Hoppa yfir valmynd
21. september 2016 Forsætisráðuneytið

Alþjóðleg ráðstefna um stjórnarskrárendurskoðun

Dagana 23.-24. september næstkomandi fer fram á Akureyri alþjóðleg og þverfagleg ráðstefna um stjórnarskrárendurskoðun. Ráðstefnan er haldin í samstarfi forsætisráðuneytis, stjórnarskrárnefndar og Háskólans á Akureyri. Markmiðið er að efna til upplýstrar umræðu um málefni stjórnarskrárinnar í aðdraganda alþingiskosninga.

Upphafsávarp á ráðstefnunni flytur Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands. Fjöldi innlendra og erlendra fræðimanna flytur erindi um margvíslegar hliðar stjórnarskrárendurskoðunar hér á landi og erlendis. Sjá nánar í dagskrá málþingsins.

Að loknu ávarpi Sigurðar Inga Jóhannssonar, forsætisráðherra, í lok fyrri dags ráðstefnunnar, munu fara fram pallborðsumræður fulltrúa stjórnmálaflokkanna í stjórnarskrárnefnd.

Stjórnarskrárnefnd, sem skipuð var af forsætisráðherra 2013, var falið að leggja til breytingar á stjórnarskránni, með hliðsjón af þeirri vinnu sem farið hefur fram á undanförnum árum og annarri þróun í stjórnarskrármálum. Í júlí síðastliðnum skilaði nefndin af sér tillögum um 1) þjóðareign á náttúruauðlindum, 2) umhverfis- og náttúruvernd og 3) þjóðaratkvæðagreiðslur að kröfu hluta kjósenda. Forsætisráðherra hefur lagt fram frumvarp þessa efnis á Alþingi og það er nú til umfjöllunar þar.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum