Hoppa yfir valmynd
12. mars 2020 Dómsmálaráðuneytið

Sigríður Björk skipuð ríkislögreglustjóri

Sigríður Björk Guðjónsdóttir og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra - mynd

Dómsmálaráðherra hefur skipað Sigríði Björk Guðjónsdóttur í embætti ríkislögreglustjóra frá og með 16. mars næstkomandi. Hæfnisnefnd sem skipuð var til að fara yfir og meta hæfni umsókna um embætti ríkislögreglustjóra mat Sigríði hæfasta umsækjenda.

Sigríður hefur frá árinu 2014 gegnt embætti lögreglustjórans á Höfuðborgarsvæðinu. Áður en Sigríður tók við embætti lögreglustjórans á Höfuðborgarsvæðinu gegndi hún embætti lögreglustjóra á Suðurnesjum, þar áður var hún aðstoðarríkislögreglustjóri frá 2007 til 2008, sýslumaður á Ísafirði 2002-2006 og skattstjóri Vestfjarða frá 1996 til 2002.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum