Hoppa yfir valmynd
3. október 2014 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 57/2014 úrskurður 3. október 2014

Mannanafnanefnd-úrskurðir

 

 

 

                 Mál nr. 57/2014                     

Eiginnafn:      Karma

 

 

Hinn 3. október 2014 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 57/2014 en erindið barst nefndinni sama dag.

Í máli þessu er sótt um að eiginnafnið Karma (kk.) verði tekið á mannanafnaskrá. Öll skilyrði 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn þurfa að vera uppfyllt svo að mögulegt sé að samþykkja nýtt eiginnafn og færa það á mannanafnaskrá. Skilyrðin eru þessi:

(1) Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.

(2) Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.

(3) Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess. Með almennum ritreglum íslensks máls er vísað til auglýsinga nr. 132/1974 og 261/1977 um íslenska stafsetningu.

Í máli þessu reynir á skilyrði nr. (1) hér að ofan.

Nafnið Karma tekur ekki íslenskri eignarfallsendingu, það er eins í öllum föllum. Ekki er hægt að bæta við s í eignarfalli karlkynsorða sem enda á -a (þ.e. ef. Karmas) og ekki er heldur hægt að láta eignarfallið enda á -u með hljóðvarpi rótarsérhljóðs (ef. Körmu) því að þannig beygjast eingöngu kvenkynsnöfn (t.d. Anna, ef. Önnu). Eina karlkynsnafnið sem hefur eignarfallsendinguna -u er Sturla (ef. Sturlu) en þar verður ekki hljóðvarp í rót.

Eins og fram kemur hér að ofan er hægt að víkja frá skilyrði nr. (1) ef nafn hefur unnið sér hefð. Hugtakið hefð í mannanafnalögum varðar einkum erlend nöfn frá síðari öldum sem ekki hafa aðlagast ritreglum íslensks máls. Þau eru stundum nefnd ung tökunöfn og koma fyrst fram í íslensku máli árið 1703 þegar manntal á Íslandi var tekið fyrsta sinni. Túlkun mannanafnanefndar á hugtakinu hefð í 5. og 6. gr. laga nr. 45/1996 styðst við eftirfarandi vinnulagsreglur sem nefndin setti sér á fundi 14. nóvember 2006 og eru byggðar á greinargerð með frumvarpi að mannanafnalögum og eldri vinnulagsreglum:

1.      Ungt tökunafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:

a.       Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;

b.      Það er nú borið af 10­–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;

c.       Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;

d.      Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1910;

e.       Það er ekki borið af neinum Íslendingi nú en kemur a.m.k. fyrir í tveimur manntölum frá 1703–1910.

2.      Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa átt lögheimili á Íslandi.

3.    Tökunafn getur verið hefðað þó að það komi ekki fyrir í manntölum ef það hefur unnið sér menningarhelgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum eða þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.

Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá Íslands ber enginn nafnið Karma í þjóðskrá. Nafnið kemur ekki fyrir í manntölum frá 1703–1910 og mannanafnanefnd hefur ekki fundið önnur dæmi um að þetta nafn (eða nafn með umbeðnum rithætti) hafi verið notað hér á landi. Nafnið getur í þessu ljósi ekki talist hafa öðlast hefð hér á landi og er mannanafnanefnd því samkvæmt lögum skylt að hafna því.

 

                                                               Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Karma (kk.) er hafnað.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum