ef hann var talinn flóttamaður, fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna.

Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málanna var kæranda veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi hinn 1. apríl 2020 og hefur hún gilt dvalarleyfi þar í landi til 30. júlí 2023. Þá hefur kærandi framvísað grísku flóttamannavegabréfi f.h. A með gildistíma til 22. mars 2024. Að mati kærunefndar telst sú vernd sem kærandi og barn hennar njóta í Grikklandi virk alþjóðleg vernd í skilningi a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður í Grikklandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Grikklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • 2020 – Country Reports on Human Rights Practices – Greece (United States Department of State, 30. mars 2021);
  • Annual report 2019 – Executive Summary (The Greek Ombudsman Independent Authority, 31. desember 2019);
  • Amnesty International Report 2020/21 – Greece (Amnesty International, 7. apríl 2021);
  • Asylum Information Database, Country Report: Greece (European Council on Refugees and Exiles, 10. júní 2021);
  • Beneficiaries of international protection in Greece – Access to documents and socio-economic rights (Refugee Support Aegean, 22. mars 2021);
  • Commissioner for Human Rights: Report of the Commissioner for Human Rights of the Council of Europe, Dunja Mijatovic, following her visit to Greece from 25 to 29 June 2018 (Council of Europe, 6. nóvember 2018);
  • EU/Greece: Pressure to Minimize Number of Migrants Identified as ´vulnerable´ (Human Rights Watch, 1. júní 2017);
  • Excluded and segregated – The vanishing education of refugee children in Greece (Refugee Support Aegean, 13. apríl 2021);

  • Freedom in the World 2020 – Greece (Freedom House, 5. júní 2020);
  • Greece as a Country of Asylum – UNHCR‘s Recommendations (UNHCR, 6. apríl 2015);
  • Growing up in lockdown: Europe´s children in the age of Covid-19 – Eurochild report (Eurochild, nóvember 2020);
  • Migration Flows and Refugee Protection – Administrative challenges and human rights issues (The Greek Ombudsman, apríl 2017);
  • Petition to the European Parliament – Regarding degrading reception conditions and EU funding in Greece (Solidarity Now, mars 2017);
  • Report on the Living Conditions of Beneficiaries of International Protection in Greece (Passerell, nóvember 2020);
  • Reports of the Special Rapporteur on the human rights of migrants on his mission to Greece, (United Nations, General Assembly, 24. apríl 2017);

  • State of the World‘s Minorities and Indigenous Peoples 2016 – Greece (Minority Rights Group International, 12. júlí 2016);
  • Upplýsingar af vefsíðu Doctors of the World (https://mdmgreece.gr/);
  • Upplýsingasíða Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (https://help.unhcr.org/greece/living-in-greece/access-to-education/, sótt 4. nóvember 2021);
  • Upplýsingar af vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal): https://e-justice.europa.eu;
  • Upplýsingar af vefsíðu Eurochild (http://eurochild.org);
  • Upplýsingar af vefsíðu Unicef (http://unicef.org);
  • Upplýsingasíða Refugee Info Greece (http://refugee.info/greece/, sótt 17. febrúar 2022);
  • Upplýsingasíða Johns Hopkins háskólans (https://coronavirus.jhu.edu/map.html, sótt 17. febrúar 2022);
  • Upplýsingasíða Sóttvarnarstofnunar Evrópu (https://www.ecdc.europa.eu/en/cases-2019-ncov-eueea, sótt 17. febrúar 2022) og
  • World Report 2021 – European Union (Human Rights Watch, 13. janúar 2021.

Af framangreindum gögnum verður ráðið að grísk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna þar í landi. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur meðal annars bent á þau neikvæðu áhrif sem efnahagsástand í Grikklandi hafi haft á aðstæður einstaklinga sem hlotið hafi vernd þar í landi og möguleika þeirra á að aðlagast grísku samfélagi. Að mati kærunefndar er ljóst af framangreindum gögnum að þeir einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi lifa oft á jaðri samfélagsins og búi í sumum tilvikum við félagslega einangrun. Einstaklingar með alþjóðlega vernd eiga hins vegar sambærilegan rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar og í dvalarleyfi þeirra felst jafnframt aðgangur að vinnumarkaði. Þá veita frjáls félagasamtök einstaklingum með alþjóðlega vernd aðstoð við að kynna sér réttindi sín í Grikklandi.

Samkvæmt skýrslu European Council on Refugees and Exciles (ECRE) frá því í júní 2021 eiga einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu með sömu skilyrðum og grískir ríkisborgarar, þ. á m. nauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu og lyfjum. Samkvæmt fyrrnefndri skýrslu hefur bág fjárhagsstaða gríska ríkisins haft mikil áhrif á heilbrigðiskerfi landsins og hefur kostnaðarþátttaka almennings aukist við kaup á lyfjum og þjónustu. Þannig geti verið vandkvæðum bundið að sækja sér heilbrigðisþjónustu þar í landi og þá sérstaklega sérhæfða heilbrigðisþjónustu, m.a. vegna skorts á fjármagni og starfsfólki. Þetta eigi jafnt við um alla borgara Grikklands, bæði gríska ríkisborgara og aðra sem hafi rétt til dvalar í ríkinu. Auk þess hafi útgáfa almannatrygginganúmera (AMKA) (áður nefnt kennitölur) falið í sér hindranir fyrir einstaklinga með alþjóðlega vernd við að afla sér heilbrigðisþjónustu. Samkvæmt upplýsingasíðu Refugee Info Greece fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd og handhafa verndar í Grikklandi og sem veitir upplýsingar á grísku, arabísku, farsi, urdu, frönsku, lingala/bantu, norður-kúrdísku og ensku hafi allir umsækjendur um alþjóðlega vernd fengið svokallað AMKA eða almannatrygginganúmer sem veitti þeim m.a. aðgang að heilbrigðiskerfinu. Í janúar 2020 hafi skilyrði fyrir útgáfu almannatrygginganúmera breyst og fái umsækjendur um alþjóðlega vernd nú útgefin tímabundin almannatrygginga- og heilbrigðisþjónustunúmer (PAAYPA), meðan þeir sem hlotið hafa alþjóðlega vernd fái útgefið varanlegt almannatrygginganúmer. Þegar umsækjanda sé veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi verði almannatrygginga- og heilbrigðisþjónustunúmerið óvirkt mánuði eftir að viðkomandi hljóti dvalarleyfi. Einstaklingar geti þá í kjölfarið sótt um varanlegt almannatrygginganúmer í næstu þjónustumiðstöð. Til að sækja um slíkt númer þurfi einstaklingar að framvísa dvalarleyfi eða ferðaskilríkjum og staðfestingu á heimilisfangi. Til að fá varanlegt almannatrygginganúmer gefið út sé nægilegt að sýna fram á heimilisfang í búðum eða í gistiskýli. Þá segir á upplýsingasíðunni að samkvæmt gildandi löggjöf séu allir aðilar í hinum opinbera heilbrigðisgeira skyldugir til að veita öllum fyrstu hjálp þegar nauðsyn beri til. Eigi allir rétt á að leita til sjúkrahúsa og fá ókeypis læknisþjónustu og lyf sem þeir þarfnist þrátt fyrir að viðkomandi hafi hvorki PAAYPA eða AMKA númer. Á upplýsingasíðunni er unnt að eiga í samskiptum við þjónustufulltrúa á netspjalli í gegnum Facebook á áðurgreindum tungumálum. Á upplýsingasíðunni er einnig hægt að nálgast skjal á grísku sem hlaða má niður þar sem þessi réttur til þjónustu fyrir alla er útskýrður.

Í skýrslu ECRE kemur fram að aðgengi einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi að húsnæði sé háð sömu skilyrðum og takmörkunum og aðgengi annarra ríkisborgara þriðju ríkja með heimild til dvalar í Grikklandi. Fá gistiskýli séu í boði fyrir heimilislausa auk þess sem ekkert húsnæði sé til staðar sem einungis sé ætlað einstaklingum með alþjóðlega vernd. Erfitt geti reynst að fá pláss í gistiskýlum þar sem aðsóknin sé mikil og dæmi séu um að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafist við í yfirgefnum húsum og yfirfullum íbúðum við mjög bágar aðstæður. Eigi þetta einnig við um einstaklinga sem hafi verið sendir aftur til Grikklands frá öðrum Evrópuríkjum. Þá hafi í mars 2020 verið gerðar breytingar á útlendingalöggjöfinni í Grikklandi sem kveði á um að þegar ákvörðun um að veita alþjóðlega vernd liggi fyrir skuli draga úr fjár- og húsnæðisstuðningi. Handhöfum alþjóðlegrar verndar sem dvelji í úrræðum innan hins svokallaða ESTIA kerfi eða öðrum úrræðum, þar með talið hótelum og íbúðum, sé skylt að yfirgefa þau innan 30 daga eftir að hafa hlotið alþjóðlega vernd. Þó séu undantekningar frá þessari reglu, sérstaklega þegar um sé að ræða fólk sem glími við alvarlegan heilsubrest. Í skýrslu Passerell frá því í nóvember 2020 kemur fram að félagasamtök bjóði upp á gistiúrræði fyrir einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi en langur biðlisti sé eftir plássi þar og barnafjölskyldur og einstaklingar í viðkvæmri stöðu gangi fyrir.

Þá kemur fram í skýrslu ECRE að einstaklingar með alþjóðlega vernd eigi sambærilegan rétt á félagslegri aðstoð og grískir ríkisborgarar. Erfiðleikar geti þó verið til staðar við að nálgast félagslegar bætur vegna ákveðinni kerfishindrana, m.a. þurfi einstaklingar sem hyggist sækja um félagslegar bætur að leggja fram ákveðin skjöl s.s. fæðingarvottorð, upplýsingar um fjölskyldustöðu og prófskírteini. Þá hafi einstaklingar fengið synjun á umsókn sinni frá opinberum starfsmönnum þvert á reglur um jafnræði í grískum lögum. Þær félagslegu bætur sem í boði séu í Grikklandi séu t.d. bætur fyrir fjölskyldur en skilyrði fyrir slíkum bótum sé að sýnt sé fram á fimm ára óslitna og varanlega búsetu í Grikklandi. Þá veiti grísk yfirvöld einstaklingum, m.a. handhöfum alþjóðlegrar verndar, sem búi undir fátæktarmörkum fjárhagsaðstoð í formi mánaðarlegra greiðslna, svokallaðan KEA styrk. Þá séu í reynd engir aðrir framfærslustyrkir en KEA í boði. Jafnframt séu engin sérúrræði til staðar varðandi félagsþjónustu fyrir fólk í viðkvæmri stöðu, s.s. þolendur pyndinga. Þá sé félagsleg aðstoð ekki bundin við búsetu á tilteknum stað.

Samkvæmt skýrslu ECRE hafa einstaklingar með alþjóðlega vernd aðgang að atvinnumarkaðnum með sömu skilyrðum og ríkisborgarar Grikklands. Ekki sé þörf á sérstöku atvinnuleyfi. Atvinnuleysi sé hins vegar mikið í landinu og samkeppni við grískumælandi einstaklinga og erfiðleikar við að fá skattnúmer (AFM) útgefið dragi úr atvinnumöguleikum handhafa alþjóðlegrar verndar. Þessir erfiðleikar við að sækja sér atvinnu hafi leitt til þess að einstaklingar reyni að afla sér tekna með óformlegum og jafnvel ólöglegum leiðum sem hindri þar með aðlögun þeirra að samfélaginu. Samkvæmt rannsókn frá árinu 2018 hafi meirihluti þeirra flóttamanna sem þá hafi verið starfandi verið í óskráðu starfi. Þeir einstaklingar sem ekki starfi innan hins hefðbundna atvinnumarkaðar hafi ekki aðgang að almannatryggingakerfinu og vinni sér ekki inn atvinnutengd réttindi, s.s. atvinnuleysisbætur. Mikill meirihluti einstaklinga með alþjóðlega vernd og umsækjendur um vernd reiði sig því á fjárhagsaðstoð og dreifingu matvæla og muna af hálfu stjórnvalda og mannúðarsamtaka til þess að uppfylla grunnþarfir sínar. Í skýrslu ECRE kemur fram að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafi mætt erfiðleikum við að fá útgefið skattnúmer hjá grískum stjórnvöldum. Útgáfa skattnúmers sé grundvöllur þess að geta lifað og starfað löglega í Grikklandi og þess að einstaklingar geti sótt aðstoð og réttindi hjá grískum stjórnvöldum. Skattnúmerið sé forsenda þess að geta sótt um félagslega aðstoð, til að vinna hvort sem er sem starfsmaður hjá öðrum eða að hefja eigin rekstur, og til þess að gera samninga um leigu á húsnæði. Samkvæmt upplýsingasíðu fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd þurfi einstaklingar sem hyggjast sækja um skattnúmer að framvísa ferðaskilríki eða dvalarleyfi og staðfestingu á heimilisfangi eða heimilisleysi. Umsóknarferlið fari einungis fram á grísku en umsækjendur geti leitað eftir aðstoð hjá endurskoðendum eða frjálsum félagasamtökum.

Vegna upplýsinga um þessa erfiðleika varðandi útgáfu skattnúmera sendi kærunefnd útlendingamála árið 2020 fyrirspurn til Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og óskaði eftir upplýsingum um hvort stofnuninni væri kunnugt um hindranir sem einstaklingar með alþjóðlega vernd í Grikklandi kunni að mæta við að verða sér úti um slíkt skattnúmer. Í svari Flóttamannastofnunnar, dags. 10. mars 2020, kemur m.a. fram að almennt þurfi að sækja um skattnúmerið í eigin persónu hjá viðeigandi stjórnvaldi, umsóknina þurfi að fylla út á grísku og sýna þurfi skilríki s.s. dvalarskírteini. Þá sé engin túlkaþjónusta í boði en öll málsmeðferðin, bæði skriflega umsóknin og samskipti við stjórnvöld, þurfi að fara fram á grísku. Starfsmenn grískra yfirvalda séu ekki skyldugir samkvæmt lögum til þess að tala ensku í störfum sínum eða vinna með gögn sem ekki séu skrifuð eða þýdd yfir á grísku. Niðurstaða umsóknar um skattnúmer sé því undir því komin að starfsmaðurinn sé viljugur til samvinnu og að umsækjandi um skattnúmer hafi grunn í ensku eða grísku. Þá kom fram í svari Flóttamannastofnunar að það væri mismunandi og oft misvísandi framkvæmd milli þeirra stjórnvalda sem sjái um útgáfu númeranna. Framkvæmdin færi í raun eftir því hversu vant starfsfólkið væri að þjónusta þennan hóp. Þá geti viðmót og vilji starfsmanna stjórnvaldsins haft áhrif á niðurstöðu varðandi útgáfu skattnúmers og þeir umsækjendur sem njóti aðstoðar frjálsra félagasamtaka eða lögmanna í umsóknarferlinu séu líklegri til þess að fá jákvætt svar við umsókn sinni. Þá hafi komið upp vandamál hjá þessum hópi varðandi það að tengja skattnúmer hjóna saman. Grísk skattayfirvöld hafi árið 2018, gefið út fyrirmæli um ítarlegri skoðun á skilríkjum erlendra umsækjenda um skattnúmer, sem hafi í kjölfarið leitt til þess að biðtími eftir niðurstöðu hafi lengst töluvert hjá þeim hópi. Flóttamannastofnun, gríski umboðsmaðurinn og frjáls félagasamtök hafi í kjölfarið ítrekað lýst yfir áhyggjum vegna þessa og því hafi grísk stjórnvöld brugðist við með breytingu á framkvæmd, en þó sé þörf á frekari aðgerðum til að bæta þetta ferli. Þá sé óvíst hver staðan sé varðandi þann málafjölda sem enn bíði afgreiðslu af þessum sökum.

Í skýrslu ECRE kemur fram að börn með alþjóðlega vernd í Grikklandi eigi sama rétt til þess að ganga í skóla þar í landi og önnur grísk börn fram að 15 ára aldri. Þrátt fyrir það sé áætlað að einungis þriðjungur barna með alþjóðlega vernd hafi verið formlega skráður til náms á árunum 2018-2019. Í skýrslu Refugee Support Aegean (RSA) kemur fram að Covid-19 faraldurinn hafi haft neikvæð áhrif á menntun flóttabarna. Mörg börn hafi ekki náð að sækja skóla í meira en ár auk þess sem það hafi verið erfiðleikum bundið að skrá sig til náms. Jafnframt eigi stór hluti flóttabarna í erfiðleikum með fjarnám vegna tungumálaerfiðleika og skorts á nauðsynlegum búnaði.

Í skýrslu Evrópuráðsins um réttindi barna á stofnunum á vegum barnaverndaryfirvalda í Evrópu kemur fram að í Grikklandi fari heilbrigðisráðuneytið og félagsmálaráðuneytið með yfirumsjón yfir málum sem snúa að barnavernd. Þá hefur embætti umboðsmanns barna í Grikklandi eftirlit með stofnunum landsins, annars vegar með frumkvæðisskoðun og hins vegar tekur hann við kvörtunum frá börnum og forráðamönnum þeirra. Í skýrslu Eurochild frá árinu 2020 kemur fram að ekki hafi orðið neinar framfarir á síðustu árum á barnaverndarkerfinu í Grikklandi einkum hvað varðar vistun barna utan heimila og að þörf sé á úrbótum.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2020 kemur fram að dæmi séu um að flóttafólk sé beitt ofbeldi, þ. á m. af hendi grísku lögreglunnar. Þá kemur fram að þarlend lög og stjórnarskrá leggi bann við pyndingum og annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Enn fremur séu ofbeldisbrot rannsökuð af grísku lögreglunni en embætti umboðsmanns rannsaki meint brot lögreglu. Þá kemur fram að flóttabörn hafi orðið fyrir ofbeldi í Grikklandi. Þrátt fyrir að lögin kveði á um bann við líkamlegum refsingum og illri meðferð á börnum sé framfylgni laganna af hálfu stjórnvalda ekki talin fullnægjandi. Samkvæmt lögum séu sérstök úrræði fyrir börn sem hafi verið vanrækt eða misnotuð, t.a.m. fósturúrræði eða móttökumiðstöðvar. Ríkisreknar stofnanir hafi verið gagnrýndar af hálfu mannréttindasamtaka og taldar ófullnægjandi, m.a. vegna undirmönnunar og plássleysis. Þá sé heimilisofbeldi refsivert samkvæmt lögum en þeim sé framfylgt að framlagðri kæru. Stjórnvöld hafi sætt gagnrýni af hálfu alþjóðlegra samtaka fyrir að bregðast ekki við þegar innflytjendur tilkynni um heimilisofbeldi. Í ársskýrslu gríska umboðsmannsins fyrir árið 2020 kemur fram að umboðsmaður hafi leitast við að gera sérstakar ráðstafanir til að auka stuðning við þolendur heimilisofbeldis. Þá hafi lögreglan farið í sérstakt átak til að takast á við heimilisofbeldi og kynbundið ofbeldi á árinu. Af framangreindri skýrslu verður ráðið að ýmsir annmarkar séu á dómskerfi landsins en sjálfstæði dómstóla sé tryggt í framkvæmd, svo og réttindi brotaþola og sakborninga. Þá kemur fram í vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal) að útlendingar í Grikklandi sem séu þolendur glæpa og tali hvorki né skilji grísku eigi rétt á túlkaþjónustu og upplýsingum um mál þeirra á tungumáli sem þeir skilji.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skuli taka hana til efnismeðferðar. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga verður því aðeins beitt ef stjórnvöld telja, á grundvelli hlutlægra og trúverðugra upplýsinga sem eru nægilega nákvæmar og uppfærðar eftir því sem við á, að skilyrði þess séu uppfyllt. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. er til viðbótar þeirri vernd sem 3. mgr. 36. gr. veitir umsækjendum um alþjóðlega vernd.

Á grundvelli 4. mgr. 36. gr. laga um útlendinga setti ráðherra reglugerð nr. 276/2018 um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, en með henni bættust tvær greinar, 32. gr. a og 32. gr. b, við reglugerðina. Í 32. gr. a reglugerðarinnar kemur fram að með sérstökum ástæðum samkvæmt 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan. Þá eru í ákvæðinu jafnframt talin upp viðmið í dæmaskyni sem leggja skuli til grundvallar við mat á því hvort sérstakar ástæður séu fyrir hendi en þau viðmið varða aðallega alvarlega mismunun eða alvarleg veikindi. Þar sem tilvikin eru talin upp í dæmaskyni geta aðrar aðstæður, sambærilegar í eðli sínu og af svipuðu alvarleikastigi, haft vægi við ákvörðun um hvort sérstakar ástæður séu til að taka mál umsækjanda til efnismeðferðar hér á landi, svo framarlega sem slíkar aðstæður séu ekki sérstaklega undanskildar, sbr. 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar.

Samkvæmt 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar skal líta til þess hvort umsækjandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, svo sem ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða ef umsækjandi getur vænst þess að staða hans, í ljósi framangreindra ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki. Kærunefnd telur að orðalagið „muni eiga“ feli ekki í sér kröfu um afdráttarlausa sönnun þess að umsækjandi verði fyrir alvarlegri mismunun sem leiði til þess að hann muni eiga erfitt uppdráttar. Orðalagið gerir þó kröfu um að tilteknar líkur verði að vera á alvarlegri mismunun, þ.e. að sýna verður fram á að kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir mismunun af þeim toga, með þeim afleiðingum, og af því alvarleikastigi sem ákvæðið lýsir en að ekki sé nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri mismunun. Af því leiðir að þó svo að dæmi séu um að einstaklingar í sambærilegri stöðu og kærandi í viðtökuríki hafi orðið fyrir alvarlegri mismunun af þeim toga sem 32. gr. a reglugerðar um útlendinga mælir fyrir um telst umsækjandi ekki sjálfkrafa eiga slíkt á hættu heldur þarf að sýna fram á að verulegar ástæður séu til að ætla að kærandi, eða einstaklingur í sambærilegri stöðu og umsækjandi, sæti slíkri meðferð.

Þá skal líta til þess hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki. Í reglugerðinni kemur fram að meðferð teljist, að öllu jöfnu, ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur sé átt við þau tilvik þar sem meðferð er til í viðtökuríkinu en umsækjanda muni ekki standa hún til boða. Við mat á því hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi lítur kærunefnd m.a. til heilsufarsgagna málsins og hlutlægra og trúverðugra gagna um hvort sú heilbrigðisþjónusta sem hann þarfnast sé honum aðgengileg í viðtökuríki.

Af 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar má jafnframt ráða að heilsufar umsækjanda hafi takmarkað vægi umfram það sem leiðir af 2. mgr. 32. gr. a, nema það teljist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði fram hjá þeim litið. Þá tekur 3. mgr. 32. gr. a af tvímæli um það að efnahagslegar ástæður geta ekki talist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Slíkar aðstæður gætu þó fallið undir 3. mgr. 36. gr. nái þær því alvarleikastigi sem við á, sbr. umfjöllun hér í framhaldinu.

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi [...] ára kona sem stödd er hér á landi ásamt [...] ára dóttur sinni en eiginmaður kæranda sem einnig er faðir A sótti um alþjóðlega vernd á Íslandi hinn 18. október 2020. Í komunótu frá bráðamóttöku, dags. 28. ágúst 2021, kemur fram að kærandi hafi komið þangað með sjúkrabíl eftir að hafa fundist meðvitundarlaus á heimili sínu. Kærandi hafi greint frá því að hún hafi lent í ágreiningi við eiginmann sinn og hún upplifað mikið álag við það. Kærandi hafi neitað því að vera beitt líkamlegu ofbeldi af eiginmanni sínum. Líklega hafi liðið yfir kæranda vegna álags og næringarskorts. Send hafi verið tilkynning til barnaverndar og kærandi fengið leiðbeiningar um hvernig hún gæti leitað til Kvennaathvarfsins. Í komunótu frá Göngudeild sóttvarna, dags. 6. september 2021, kemur fram að kærandi sé almennt heilbrigð. Kærandi hafi greint frá því að sambúð við eiginmann sinn gangi ekki vel en hann tali m.a. niður til hennar og hrópi á hana þar til hún brotni niður. Í gögnum málsins er að finna bréf frá Kvennaathvarfinu, dags. 10. nóvember 2021, þar sem m.a. kemur fram að kærandi og A hafi dvalið í athvarfinu frá 7. október til 1. nóvember 2021 vegna andlegs ofbeldis eiginmanns hennar. Þá hafi kærandi notið stuðnings félagsþjónustunnar á meðan dvöl hafi staðið og þær farið í breyttar búsetuaðstæður eftir dvölina. Í bréfi frá Bjarkarhlíð, dags. 4. janúar 2022, kemur fram að kærandi hafi komið í móttökuviðtal hjá ráðgjafa hinn 21. janúar 2022 , þar sem hún hafi greint frá andlegu, kynferðislegu og fjárhagslegu ofbeldi af hendi maka. Þá kemur fram í tölvubréfi málastjóra kæranda, dags. 7. febrúar 2022, til talsmanns hennar að hún ætli að halda áfram í viðtölum í Bjarkarhlíð.

Í komunótu frá Göngudeild sóttvarna, dags. 6. september 2021, kemur fram að A sé almennt heilbrigð. Kærandi hafi greint frá því að A hefði verið þöglari en vanalega rétt áður en þær komu til Íslands. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að A hafi oft þurft að leita á spítala í Grikklandi vegna aðstæðna í flóttamannabúðunum. Þá hafi kærandi greint frá því að upp hafi komið gasleki í húsnæði sem þær hafi dvalið í Grikklandi og A hafi byrjað að […] eftir það en sé við betri heilsu í dag. Í tölvubréfi frá málastjóra kæranda, dags. 7. febrúar 2022, kemur fram að A sé nú byrjuð á leikskóla og samkvæmt upplýsingum frá deildarstjóra gangi aðlögun ágætlega. Nokkuð vanti þó upp á félagslega færni hjá A og því sé í skoðun að sækja um sérstuðning fyrir hana til að hjálpa henni í félagslegum samskiptum og minnka líkur á því að hún festist í óæskilegu mynstri.

Í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga koma fram sérviðmið er varða börn og ungmenni. Þar segir m.a. að við mat á því hvort taka skuli umsókn til efnismeðferðar vegna sérstakra ástæðna skuli hagsmunir barnsins hafðir að leiðarljósi. Þá segir að við mat á hagsmunum barns skuli meðal annars litið til þess hvort flutningur til viðtökuríkis hafi í för með sér hættu á að fjölskyldan aðskiljist eða muni aðskiljast.

Einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda og barns hennar hefur þegar verið lýst, og m.a. sú aðstoð rakin sem kærandi hefur fengið hér á landi. Kærandi hefur m.a. borið fyrir sig að sérstakar ástæður séu fyrir hendi í máli hennar þar sem fjölskyldan verði útilokuð frá nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, félagslegri aðstoð, húsnæði og atvinnu í Grikklandi. Kærandi vísar til viðkvæmrar stöðu fjölskyldunnar, einkum til andlegrar heilsu kæranda. Þá vísar hún til þess að endursending fjölskyldunnar til Grikklands sé barninu ekki fyrir bestu.

Aðstæður einstaklinga sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi hafa þegar verið raktar. Kærandi og barn hennar eru með alþjóðlega vernd í Grikklandi og hafa m.a. greint frá bágum aðstæðum sínum þar í landi. Kærandi hafi t.a.m. haft takmarkaðan aðgang að félagslegri þjónustu, heilbrigðisþjónustu og orðið fyrir fordómum og áreiti í Grikklandi. Líkt og áður hefur komið fram hafa einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd að mestu sambærileg réttindi að lögum og grískir ríkisborgarar. Aftur á móti liggur fyrir að ýmsar hindranir eru á því að þeir geti sótt þessi réttindi. Til að mynda sé ljóst að börn eigi lagalegan rétt á menntun í Grikklandi en framangreind gögn benda til þess að yfirstíga þurfi ákveðnar stjórnsýsluhindranir til að skrá börn í skóla. Með vísan til framangreindrar umfjöllunar um aðstæður í Grikklandi m.t.t. félagslegra bóta telur kærunefnd ljóst að þau skilyrði sem sett eru fyrir félagslegum bótum þar í landi geta valdið því að fjölskyldur með alþjóðlega vernd geti átt erfitt með yfirstíga þær hindranir sem finna má í grísku stjórnkerfi er það varðar, og þar með framfleyta sér. Sem dæmi geti þau mætt hindrunum við að nálgast gögn sem séu forsendur bótanna og þá geti verið bið eftir afgreiðslu umsókna. Þá séu í reynd engir aðrir styrkir en svokallaður KEA styrkur fyrir einstaklinga sem búi undir fátæktarmörkum. Jafnframt bera gögn um aðstæður í Grikklandi með sér að aðgengi einstaklinga með alþjóðlega vernd að vinnumarkaðnum sé erfitt, m.a. í ljósi mikils atvinnuleysis í landinu.

Þá telur kærunefnd að ljóst sé af framangreindri umfjöllun, að ýmsar hindranir séu á möguleikum einstaklinga með alþjóðlega vernd til að fá útgefið skattnúmer í Grikklandi, en líkt og áður hefur komið fram er númerið forsenda þess að starfa löglega í landinu, sækja um félagslegar bætur og gera leigusamning um húsnæði. Það sé því grunnforsenda þess að geta framfleytt sér löglega í Grikklandi. Það er þó mat kærunefndar að þrátt fyrir að einstaklingar með alþjóðlega vernd mæti ýmsum hindrunum við umsókn um skattnúmer þá bendi skýrslur til þess að það sé þeim ekki ómögulegt. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hún væri ekki með skattnúmer í Grikklandi en að hún væri með almannatrygginganúmer þar í landi.

Af gögnum málsins er ljóst að kærandi sótti um alþjóðlega vernd í Grikklandi 6. mars 2018 þá ólétt af dóttur sinni sem fæddist þar í ágúst[...]. Var henni og dóttur hennar veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi 1. apríl 2020. Frá þeim tíma kvaðst kærandi ekki hafa fengið fjárhagsaðstoð eða aðstoð til öflunar húsnæðis en fengið að dvelja hjá vinum og kunningjum stundum gegn því að líta eftir börnum þeirra. Dvaldi kærandi í Grikklandi allt þar til hún kom til Íslands ásamt dóttur sinni og sótti um alþjóðlega vernd í ágúst 2021. Eiginmaður umsækjanda sótti um alþjóðlega vernd í Grikklandi 2. ágúst 2018 og fékk veitta alþjóðlega vernd 8. mars 2019. Hinn 20. maí 2019 sótti hann um alþjóðlega vernd í Belgíu en eftir að umsókn hans var synjað þar kom hann til Íslands og sótti um alþjóðlega vernd 18. október 2020 en þeirri umsókn var hafnað. Engin gögn eða frásagnir í málinu liggja fyrir um samvistir þeirra frá þeim tíma sem þau sóttu um alþjóðlega vernd í Grikklandi fram til þess tíma sem þau sameinuðust hér á landi. Jafnframt liggur fyrir að kærandi sem er með eitt barn á sínu framfæri, er nú aðskilin eiginmanni sínum vegna ásakana um andlegt ofbeldi. Samkvæmt gögnum málsins barst Barnavernd Reykjavíkur tilkynningar frá bráðadeild, Göngudeild sóttvarna og lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu. Þá sendi Kvennaathvarfið bréf til Barnaverndar Reykjavíkur vegna málsins. Í framangreindum gögnum kemur m.a. fram að kærandi hafi greint frá því að faðir A hafi beitt sig andlegu ofbeldi. Jafnframt hafi faðir A staðið í hótunum við kæranda með […]. Þá kemur fram í tölvupósti, dags. 11. október 2021, frá málastjóra kæranda að hún hafi greint frá því að vilja skilja við eiginmann sinn. Jafnframt liggur fyrir bréf frá Bjarkarhlíð, dags. 4. janúar 2022, þar sem fram kemur að kærandi hafi greint frá andlegu, kynferðislegu og fjárhaglegu ofbeldi af hendi maka. Gögn málsins benda til þess að kærandi og barn hennar kunni að hafa þörf fyrir áframhaldandi félagslegan stuðning barnaverndarþjónustu. Framangreindar skýrslur og gögn benda til þess að það geti verið vandkvæðum bundið fyrir kæranda og barn hennar að fá nauðsynlegan stuðning í Grikklandi en skýrslur um Grikkland bera með sér að barnaverndarkerfið þar í landi hafi verið gagnrýnt vegna skorts á þjónustu sem tengist takmörkuðum fjárheimildum gríska ríkisins.

Í ljósi framangreindra aðgangshindrana að grunnþjónustu og lagalegum réttindum í Grikklandi og þá sérstaklega þegar litið er til stöðu barnsins A telur kærunefnd að ástæða sé til að ætla að kærandi sé í verulega síðri stöðu en aðrir til að sækja sér réttindi sín, framfleyta fjölskyldunni og fá viðeigandi stuðning félagsmálakerfis, og þar með tryggja grunnþarfir barns síns. Í ljósi alls þess sem að framan er rakið er það mat kærunefndar, sérstaklega m.t.t. aðstæðna A og þarfa hennar og kæranda á félagslegum stuðningi, auk núverandi aðstæðna í Grikklandi og framangreindra aðgangshindrana að grunnþjónustu og réttindum, að það sé ekki í samræmi við öryggi A, velferð hennar og þroska að fara aftur til Grikklands þar sem óvissa sé með trygga framfærslu barnsins og aðgang hennar að grunnþjónustu og félagslegum stuðningi.

Samkvæmt framangreindu er það því niðurstaða kærunefndar að fyrir hendi séu sérstakar ástæður í máli þeirra sem mæla með því að mál þeirra verði tekið til efnismeðferðar hér á landi skv. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, sbr. einnig 2. mgr. 10. gr. og 3. mgr. 25. gr. sömu laga og 1. mgr. 3. gr. og 1. mgr. 22. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, og tilvitnuð ákvæði reglugerðar um útlendinga.

Að framangreindu virtu og með vísan til sjónarmiða um einingu fjölskyldunnar er það niðurstaða kærunefndar að fella úr gildi ákvarðanir Útlendingastofnunar í máli kæranda og barns hennar og leggja fyrir stofnunina að taka mál þeirra til efnislegrar meðferðar.

Í ljósi framangreindrar niðurstöðu er, að mati kærunefndar, ekki tilefni til umfjöllunar um athugasemdir kæranda við ákvarðanir Útlendingastofnunar.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið er það niðurstaða kærunefndar að fella úr gildi ákvarðanir Útlendingastofnunar í málum kæranda og barns hennar og leggja fyrir stofnunina að taka mál þeirra til efnislegrar meðferðar á grundvelli 1. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.


Úrskurðarorð:

 

Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru felldar úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda og barns hennar til efnismeðferðar.

 

The decisions of the Directorate of Immigration are vacated. The Directorate shall examine the merits of the applicant’s and her child’s applications for international protection in Iceland.

 

Þorsteinn Gunnarsson

 

Sandra Hlíf Ocares                                                                  Bjarnveig Eiríksdóttir

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum